Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 16
Fólkið14/15
sparast í tækjabúnaði margfaldaðist vegna þess að læknarnir, sem
hófu eigin rekstur, fjárfestu í þessum tækjum sjálfir. Þannig streymdi
opinbert fjármagn um hendur lækna í einkarekstri til að kaupa tæki
og búnað sem sameining sjúkrahúsanna átti að spara. „Hvernig í
ósköpunum gátu menn talið fólki og fjölmiðlum trú um það að hægt
væri að reka einn spítala með eitt sett af hátæknibúnaði í Reykjavík?
Hvernig var hægt að láta sér detta það í hug? En það tókst. Þeim
tókst að láta fólk trúa því að það væri hægt að vera með eitt tækjasett.
Flutningur sjúklinga milli Fossvogs og Hringbrautar vegna bilunar í
tölvusneiðmyndatæki nýverið sýnir okkur hversu raunhæf sú hug-
mynd er.“ Sameining spítalanna fór öll
fram í þessari blekkingu um að það væri
hægt að spara í tækjabúnaði, en þetta
var orðræða stjórnmálamanna. Í hjarta
sínu vissu flestir læknar að þetta væri
ekki hægt segir Sigurbjörg. „Við erum
með lækna sem hafa fengið menntun
sína erlendis og vita nákvæmlega hvernig
háskólasjúkrahús eru erlendis og hvað
þarf til. Það er ekki hægt að reka eina
háskólasjúkrahúsið með eitt segulómstæki
og eitt tölvusneiðmyndatæki, sem eru bókuð langt fram í tímann, og
taka áhættuna að tækin bili. Það hefði aldrei gengið.”
Frelsi sjúklinga grefur undan öflugri heilsugæslu og hug-
myndinni um háskólasjúkrahús
Hugmyndafræðin um að sjúklingar fái að velja hvert þeir leita eftir
þjónustu innan kerfisins samræmist hvorki hugmyndinni um fyrsta
viðkomustaðinn í heilbrigðiskerfinu og öflugri heilsugæslu né hug-
myndinni um háskólasjúkrahús þar sem þróun lækninga þarf að vera
á einum stað til að efla sérgreinarnar og tryggja gæði þjónustunnar að
mati Sigurbjargar. Þannig grefur sú hugmynd um frelsi sjúklinga til
að velja hvert þeir kjósa að fara undan báðum þessum markmiðum.
Sá vandi, sem íslenskt heilbrigðiskerfi stendur frammi fyrir, er marg-
þættur: Sérgreinalæknar ákveða í raun eftirspurnina eftir sjálfum sér,
heilsugæslukerfið hefur ekki náð að þróast til að þjóna sem raunhæf
„Samkeppnin um
nýútskrifaða hjúkrun-
arfræðinga og
unglækna yrði að
engu við sam einingu
spítalanna.“