Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 24
Fólkið03/05
sem starfa sem hjúkrunarfræðingar eða hafa verið að læra hjúkrunar-
fræði, benda allar í sömu átt hvað varðar þætti sem halda körlum
frá náminu eða hrekja þá þaðan eða vekja hjá þeim neikvæðar
tilfinningar gagnvart starfinu. Nemendur og fullnuma hjúkrunar-
fræðingar af karlkyni mæta athugasemdum sem lúta að kyni þeirra
eða kynhneigð. Stundum eru þeir „grunaðir“ um að vera hommar,
stundum fá þeir að heyra að þeir hafi farið í þetta til að geta verið
eini haninn á haugnum, eini karlinn í stórum hópi kvenna. Þeir
eru afar meðvitaðir um kyn sitt, m.a. af því að þeir eru svo fáir og
kennarar eiga það til að gleyma því að þeir eru þó þarna og kvengera
nemendahópinn. „Jæja, stelpur, þá skulum við …“. Ekki batnar það
þegar kennarinn áttar sig og biður eina karlinn afsökunar. Hann
verður fyrst og fremst Karlinn, síður nemandi. Þegar námi er lokið og
vinnan tekur við heldur kyngervingin áfram, hann er Karlinn frekar
en hjúkrunarfræðingur, sá sem kallað er á þegar þarf að lyfta þungu
eða vesenast í tækjum því allir vita jú að þar eru karlar á heimavelli,
a.m.k. frekar en þegar kemur að hinu fínlega, þá er betra að kona
sinni því!
Vera má að dregið hafi úr þessu á síðari árum í og með vegna
þess að fjölgað hefur körlum sem eru virkir í umhyggju lítilla barna.
Fæðingarorlof fyrir karla hefur stóraukið þátttöku þeirra í umhyggju
eigin barna. Körlum, sem starfa á leikskólum, hefur fjölgað. En þeir
eru ómenntaðir, það sígur frekar á ógæfuhliðina hvað varðar hlut
karla meðal þeirra sem mennta sig til kennslu og má þá einu gilda á
hvaða stigi sú kennsla er.
Föst í viðjum menningarlegra hugmynda um hjúkrun
Hérlendar rannsóknir sýna að strákar bera fulla virðingu fyrir
hjúkrun ar fræði, því fer fjarri að litið sé niður á þá sem sinna hjúkr-
un. En vegna þeirra menningarlegu hugmynda að þetta sé aðeins
fyrir konur þá hvarflar ekki að strákunum að velta því fyrir sér að
læra hjúkrunarfræði. Við sjáum það hérlendis og á hinum Norður-
löndunum að þeir sem læra hjúkrun hafa í mjög mörgum tilfellum
kynnst þeim störfum áður með einhverjum hætti. Sumir eiga foreldri
sem er hjúkrunarfræðingur, aðrir hafa unnið á spítölum á sumrin. Þá
verður þetta að möguleika, þá verður ljóst að þetta er ekki bara fyrir
konur og þá þarf aðeins smá-hvatningu til að skrefið sé stigið.