Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 59
Fagið03/07
5. Heilsugæsla í héraði (klínísk og fræðileg lína: 10 ein. í val-
námskeiðum. Allir nemendur taka BRÞ0110 Bráðaþjónusta).
Brautarstjóri: Sigríður Sía Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir, lektor við Heilbrigðisvísindasvið HA (siaj@unak.is)
6. Krabbamein og líknarmeðferð (20 ein. í valnámskeiðum).
Brautarstjóri: dr. Elísabet Hjörleifsdóttir, sérfræðingur í
krabbameins- og líknarhjúkrun, dósent í hjúkrunarfræði við
Heilbrigðisvísindasvið HA (elisabet@unak.is)
7. Langvinn veikindi og lífsglíman (20 ein. í valnámskeiðum).
Brautarstjóri: dr. Árún K. Sigurðardóttir, sérfræðingur í sykursýki
og langvinnum sjúkdómum, prófessor í hjúkrunarfræði við
Heilbrigðisvísindasvið HA (arun@unak.is )
8. Sálræn áföll, ofbeldi og áfallastreita (20 ein. í valnámskeiðum).
Brautarstjóri: Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og lektor
í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið HA (sigrunsig@unak.
is)
9. Starfsendurhæfing (engin valnámskeið) – í samvinnu við
Félagsvísindasvið HÍ. Brautarstjóri (tímabundið): dr. Sigríður
Halldórsdóttir, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið HA (sigridur@
unak.is)
10. Stjórnun í heilbrigðisþjónustu (20 ein. valnámskeiðum).
Brautarstjóri: Dr. Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmála- og stjórnsýslu-
fræðingur, Prófessor við viðskiptafræðideild HA (gretar@unak.is)
11. Öldrun og heilbrigði (20 ein. í valnámskeiðum). Brautarstjóri:
Rannveig Guðnadóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun (rgudnad@
unak.is)
Meistaranámið veitir prófgráðuna MS í heilbrigðisvísindum (120
ECTS) og diplómanámið veitir prófgráðuna Diplómagráða í heilbrigð-
isvísindum (40 ECTS).
Markmið námsins er að þeir sem útskrifast úr því verði gagnrýnir
greinendur, ígrundandi fagmenn, breytingarliðar og víðsýnir og
skapandi leiðtogar. Þetta eru þeir námskrárþræðir sem eru rauðu
þræðirnir í uppbyggingu og innihaldi námskeiða, og leiðarljós í
kennsluháttum og námsmati.