Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 65
Fagið02/04
Þegar hugtakið grundvallarsmitgát var innleitt í kjölfar þess að
HIV greindist voru smitleiðir einfaldaðar í þrjár meginsmitleiðir, það
er snertismit, dropasmit og úðasmit, og samsettar smitleiðir snerti- og
dropasmits og snerti- og úðasmits. Samhliða þessum breytingum
voru varnir gegn blóðbornu smiti gerðar að lágmarkskröfum í öllum
vinnubrögðum heilbrigðisstarfsmanna. Markmið þessara breytinga er
að verja starfsmenn gegn blóðbornu smiti (fyrst og fremst lifrarbólga
B og C, og HIV) frá sjúklingum, líka þeim sem ekki er vitað að séu
smitandi. Samkvæmt grundvallarsmitgát eru allir líkamsvessar allra
sjúklinga hugsanlegt smitefni óháð því hvort vitað er að þeir séu
smitandi (World Health Organization, 2007). Ef sjúklingur hefur
einkenni sem gefa til kynna að
hann sé smitandi (til dæmis háan
hita, höfuðverk og öndunarfæraein-
kenni) á heilbrigðisstarfsmaður að
klæðast viðeigandi hlífðarbúnaði
þegar hann sinnir sjúklingnum. Því
næst þarf að afla frekari upplýsinga
hjá sjúklingnum eða aðstandend-
um, meta þörf fyrir einangrun
(út frá smitleið) og sjá til þess
að umhverfi, sem hugsanlega er
mengað sé þrifið. Markmiðið
með grundvallarsmitgát er að auka öryggi sjúklinga og starfsmanna
með því að rjúfa smitleiðir og þá fyrst og fremst snertismit. Með því
að bregðast við strax er hægt að koma í veg fyrir spítalasýkingar og
faraldra. Ef seinna kemur svo í ljós að ekki er þörf á einangrun er
auðvelt að draga í land með aðgerðir.
Viðbótarsmitgát eða einangrun er alltaf viðbót við grundvallar-
smitgát. Mikilvægt er að velja viðeigandi herbergi fyrir einangrun
og hafa smitleiðir í huga. Við snertismitseinangrun, dropasmitsein-
angrun og samsetta snerti- og dropasmitseinangrun þarf einbýli
með sér salerni, en við úðasmitseinangrun eða samsetta snerti- og
úðasmitseinangrun þarf einbýli með sér salerni, stillanlegum loft-
þrýstingi og HEPA-síu á útsogi. Beita má hópeinangrun ef fleiri en
einn sjúklingur er í einangrun vegna sömu örveru, til dæmis mega
tveir sjúklingar með nóróveiru sýkingu vera saman í einangrun í
Beita má hópeinangrun ef
fleiri en einn sjúklingur er
í einangrun vegna sömu
örveru, til dæmis mega
tveir sjúklingar með nóró-
veirusýkingu vera saman í
einangrun í tvíbýli.