Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2018, Blaðsíða 16
16 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 94. árg. 2018
Líkt og rafmagnsbíll með enga hleðslu
— Kulnun, einkenni, orsök og leiðir til bata
„Ég varð bara eins og slytti og varla fjórðungur af manneskju. Það er enginn sem gerir
sér grein fyrir hvað þetta er nema að hafa gengið í gegnum þetta,“ sagði gréta krist-
jánsdóttir, fyrrverandi forvarnarfulltrúi, um reynslu sína af kulnun á málþingi
fræðslunefndar náttúrulækningafélags Íslands sem haldið var fyrir skömmu undir
yfirskriftinni Kulnun — einkenni, orsök og leiðir til bata fyrir fullu húsi. Á málþinginu
kom fram hve vandinn er víðtækur en allt að fimmti hver dvalargestur á heilsustofn-
uninni í hveragerði fer þangað í streitumeðferð.
Tilfellum kulnunar hefur fjölgað undanfarin ár en kulnun orsakast af langvarandi
streitu, hvort sem er í einkalífi eða vinnu. Mikilvægt er að fólk þekki einkenni kuln-
unar til að geta brugðist við áður en það verður óvinnufært. Þrátt fyrir að um sjö ár
séu liðin frá því að gréta fann fyrir fyrstu einkennum kulnunar hefur hún ekki náð
fullum bata. „Ég er ekki enn búin að ná mér en er á uppleið. Þetta var ekki eðlilegt
ástand. Ég var alltaf á hraðferð og á sjálfstýringu. Minni kynslóð var kennt að fara illa
með sig, að fara veik í vinnu og þeim mun veikari, þeim mun meiri töffari.“
gréta segir það hafa verið mikið átak að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum hvað
væri í gangi. „Við brennum ekki bara upp í starfi, það er svo margt annað.“ Á þeim
tímapunkti var hún hætt að komast fram úr rúminu og staðan orðin það slæm að hún
var fljótari að telja upp hvað væri ekki að. „Það gersamlega hrundi allt í líkamanum.
Þetta er mjög erfitt og skömmin er svo mikil! Ég veit hreinlega ekki hvernig ég komst
upp úr þessu. Ég myndi ekki einu sinni óska Donald Trump að lenda í „burnout“.“
gréta segir mikilvægustu skrefin í átt að bata vera að viðurkenna þetta fyrir sjálfum
sér og svo fyrir öðrum. Það hafi verið átak að fara meðvitað að hugsa vel um sjálfan
sig, eitthvað sem hún var ekki vön að gera. „Ég tala um fyrir og eftir hrun — maður
verður einlægari eftir þessa reynslu.“
Allir geta örmagnast!
Eygló guðmundsdóttir, doktor í heilbrigðisvísindum og sálfræðingur á heilsustofnun
í hveragerði, tók undir með grétu að því leyti að kulnunarhugtakið sé of mikið tengt
vinnu. Erindi Eyglóar fjallaði um hvernig lífsferðalag okkar getur leitt til örmögnunar
og það hét: allir geta örmagnast! Örmögnun er ástand sem hefur þróast eftir óeðlilega
mikið álag á löngum tíma, eða nokkurs konar lífsörmögnun. Eygló segir þetta tvennt,
kulnun og örmögnun, ekki vera það sama, heldur er örmögnun frekar viðbót. kulnun
er vel þekkt innan vinnusálfræðinnar og vísar til nokkurs konar örmögnunarástands
í kjölfar mikillar og viðvarandi streitu sem staðið hefur langan tíma út af starfinu.
hugtakið örmögnun er ástand sem hefur þróast á löngum tíma, líkt og kulnun, og
þarf alls ekki að tengjast starfi einstaklingsins, að sögn Eyglóar.
Gréta Kristjánsdóttir, fyrrverandi for-
varnarfulltrúi, var með reynslusögu
um kulnun.
Eygló Guðmundsdóttir, doktor í heil-
brigðisvísindum og sálfræðingur á
Heilsu stofnun í Hvera gerði.
Þetta er mjög erfitt og skömmin er svo mikil! Ég veit hreinlega ekki
hvernig ég komst upp úr þessu. Ég myndi ekki einu sinni óska
Donald Trump að lenda í „burnout“.