Fréttablaðið - 02.02.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Við hjálpum þér að leita réttar þíns
TORT
INNHEIMTA SLYSABÓTA
HAFÐU SAMBAND 511 5008UMFERÐARSLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS
Átt þú rétt á slysabótum?
HEILBRIGÐISMÁL „Það sem okkur
finnst rosalega alvarlegt er að mark-
aðssetningin á orku- og íþrótta-
drykkjum er svo röng,“ segir Jóhanna
Bryndís Bjarnadóttir, formaður
Tannlæknafélags Íslands. Í dag hefst
tannverndarvika Tannlæknafélags
Íslands og Landlæknis. Þar er sérstök
áhersla lögð á orkudrykki.
„Hvað varðar glerungseyðingu
tanna þá eru sykurlausir orku-
drykkir alveg jafn glerungseyðandi
og sykraðir drykkir,“ segir Jóhanna.
Vilhelm Grétar Ólafsson, lektor
við tannlæknadeild Háskóla Íslands
og sérfræðingur í tannfyllingum og
tannsjúkdómafræði, segir mikla
aukningu á glerungseyðingu hjá
unglingum og ungu fólki.
„Þetta er hálfgerður faraldur,“
segir Vilhelm. Tímabært sé að vekja
athygli á málinu. „Orkudrykkir eru
gríðarlega vinsælir hjá ungu fólki og
glerungseyðing er ofboðslega algeng
hjá sama hópi.“
Að sögn Vilhelms stendur stórum
stöfum á mörgum orkudrykkjum að
þeir séu sykurlausir. Því álíti fólk þá
hættulausa.
„En glerungseyðing er ekki eins og
tannskemmdir sem er hægt að bora
burt og fylla upp í, þarna erum við að
tala um eyðingu á tannvef og hann
vex ekkert aftur,“ segir Vilhelm.
Að sögn Vilhelms getur vandinn
náð yfir allar tennurnar. „Við erum
að tala um svakalega umfangsmiklar
og kostnaðarsamar viðgerðir sem
fylgja þessu. Það er ekki gott vega-
nesti út í lífið að vera búinn að klára
nánast allan glerung fyrir tvítugt.“
Vilhelm og Jóhanna segja mark-
aðssetningu orkudrykkja varhuga-
verða. Stór hópur fólks sem hugi vel
að heilsunni drekki þá án þess að
hugsa um áhrif þeirra á tannheilsu.
„Þetta á líka við um drykki sem
fólk drekkur fyrir æfingar eins og
Amino og slíka drykki. Orkudrykkir
eru langflestir mjög súrir og vondir
fyrir tennurnar. Svo horfa ungling-
arnir á auglýsingar þar sem afreks-
íþróttafólk neytir slíkra drykkja og
þeir trúa því að sjálfsögðu að þeir
séu hollir og stuðli að hreysti,“ segir
Jóhanna.
Aðspurður að því hvort fólk sem
neytir slíkra drykkja geti fyrirbyggt
glerungseyðingu segir Vilhelm
vatnsdrykkju besta kostinn.
„Við bendum þó á neyslu í hófi og
ef þú ert að drekka súra drykki er
alltaf betra að drekka þá með röri,
þá fer þetta fram hjá tönnunum
og beinustu leið ofan í vélinda og
tennurnar verða síður fyrir barðinu
á sýrunni,“ segir Vilhelm. Gott sé
að skola munninn með vatni eftir
neyslu orkudrykkja. „Því að þetta
liggur á tönnunum lengi eftir að þú
ert búinn að fá þér sopa. Svo er gott
að fá sér eitthvað kalkríkt líkt og ost
eða mjólk.“ – bdj
Orkudrykkir
skaða tennur
hjá ungu fólki
Formaður Tannlæknafélags Íslands og lektor við
tannlæknadeild Háskóla Íslands segja mikla aukn-
ingu á glerungseyðingu hjá unglingum og ungu
fólki sem rekja megi til neyslu súrra orkudrykkja.
Hvað varðar
glerungseyðingu
tanna þá eru sykurlausir
orkudrykkir alveg jafn
glerungseyðandi og sykraðir
drykkir.
Jóhanna Bryndís
Bjarnadóttir,
formaður Tann-
læknafélags
Íslands
BREXIT Þrátt fyrir útgöngu Breta
mun ESB áfram mynda innri markað
með 450 milljónir borgara og meira
en 20 milljónir fyrirtækja og verður
áfram, sem fyrr, stærsti veitandi þró-
unaraðstoðar í heiminum. ESB muni
áfram vinna að því að gera heiminn
öruggari og sanngjarnari.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í grein Joseps Borrell, utan-
ríkismálastjóra Evrópusambandins,
og Michels Barnier, aðalsamninga-
manns ESB við Bretland, í Frétta-
blaðinu í dag.
Einnig vekja þeir máls á mikilvægi
samstöðu ríkja á tímum loftslags-
breytinga, tölvuglæpa, hryðjuverka
og ójöfnuðar. Þeir benda á að því
meira sem Bretland geti unnið í takti
við ESB og við aðila um allan heim,
því meiri möguleikar séu á skilvirkni
í þessum málum. Sjá síðu 9
Við skorumst ekki undan
Hildur Guðnadóttir hlaut í gærkvöldi BAFTA-verðlaunin fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Hildur hefur
hlotið fjölda verðlauna fyrir tónlist sína og er hún einnig tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem veitt verða 10.
febrúar. Hildur gæti þá orðið fyrsta konan til að hljóta Óskar í f lokki kvikmyndatónlistar. NORDICPHOTOS/GETTY