Hugur og hönd - 01.06.2010, Side 8
Katrín Úlfarsdóttir
Handverkshátíðin að Hrafnagili
- nokkrir fróðleiksmolar úr 17 ára sögu
Ljósmyndir Karl Frímannsson
Handverkshátíðin við Hrafnagil í
Eyjafjarðarsveit hefur fyrir löngu unnið
sér fastan sess í fjölbreyttu viðburðadaga-
tali sumarsins. Hátíðin hefur vaxið með
þeirri miklu grósku sem er í hönnun og
handverki, almenningur er áhugasamur
og tekur góðum hugmyndum og nýstár-
legu hráefni vel. Sumarið 2009 var hand-
verkshátíðin haldin í sautjánda sinn en
þá tóku yfir hundrað einstaklingar, félög
og fyrirtæki þátt og gestir voru hátt í
tuttugu þúsund. Fátt bendir til annars en
að hátíðin verði um ókomin ár spenn-
andi vettvangur handverksfólks.
Rúningsmeistari og spunakona að störfum á sýningunni 2009.
Upphafið
Handverkshátíðin rekur sögu sína til
upphafs tíunda áratugar síðustu aldar. Þá
stóðu sveitarfélög víða um land fyrir
átaksverkefnum þar sem heimafólk var
vakið til umhugsunar um atvinnusköpun
heima í héraði. Ahersla var lögð á
atvinnumál kvenna til sveita og í fram-
haldinu var hrundið af stað mörgum
nýjungum til að skapa fleiri atvinnutæki-
færi. I kjölfarið spruttu upp handverks-
hópar og handverkshús víða um land, sem
mörg hver eru enn starfandi.
Um svipað leyti varð hugarfarsbreyting
gagnvart handverki. Þeir sem áður höfðu
af eigin áhuga viðhaldið gömlum vinnu-
aðferðum fóru að þróa nýjar aðferðir í
bland við þær eldri, skapa nýjungar og
miðla þekkingunni til annarra. Það við-
horf hafði verið ríkjandi að einstaklingar
gætu ekki búið til söluvöru úr handverki
og haft af því tekjur sér til framfærslu
heldur aðeins vasapening til að auka
ánægju sína af þessu frístundagamni. Tími
var kominn til breytinga á því viðhorfi.
Atvinnusköpun fyrir konur í
dreifbýli
Eyjafjarðarsveit stóð að átaksverkefninu
Vaka með stuðningi þáverandi Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar síðla árs 1991.
Grýtubakkahreppur, Hálshreppur og
Svalbarðsstrandarhreppur tóku einnig
þátt í verkefninu. Ur sveitarfélögunum
fjórum var fólk valið af handahófi til að
taka þátt í skipulagðri hugmynda- og
hópavinnu með það að markmiði að efla
atvinnusköpun. Einn hópurinn fjallaði
um handverk og skoðaði atvinnutækifæri
tengd því.
Upp úr hópastarfinu var handverks-
hópurinn Hagar hendur í Eyjafjarðarsveit
stofnaður snemma árs 1992 með það
aðalmarkmið að framleiða og selja hand-
unna vöru. Elín Antonsdóttir, atvinnu-
ráðgjafi hjá Iðnþróunarfélaginu, stýrði
átaksverkefninu Vaka og það kom í
hennar hlut að fylgja Högum höndum
úr hlaði. Ein úr handverkshópnum,
Petrea Hallmannsdóttir, varpaði fyrst
Séðyfir íþróttasalinn við Hrafnagilsskóla. Þar er þröngt á þingi sýningardagana. Frá sýningunni 2009.
8
HUGUROG HÖND2010