Hugur og hönd - 2018, Síða 13

Hugur og hönd - 2018, Síða 13
24 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 25 Faldbúningur 18. aldar Faldbúningur í líkingu við þá sem íslenskar konur klæddust á 17. og 18. öld. Krókfaldurinn var áður vafinn úr nokkrum hvítum tröfum en er nú oftast útbúinn eins og hattur og klút vafið um hann neðst. Búningurinn er efnismikill. Pilsið er sítt, vítt og fellt undir streng úr ullarklæði eða vaðmáli. Það er blátt, rautt, grænt eða dökkt að lit. Svuntan er laus, úr sambærilegu efni en oft í öðrum lit en pilsið. Að neðan eru pils og svuntur brydduð og skreytt leggingum, kniplingum eða útsaumuðum blómstur- bekkjum. Upphlutur er úr klæði eða flaueli oftast rauður, grænn eða blár. Kræktur saman að framan eða reimaður með millum og millupörin aldrei færri en fimm en geta verið fleiri. Borðar á boðöngum eru vírborðar eða baldýraðir. Treyjur eru þröngar og síðerma, stundum með upp- slögum. Þær eru skreyttar á boðöngum með borðum, baldýringu eða flauelsskurði og með leggingum yfir saumum. Um háls er silkiklútur og stífur kragi skreyttur með baldýringu, knipli, flauelsskurði eða perlusaumi. Mikið silfur fylgir oft faldbúningum, belti, háls- festar og hnappar. Faldbúningur Ingibjargar Ágústsdóttur er með silkibaldýruðum borðum á upphlut og treyju. Bekkir á pilsi og svuntu eru kniplaðir úr örfínum ullarþræði og kniplingar eru einnig á belti. Blómstursaumaðir bekkir. Svuntan á 18. aldar faldbúningunum er oft í ólíkum lit og pilsið og munsturbekkur svuntunnar er venjulega breiðari en sá á pilsinu. 19. aldar faldbúningur Í stað falda hafa konur notað skotthúfur hversdags, ekki síst þegar líða tók á. Treyjur eru sem fyrr skreyttar á boðöngum með vírborðum eða baldýruðum borðum eða borðum með flauelsskurði sem gat verið perlusaumaður eða lagður vírsnúru. Búningurinn er efnisminni en eldri búningar. Í stað pils með lausri svuntu er samfella. Á sam- fellum er markað fyrir svuntu framan á pilsinu með bryddingum báðum megin. Faldbúningur Eydísar Gauju Eiríksdóttur er lagður borðum og með knipluðu belti.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.