Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 2
Við sem hér búum viljum meina að þetta séu einstaklega vel gefin dýr og því sé þess virði að gera þeim hátt undir höfði. Ívar Ingimarsson, gistihúsarekandi Sala á hveiti jókst um 360 prósent í marsmánuði miðað við síðasta ár. Veður Norðaustan 20-28 m/s og allvíða talsverð snjókoma. Frost 1 til 7 stig. Snýst í hægari suðaustanátt með rigningu og hlýnar sunnan- og austanlands síðdegis og í kvöld. SJÁ SÍÐU 16 Tæknin nýtt til að ryðja veginn Í miðjum kórónaveirufaraldri Íslands varaði Veðurstofan við stórhríð sem gekk yfir landið og snjóaði hressilega á höfuðborgarsvæðinu. Það stöðv- aði ekki þennan herramann sem greip til snjómoksturstækis til að ryðja veginn í garðinum og nutu nágrannar hans eflaust góðs af því í gær. Þetta ætti að vera í síðasta sinn sem þetta tæki er notað í bili því samkvæmt veðurspánni á að hlýna þegar líða tekur á vikuna . FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK AUSTURLAND Stór járnskúlptúr af hreindýrstarfi verður settur upp á Egilsstöðum. Verður þetta gjöf atvinnurekenda á staðnum til bæjarins en fyrirmyndin er fengin frá Spáni. Hvatafólkið að uppsetningunni eru hjónin Ívar Ingimarsson og Hrefna Arnar, sem reka gistihúsin Olgu og Birtu, í bænum. „Konan mín á hugmyndina að þessu. Fyrir þó nokkru  ræddum við um að gaman væri að setja upp einhverja hluti í bænum til að horfa á, svo sem listaverk. Hugmyndin spratt upp frá stóru tuddunum sem sjást oft með fram vegum á Spáni,“ segir Ívar, sem á að baki farsælan knattspyrnu- feril í Englandi og með landsliðinu. Eru þetta hin svokölluðu Osborne naut, sem upprunalega voru aug- lýsingar fyrir brandí en hafa síðan öðlast sjálfstætt líf sem táknmynd spænsku þjóðarinnar. Hreindýrið var augljós valkostur í þessu samhengi, enda lifa hrein- dýrin aðeins villt á Austurlandi og hafa orðið táknmynd svæðisins. „Við sem hér búum viljum meina að þetta séu einstaklega vel gefin dýr og því sé þess virði að gera þeim hátt undir höfði,“ segir Ívar. „Egilsstaðir eru talinn hreindýra- bær Íslands og hér ganga þau villt í gegnum miðbæinn.“ Beiðni um uppsetningu skúlp- túrsins var send inn í mars og var hún samþykkt á skömmum tíma. Mun hann rísa á klettum fyrir ofan tjaldsvæði bæjarins, skammt frá miðbænum. Ívar segir að staðurinn hafi verið valinn út frá mati sér- fræðinga, til að skúlptúrinn sæist sem best. Útfærslan sjálf var einnig unnin með sérfræðingum. Rætt var um að hafa heila hjörð hreindýra en loks ákveðið að hafa eitt stórt dýr, í 150 prósent stærð. „Það var lögð vinna í að finna hinn fullkomna tarf,“ segir Ívar. Að útfærslunni komu Skarphéðinn G. Þórisson, hreindýrasérfræðingur hjá Nátt- úrustofu Austurlands, Reimar Ásgeirsson uppstoppari og Jón Baldur Hlíðberg, sem þekktur er fyrir teikningar sínar af íslenskum náttúrufyrirbærum. Skúlptúrinn verður ekki aðeins settur upp fyrir heimamenn til að njóta, heldur einnig gesti og ferða- menn til að minna á þessa sérstöðu svæðisins. Fjármögnun verkefnisins hefur gengið mjög vel og fyrirtæki á svæðinu tekið þátt. „Við lítum á þetta sem gjöf fyrirtækjanna til bæjarins,“ segir Ívar. Stefnt var að því að setja skúlp- túrinn upp fyrir sumarið en vegna COVID-19 mun það að öllum lík- indum frestast. Þegar er búið að gera líkan af skúlptúrnum til að máta við staðinn. kristinnhaukur@frettabladid.is Skúlptúr af hreindýri að hætti Spánverja Hjón sem reka gistiheimili á Egilsstöðum höfðu frumkvæði að því að reisa stóran járnskúlptúr af hreindýrstarfi, á hæð í bænum. Hugmyndin kom frá stóru nautunum sem standa við spænska þjóðvegi og eru auðþekkjanleg. Það þótti táknrænt að velja hreindýr enda lifa þau víða á Austurlandi. VEÐUR Þeir sem gerðu sér ferð út á land um helgina lentu margir í því að festast. Í gær gekk stórhríð yfir landið og varð víða ófært. Ekkert ferðaveður var á Norðaustur- og Suðurlandi né á Vestfjörðum. Þá var ákveðið að loka þjóðveginum undir Eyjafjöllum og í Öræfum en einnig í uppsveitum Suðurlands. Að sögn Björgunarsveitarinnar bárust fyrstu beiðnirnar um hjálp á laugardagskvöld og var nóg að gera í hinum ýmsu verkefnum langt fram eftir kvöldi í gær. – kpt Margir fastir af völdum veðurs Þessir ferðamenn festu Ford Focus. SAMFÉLAG Sala á hveiti hjá Líflandi, sem framleiðir Kornax-hveitið, hefur margfaldast undanfarnar vikur. Að sögn Þóris Haraldssonar, forstjóra Líflands, er skýringin aug- ljós – almenningur heldur sig heima við og og frítími fólks er meiri en áður. „Starfsfólk okkar hefur haft í nægu að snúast undanfarnar vikur,“ segir Þórir. Að hans sögn nam sölu- aukningin á hveiti í neytendaum- búðum um 360% í marsmánuði miðað við sama tíma í fyrra. Þegar hveitið fór að rjúka úr hillum verslana héldu starfsmenn Líflands að fólk væri mögulega að hamstra hveiti. Að um stóran hvell væri að ræða í nokkra daga en síðan færri salan aftur í sama horf eða jafnvel minnkaði tímabundið. Sú hefur þó ekki verið raunin. Salan hefur haldið áfram að vera góð síð- ustu vikur og almenningur virðist einfaldlega vera að baka sem aldrei fyrr. „Við erum með þá kenningu að það sé ekki síst ungviðið sem fær að baka með foreldrunum. Margar fjölskyldur eru heima við og því getur bakstur verið róleg afþreying fyrir alla fjölskylduna. Við teljum því að það sé að vaxa úr grasi kyn- slóð handverksbakara,“ segir Þórir kíminn. Bakstur í heimahúsum virðist þó ekki benda til þess að Íslendingar séu tímabundið hættir að sækja sér brauð og sætmeti í bakarí landsins því að sögn Þóris hefur salan til atvinnumannanna haldist eins. Þórir ítrekar þó að Lífland sé með góða birgja og engin hætta á því að skortur verði á hveiti í bráð. – bþ Sala á hveiti margfaldast á síðustu vikum 6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.