Fréttablaðið - 06.04.2020, Side 8

Fréttablaðið - 06.04.2020, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það eru ekki bara furðu- fuglar sem hafa af þessu áhyggjur, þetta er vert áhyggjuefni fyrir alla menn. Leiðin út úr þessu byggir á því að verja og efla velferðar- kerfið. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Performer Deluxe GBS Verð: 82.200 kr. Einhvern tíma var sagt að það væri hollt að hafa áhyggjur. Þá héldu menn vöku sinni og gerðu sitt til að hafa áhrif á framvind-una. Ef það var á annað borð hægt. Það er óvíst að þetta sé djúp speki.Það er ýmislegt sem vert er að hafa áhyggjur af og enn fleira sem menn hafa áhyggjur af en geta lítið gert við. Kóvið er auðvitað það sem hæst skorar á áhyggjulista flestra eins og mál standa. Það er margskrifað og margtuggið að þeir sem hefðu lýst þeim hamförum fyrir fram sem við nú erum að upp- lifa hefðu verið taldir geggjaðir. En það er fátt sem við sauðsvartur almúginn getum gert varðandi kóvið, annað en að gera eins og okkur er sagt og gegna. Einhverjum finnst ekki taka því að hafa áhyggjur af málum nema maður hafi tök á að aðhafast eitthvað eða hafa áhrif á framvindu þeirra. Nóg sé af öðrum málum sem hægt sé að hafa áhyggjur af og hægt að láta til sín taka. Í Fréttablaðinu undanfarið hafa birst frétta- skýringar um loftslagsmál og afleiðingar hirðuleysis okkar mannanna í umgengni við jörðina, þar sem við erum gestir um skamma hríð en bíum allt út og skiljum eftir okkur slóð af sora og eyðileggingu. Tómas orti um Hótel Jörð og lýsti líkindunum milli jarðarinnar og hótels. Það er vel lukkuð samlíking sem fleiri hafa gripið til. En það er vert að hafa áhyggjur af loftslagsmálum. Það er vert að halda vöku sinni yfir þeim. Það er vert vegna þess að við getum gert eitthvað til að að sporna við. Við getum aðhafst. Við þurfum að láta af dólgslegri hegðan í umgengni okkar við náttúru og jörð. Með því getum við sannar- lega breytt og lagað. Með því getum við tryggt að þær raðir kynslóða sem á eftir okkur munu koma geti átt hér fagurt og innihaldsríkt líf. Stundum gleyma menn því að það koma fleiri hingað eftir að við erum farin. Að hiti vaxi, að sjávarborð hækki og jöklar minnki er ekki gamanmál, þó að jafnvel sumir hendi að því gaman. En það er hægt að gera eitthvað í því. Það eru ekki bara furðufuglar sem hafa af þessu áhyggjur, þetta er vert áhyggjuefni fyrir alla menn. Sjö milljarðar manna eiga undir því að við lögum til í umgengni okkar við jörðina. Við þurfum að tryggja að komandi kynslóðir geti, eins og við, lagst í grænan mó og andað að sér fersku lofti og fundið ilminn af grasinu og hlustað á fuglana syngja og flugurnar suða. Stinga upp í sig sætu punt- strái eða súru. Þessu öllu getum við breytt og lagfært. Það er ekki hlaupið að því en það er samt hægt. Það er verðugt því börn okkar, barnabörn og komandi kynslóðir munu byggja þessa jörð. Og hún verður ekki í betra formi en við skiljum við hana. Það má finna sér ýmis áhyggjuefni um þessar mundir, en sennilega er þetta það sem er mest áríðandi. Þessu er hægt að breyta. Áhyggjurnar Umræðuefnið Svo virðist sem landsmenn þyrsti í eitthvað annað til að lesa og tala um en faraldurinn. Það sést best á „Mest lesið“ listum vefmiðlanna, í gær höfðu lesendur Vísis mikinn áhuga á fatahönnuði sem tók Íkarusinn á lífið. Mbl var með fótbolta- mann sem „brytjaði niður“ 17 ára dreng. Lesendur DV vildu sjá nýjan háralit hjá samfélags- miðlastjörnu. Og lesendur vefs Fréttablaðsins voru áhugasamir um myndband af Hollywood- stjörnu snúa niður konu í miðbæ Reykjavíkur. Eitthvað vakir yfir okkur því umræðuefni allra umræðuefna, veðrið, er nú svo sannarlega á dagskrá. Lóan er komin og grafin Tekið hefur að skyggja yfir húmor landsmanna, var hann ansi grimmur fyrir. Nokkrar hræður sáust á ferli í gær, ekki til að fá ferskt loft heldur til að leita að stað til að grafa lóuna sem álpaðist hingað um daginn. Í helgarblaðinu minnti hjúkr- unarfræðingur okkur á að vera með hinstu óskir ástvinanna á hreinu. Spruttu upp umræður á nokkrum heimilum um hvort það væri þess virði að lifa á vökva með hjálp tækja. Niður- staðan var iðulega að halda áfram að sötra rauðvín og hafa kveikt á sjónvarpinu. arib@frettabladid.is Við erum stödd í miðjum heimsfaraldri sem hefur áhrif á líf okkar allra. Við höfum breytt hegðun okkar, förum síður úr húsi, og sum ekki neitt, til að sinna því sem þarf að sinna, til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar. Efnahags- legar afleiðingar eru þegar farnar að hafa mikil áhrif og þau munu verða enn meiri. Tvennt er það sem helst mun koma okkur út úr þessu; þekking og velferð. Öllu skiptir að aðgerðir séu byggðar á þekkingu og mikilvægi þess félagslega undirlags sem er til staðar í samfélaginu er ljóst. Nægir í þessum efnum að bera saman stöðuna á Íslandi og í Bandaríkj- unum. Vestra hafa aðgerðir að miklu leyti byggst á tilfinningu forseta Bandaríkjanna. Sú tilfinning litast af óskum hans um það hvernig hann vildi að þetta væri, sem og þörf fyrir að nýta sér ástandið til að upphefja sjálfan sig. Það sést best á daglegum blaðamannafundum þar sem er engin lína um við- brögð, einn daginn er eitt sagt, þann næsta annað. Spá líkön og ráðleggingar vísindafólks eru dregin í efa og því haldið fram sem stjórnmálamaðurinn Trump telur að gagnist sér best hverju sinni. Íslensk stjórnvöld tóku þá ákvörðun að fylgja ráðum okkar helstu sérfræðinga á þessu sviði. Enginn í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er sér- fræðingur á sviði sóttvarna, en við erum svo heppin að eiga slíka á heimsmælikvarða. Á þeirra ráðum byggjum við. Þetta á einnig við um aðgerðir í efnahagsmálum. Þetta eru ekki tímar fyrir yfirboð eða spár sem byggja á tilfinningu. Við eigum að hlusta á sér- fræðinga, til dæmis þegar að peningastefnu kemur og því hvort líkur séu á verðbólgu, hvernig þurfi að styðja við launafólk og fyrirtæki. Leiðin út úr þessu byggir á því að verja og efla velferðarkerfið. Félagslega rekið heilbrigðiskerfi hefur sýnt kosti sína fram yfir það einkarekna. Við stöndum öll saman í þessu, leiðin út er leið sam- neyslunnar. Þekking og velferð Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna 6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.