Fréttablaðið - 06.04.2020, Síða 11

Fréttablaðið - 06.04.2020, Síða 11
Ert þú kannski sitjandi heima að lesa fréttir og finnst eins og að heimurinn sé að farast og að allt sé að fara á versta veg vegna COVID-19? Líður þér eins og þú getir ekki gert neitt við vandanum á meðan þú horfir á vandamálið stækka og stækka? Þannig líður mörgum vegna hamfarahlýnunar. Að horfa á allan heiminn bregðast við veirunni á augnabliki er sönnun þess að leiðtogar heimsins geta í raun og veru gripið til róttækra aðgerða ef viljinn er fyrir hendi. Alþjóðasamstarfið, og viðbragðs- hraðinn sem okkur var sagt að væri „ómögulegt“ er að gerast og er að virka vel. Heimurinn er í alvörunni að taka sig saman til að vinna gegn sameiginlegu vandamáli. En þar sem hamfarahlýnun er jafn stórt, ef ekki stærra vandamál, hvar eru róttæku aðgerðirnar gegn henni? Í mörg ár hafa loftslagsaðgerða- sinnar verið að kalla eftir aðgerðum strax. Og ár eftir ár hafa aðgerðir heimsins valdið okkur miklum vonbrigðum. Vísindamenn segja að við höfum minna en áratug til þess að algjörlega umbylta hag- kerfinu, fjárfesta í endurnýtan- legri orku og breyta matarvenjum okkar. Þrátt fyrir þessa miklu en jafnframt spennandi áskorun hafa leiðtogar heimsins ekki gert nóg og heimurinn því skrefi nær framtíð þar sem veðurhamfarir, súrnun sjávar, fjöldaflótti og stærsta efna- hagshrun mannkynssögu verður hluti af daglegu lífi jarðarbúa. Maður veltir fyrir sér: hvað ef við myndum bregðast við ham- farahlýnun með sama krafti og við bregðumst við COVID-19? Þau viðbrögð myndu líkjast því sem við erum að sjá núna, nema með jákvæðari formerkjum. Fréttaum- fjöllun allan sólarhringinn um þróun mála. Við hlustum á sér- fræðinga sem halda fréttafundi daglega og engir efasemdarmenn fá að afvegaleiða umræðuna, enda vísindi ekki skoðanamál. Olíu- vinnslu er hætt á augnabliki, ríki myndu kalla eftir vopnahléi og styrkja þau samfélög sem mest finna fyrir áhrifum hlýnunar. Þrátt fyrir mikla breytingu á daglegu lífi fólks er meirihlutinn sammála þessum róttækum aðgerðum þar sem þær tryggja framtíð næstu kyn- slóða. Hins vegar, í stað einangrandi sóttkvíar og samkomubanns, gætu viðbrögð heimsins við hamfara- hlýnun orðið til hins betra fyrir almenning. Fjárfestingar í grænum störfum og nýsköpun styrkja hag- kerfið, þjóðhátíðardagur þar sem allir planta trjám, og að við fögnum því að lifa jarðvænum og heilbrigð- um lífsstíl. Þetta eru meðal þeirra aðgerða sem Ísland gæti gripið til þar sem við erum ekki bara að koma í veg fyrir yfirvofandi heimskrísu, heldur líka að byggja upp betri heim. Svo, hvað gerum við nú? Nú hefur mengun í heiminum farið niður vegna lokana á stórum verk- smiðjum en með áhrifaríkri fjár- festingu í grænni tækni getum við látið hagvöxt rísa, en mengun halda áfram að minnka. Þegar við náum stjórn á COVID-19 getum við ekki haldið áfram lífinu eins og það var áður en þetta byrjaði. Við þurfum að snúa okkur að næstu krísu sem einfaldlega getur ekki beðið lengur. Í samfélaginu heyrum við margar sögur af fólki sem vinnur nú heima og er að njóta þess að draga aðeins úr hraðanum. Ég vona að við lærum af þessu að lífsgæði felast ekki endi- lega í því að þeysast um allt og kaupa hluti, heldur að njóta augna- bliksins. Oft eru það einföldu hlut- irnir heima sem gefa okkur mestu lífshamingjuna. Hvað ef við myndum bregðast við hamfarahlýnun af sama krafti? Eftir nokkurra ára þenslu á húsnæðismarkaði siglum við nú inn í efnahagslægð sem gæti varað í nokkur ár. Húsnæðis- markaðurinn sveiflast með ýktum hætti í efnahagssveiflum í takt við kaupmátt fólks. Eftir hrunið 2008 var mikið til af hálf- og fullbyggðu íbúðarhúsnæði og verð lágt. Þegar hagur tók að vænkast upp úr 2014, tæmdist sá lager f ljótt og undan- farin ár hefur húsnæði skort og verð verið hátt. Í efnahagslægðum hrynur bygg- ingariðnaðurinn og þekking, færni glatast, enda f lytja iðnaðarmenn margir úr landi. Þegar úr rætist tekur nokkur ár að safna kröftum, byggja upp og framleiða nægilegt magn til að svara eftirspurn. Af leiðingin er léleg framleiðni byggingariðnaðar, hátt kostnaðar- verð og í þenslu fer húsnæðisverð úr böndum. Þetta kemur illa niður á almenningi, sérstaklega „fyrstu Jöfnum sveiflur og lækkum verð Að horfa á heiminn bregðast við veirunni á augnabliki er sönnun þess að leiðtogar heimsins geta í raun og veru gripið til róttækra aðgerða ef viljinn er fyrir hendi. Gunnhildur Fríða Hallgríms- dóttir Með regluleg u millibili skjóta upp kollinum frum-vörp um aukið aðgengi að áfengi. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi leggur m.a. til að heim- ila inn lenda vef versl un með áfengi til neyt enda í smá sölu. Ef einhver leyfir sér að mótmæla þessu er sá hinn sami tafarlaust stimplaður með forræðishyggju og að vilja hefta frelsi annarra til að lifa lífinu á eigin forsendum. Örugg heimili Gott og vel, það eru rök út af fyrir sig, en er þetta svona einfalt? Hvað með rétt barna til að lifa í öryggi á heimilum sínum? Sjúkraskýrslur frá Vogi sýna að næstum þriðji hver karlmaður og rúmlega tíunda hver kona hérlendis leitar sér aðstoðar vegna alkóhól- isma einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta fólk kemur úr öllum lögum samfélagsins og tengist öðrum fjölskylduböndum sem foreldrar, börn, barnabörn og systkini. Mig langar að beina athyglinni að við- kvæmasta aðstandendahópnum, þ.e. börnum alkóhólista. Börnum og ungmennum sem ekki geta geta borið hönd fyrir höfuð sér og eru núna þessa dagana í mörgum til- fellum meira inni á heimilunum með foreldrum sínum en ella. For- eldrum, sem auk þess að vera með áhyggjur af heilsu fjölskyldunnar og lífsviðurværi, berjast við eigin fíkn. Skömmin og óöryggið Setjum okkur í spor lítils barns sem elst upp við það að sá aðili sem það elskar mest og setur traust sitt á bregst traustinu reglulega. Mamma eða pabbi sem barnið elskar án skil- yrða breytist skyndilega úr því að vera góða trausta foreldrið í að vera drukkið, óáreiðanlegt og jafnvel of beldisfullt. Það að alast upp við alkóhólisma markar djúp spor í sálarlíf barna og í mörgum tilfellum eiga þau börn mjög erfitt uppdráttar síðar á lífs- leiðinni. Skömmin læðist inn í vit- undina, skömm sem veldur því að barnið forðast að tala um það sem gerist heima. Barnið felur ástandið eftir bestu getu og skaðleg með- virkni tekur völd. Það býður jafn- vel ekki vinum heim því hvað er verra en að afhjúpa ástkært foreldri dauðadrukkið heima? Aukin áfengissala Barnaverndaryfirvöld hafa áhyggj- ur af því að tilkynningum til barna- verndar hefur fækkað umtalsvert eftir að COVID-19 faraldurinn kom upp. Á sama tíma berast fréttir frá vínbúðunum um mikla aukningu á sölu áfengis. Aukningin fyrstu þrjár vikurnar í mars er um 20% samanborið við sama tíma í fyrra og það þrátt fyrir mikla fækkun ferðamanna. Er skynsamlegt í slíku ástandi að bæta aðgengi að áfengi í gegnum netið með heimsendingar- þjónustu? Á vef Landlæknisembættisins kemur fram: „Aukið aðgengi að áfengi, sem leiðir til aukinnar áfengisneyslu, er líklegt til að auka tíðni einstaklingsbundinna og samfélagslegra vandamála sem geta tvöfaldað samfélagslegan kostnað vegna áfengisneyslu.“ Þar segir enn fremur: „Rannsóknir á aðgengi áfengis sýna að takmörkun afgreiðslutíma, fjölda söludaga og á fjölda sölustaða helst í hendur við minni neyslu og minna tjón af völdum hennar.“ Hlustum á landlækni Hlustum á landlækni, ekki bara þegar málið snýst um COVID-19 far- aldurinn, heldur líka þegar kemur að þeirri alvarlegu lýðheilsuvá sem ofneysla áfengis er. Eiga börn þessa lands það ekki skilið? Áfengisfrumvarpið og börn alkóhólista Bjartey Sigurðardóttir talmeina- fræðingur hjá mennta- og lýðheilsusviði Hafnarfjarðar Guðjón Sigurbjartsson viðskipta- fræðingur Hannes Jónsson framkvæmda- stjóri í bygg- ingariðnaði kaupendum“ sem festast á leigu- markaði, búa þétt í lélegu húsnæði eða sitja fastir í foreldahúsum. Stærð vandans Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) á að „stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja almenningi aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem er til eignar eða leigu“. HMS áætlar langtíma þörf fyrir íbúðar- húsnæði um 2.200 nýjar íbúðir á ári. Ætla má út frá sögunni að í lægð- um fari eftirspurn niður í um 1.000 íbúðir á ári en í þenslu gætu yfir 5.000 íbúðir selst. Hvað er til ráða? Í rauninni dugar ekkert til að lækka meðalverð íbúðahúsnæðis annað en hæfilegt, jafnt framboð. Gefum okkur að byggingariðn- aðurinn framleiði 2.200 íbúðir á ári hvernig sem efnahagsástandið er, að kostnaðarverð meðalíbúðar sé 40 milljónir króna og að efnahags- sveif lur séu 7 ár. Miðað við ofan- greindar sveiflur í eftirspurn myndi „lager“ íbúðarhúsnæðis vaxa frá 0 upp í um 3.000 mest. Kostnaðar- verðmæti lagersins færi þá upp í um 100 milljarða króna. Skattgreiðendur leggja árlega fram um 15 milljarða króna í hús- næðisstuðning í formi vaxtabóta, húsaleigubóta og beins stuðnings við fyrstu íbúðarkaup og geta vart mikið meira. Lífeyrissjóðirnir hins vegar, þurfa að ávaxta stóran hluta eðli- legs sparnaðar í landinu og þeirra hlutverk er að bæta lífskjör almenn- ings. Þeir hafa fjárhagslega getu til að leysa vandann. Lífeyrissjóðir ættu einnig að hafa ástæðu og vilja til að stíga hér inn því ef tekst að jafna sveiflur í bygg- ingariðnaði myndi meðalkostn- aðarverð íbúða lækka um 10 til 15% því þá verður hægt að vinna jafnt og þétt og skipuleggja sig til langs tíma. Þá myndi jafnt framboð lækka verð í þenslu um önnur 10 til 15%. Það er því mikið í húfi fyrir almenning og byggingariðnaðinn. Lífeyrissjóðirnir gætu stofnað byggingafélög, samið við starfandi félög og við verkfræðistofur um byggingu hæfilegs magns af íbúðar- húsnæði eftir spá HMS um heildar- þörfina. Þeir ættu auðvitað ekki að byggja allt það húsnæði sem þörf er á heldur heppilegt hlutfall sem gæti verið um 1/3 af heildarþörf- inni. Byggingafélögin ættu að vera í hlutverki skipuleggjenda og verk- kaupa og ættu með gagnsæjum og styrkum hætti að bjóða byggingar- vinnuna sjálfa út til verktaka. Vegna fjárhagslegs styrkleika þyrftu sjóðirnir ekki að selja undir kostnaðarverði í efnahags- lægðum en gætu selt mikið í upp- sveif lum þegar eðlilegt verð fæst. Þetta myndi tryggja þeim eðlilega ávöxtun. Til að örva sölu á krepputímum gætu byggingafélögin líka stundað „hlutdeildarsölu“, það er, haldið eftir 30-50% eignarhluta þar til betur stæði á hjá kaupandanum. Kostirnir Ef framleiðsla húsnæðis jafnast, safnast fyrir þekking, geta og færni í byggingariðnaði. Við það vex fram- leiðni og kostnaðarverð lækkar og meira starfsöryggi og starfsánægja fæst. Lífeyrissjóðirnir fengju verðugt verkefni fyrir sína fjármuni og landsmenn og trygga ávöxtun. Það sem mestu skiptir er þó ávinningurinn fyrir almenning sem ætti kost á íbúðum á 20% til 30% lægra verði en við núverandi aðstæður. Lífeyrissjóðirnir halda á megin- hluta af sparnaði almennings. Það er mikilvægt að þeir taki þátt í að bæta lífskjör fólksins í landinu, sérstak- lega ef því fylgir lítil áhætta eins og er í þessu tilviki því þeir hafa fjárhags- lega burði til að standa af sér jafnvel djúpar kreppur eins og þá sem við nú, því miður siglum inn í. Gangi allt í haginn! S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M Á N U D A G U R 6 . A P R Í L 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.