Fréttablaðið - 06.04.2020, Side 12

Fréttablaðið - 06.04.2020, Side 12
REYKJAVÍK SÍÐDEGIS Þorgeir, Kristófer, Þórdís og Bragi fara yfir málefni líðandi stundar. ALLA VIRKA DAGA MILLI 16:00 OG 18:30. 6 . A P R Í L 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Knattspyrnumenn í Eng­ landi eru að spila skrýtinn leik og eru á góðri leið með að missa allar vinsældir á þessum undarlegu tímum. Ólíkt kollegum sínum um Evrópu hafa enskir knattspyrnu­ menn ekki verið viljugir til að taka á sig launalækkanir. Enska deildin vill að leikmenn taki á sig 30 pró­ sent launalækkun sem myndi spara félögunum um 500 milljónir punda í launagreiðslur. Það fór eitthvað rangt ofan í gráðuga leikmenn og sendu þeir frá sér yfirlýsingu. Þar sagði meðal annars að leikmönnum finnist betra að halda laununum sínum óskertum því með launa­ lækkun myndi skatturinn missa um 200 milljónir punda. Slíkt væri skaðlegt fyrir heilbrigðiskerfið. Þá hefur Liverpool fengið hol­ skef lu af gagnrýni yfir sig eftir að félagið ákvað að nýta sér úrræði breska ríkissjóðsins og að starfs­ menn félagsins fengju greidd 80 prósent launa sinna úr ríkissjóði. Fyrrverandi leikmenn eins og Jamie Carr agher, Didi Haman, Stan Collymore og Danny Murphy hafa gagnrýnt ákvörðunina en Liver­ pool var fimmta félagið sem nýtti sér þessi úrræði. Áður höfðu Totten­ ham, Newcastle, Bournemouth og Norwich tilkynnt að þau ætluðu að nýta sér úrræðið. Liverpool til­ kynnti í febrúar að félagið hefði skilað 42 milljón punda hagnaði, um 7,4 milljörðum króna. Þó hafa nokkrir leikmenn í enska boltanum staðið sína plikt. David de Gea gaf til dæmis 300 þúsund evrur til Madrídarborgar sem eru um ein vikulaun. Ilkay Gundogan gaf fé til Heinsberg í Þýskalandi og Pep Guardiola gaf milljón evrur til sjúkrahúss í Barcelona. En þó gjafirnar séu stórar eru ekki margir sem taka þátt og það hefur farið illa í fólk í Bretlandi. Meira að segja Matt Hancock heilbrigðisráðherra skoraði á leikmenn á Englandi að leggja sitt á vogarskálarnar sem fór illa í leikmenn. Wayne Rooney brást illur við og skrifaði í vikulegum pistli sínum að Hancock væri að gera knattspyrnumenn að blóra­ bögglum. En landsliðsþjálfari Englands, Gareth Southgate, hefur nú stigið fram fyrir skjöldu og tekið á sig 30 prósenta launalækkun. Samkvæmt enskum fjölmiðlum er það um ein milljón punda eða um 176 milljónir króna. Southgate hefur gríðarlega gott orðspor og frá því hann tók við stöðunni hefur hann náð að sam­ eina liðið og stuðningsmennina. Southgate tók við enska lands­ liðinu árið 2016 eftir að Sam Allar­ dyce hafði drukkið starfið frá sér í hvítvíni. Hann þótti standa sig vel. Kom vel fyrir utan vallar og tókst að aga liðið. Klæddist vesti á HM í Rússlandi sem sló í gegn og þegar hann sagði eitthvað hlustaði mannskapurinn. Og nú þegar enginn vill hlusta á millj­ arðamæringa sem sparka bolta spá fjölmiðlar að leikmenn munu feta í fótspor landsliðsþjálfarans. benediktboas@frettabladid.is Ljósið í myrkri auðkýfinga Landsliðsþjálfari Englands, Gareth Southgate, tók á sig launalækkun um helgina. Leikmenn í ensku deildinni taka það ekki í mál og segja að það komi niður á heilbrigðiskerfinu. Fundir með ensku deildinni og leikmönnum hafa gengið illa. HETJA HELGARINNAR Gareth Southgate Fæddur 3. september 1970 og kom í gegnum unglingastarf Crystal Palace. Hann var keyptur til Aston Villa 1995 og spilaði til 2001 með liðinu. Hann endaði feril sinn með Middlesbrough en byrjaði stjóra- ferilinn með liðinu. Hann tók svo við U-21 árs liði Englands árið 2013 og var með liðið í þrjú ár áður en hann var færður í aðalliðið eftir skandalinn með Sam Allardyce. Það vilja allir gleyma Íslandsleiknum en Gareth minnti okkur á að til þess að komast yfir hluti þyrfti að ræða hvað fór úrskeiðis. Dele Alli Ég er raunsær og veit að hlutir breytast hratt. Almenningsálit skiptir miklu máli og það getur breyst á einni viku. Southgate um hvort hann yrði við stjórnvölinn á HM 2022. Southgate spilaði á sínum tíma 503 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 26 mörk. Hann lék 57 landsleiki og skoraði tvö mörk. Fyrrverandi miðvörður- inn var eini leikmaður Englands sem brenndi af í vítaspyrnukeppninni í undanúrslitaleik EM árið 1996 gegn Þýskalandi á heimavelli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.