Feykir - 03.01.2018, Blaðsíða 4
Arndís Björk Brynjólfsdóttir reiðkennari við FNV skrifar um þetta samstarf:
Samstarf Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
og Háskólans á Hólum
Samstarf skólanna hefur
staðið allt frá því að
tilraunakennsla á námsefni
Knapamerkjanna hófst í
kringum árið 2000.
Reiðkennarar Hólaskóla
hafa komið að
prófdæmingu verklegra
prófa í reiðmennsku við
FNV og einnig hafa
nemendur við
Hestafræðideild verið með
æfingakennslu við skólann.
Sú kennsla hefur ýmist
farið fram heima á Hólum eða á
Sauðárkróki og kennslustundirnar verið
bóklegar og verklegar, auk sýnikennslu.
Kennarar við báða skólana hafa fylgt
kennslunni eftir og komið að námsmati.
Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir hjá
nemendum okkar, enda stefna sumir þeirra
á áframhaldandi nám í hestamennsku við
Hólaskóla. Nemendurnir þurfa að skila
skýrslu eftir hverja heimsókn, og þar þurfa
þeir meðal annars að segja frá eigin
upplifun af kennslu Hólanemanna.
Eftirfarandi tilvitnanir eru sóttar í slíkar
skýrslur:
„Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og
gaman að brjóta aðeins upp og fá
hugmyndir og nýja gagnrýni ásamt nýjum
aðferðum. Það gekk mjög vel með minn
hest og kennarinn minn var mjög góður. Ég
lærði að treysta hestinum mínum honum
.... betur. Nota leiðandi taum betur. Svo
fékk fyrirlesturinn mig til að hugsa um
markmiðsetningu.“
„Fyrirlesturinn var mjög gagnlegur, mjög
gott að fara yfir grunnreiðmennsku og pæla
meira í henni. Sýnikennslan var fín og
reiðtíminn hjálpaði mér að hugsa meira um
ásetuna.“
Samstarfið milli skólanna er að mínu
mati mjög gagnlegt fyrir bæði skólastigin.
Að starfsmönnum beggja skóla gefist
kostur á að fylgjast með hvað verið er að
gera á hvorum stað fyrir sig. Einnig að
skiptast á skoðunum og áherslum. Með
þessu er verið að styrkja skólastarf hér á
svæðinu. Ef við eigum að halda áfram að
efla nám í hestamennsku og áhuga á
menntun í greininni held ég að þetta sé
mjög mikilvægt. Saman byggjum við
sterkari stoðir undir námið og aðgang að
því í okkar heimabyggð.
Arndís Björk Brynjólfsdóttir
reiðkennari við FNV
4 01/2018
AÐSENT Hlín Mainka Jóhannesdóttir BS - reiðkennari og verkefnastjóri Knapamerkja skrifar
Skemmtilegt samstarf um reiðkennslu
á milli skólastiga í Skagafirði
Reiðkennaranámið er mikilvægur
þáttur BS-náms í reiðmennsku og
reiðkennslu við Háskólann á Hólum
og fer fram jafnt og þétt yfir öll
þrjú námsárin. Nemendur læra að
kenna á nánast öllum
stigum reiðmennsku
og jafnframt með mis-
munandi fyrirkomulagi,
svo sem hópkennslu, ein-
staklingskennslu og að
halda sýnikennslu.
Knapamerkin liggja
til grundvallar reið-
k e n n s l u f r æ ð u n u m .
BS-nemendur læra að
kenna öll fimm stig
Knapamerkjanna og einnig
að dæma fyrstu þrjú stigin. Til þess
að æfinga-reiðkennslan endurspegli
raunveruleikann sem best, fyrir 15 - 20
reiðkennaraefni samtímis, þarf stóran
hóp nemenda á mismunandi getustigi.
Út frá þessari þörf hefur þróast frábært
samstarf á milli Hestafæðideildar
Háskólans á Hólum, allra grunnskóla
í Skagafirði og einnig Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra (FNV). Segja
má að allir aðilar njóti ávinnings af
þessu samstarfi, þar sem nemendur
úr grunnskólum og FNV fá fræðslu
um hesta og reiðmennsku, ásamt því
að kynnast betur háskólanum okkar í
Skagafirði. Nemendur Hólaskóla fá á
hinn bóginn fjölbreyttan hóp nemenda
á mismunandi aldri og getustigi, sem
reynir á kennslufærni þeirra.
Hvernig er reiðkennaranám við
Hestafræðideild Háskólans á
Hólum byggt upp?
Á fyrstu önn læra nemendur
grunnatriðin í reiðkennslu með því að
kenna samnemendum sínum náms-
þætti úr Knapamerkjum 1 og 2. Að
kenna knöpum sem eru í rauninni
á sama getustigi og sá sem kennir,
er góð leið til þess að brjóta ísinn og
ná grunnfærni í reiðkennslu. Næsta
skref er að kenna yngri nemendum,
sem hafa litla reynslu af hesta-
mennskunni, grunnatriðin úr fyrstu
tveimur Knapamerkjunum. Þá reynir
meira á reiðkennaraefnin að útskýra
á skiljanlegan hátt og við hæfi hvers
nemanda. Þetta er framkvæmt á annarri
önn BS-námsins, í umfangsmiklu
verkefni sem er fjögurrara daga
valnámskeið fyrir nemendur úr efri
bekkjum grunnskóla í Skagafirði.
Undanfarin ár hafa árlega 35-40
grunnskólanemendur tekið þátt í þessu
námskeiði heima á Hólum og er alltaf
mikið fjör og gaman á staðnum þessa
daga.
Grunnskólanemendurnir dvelja á
Hólum allan skóladaginn, og fá bóklega
kennslu hálfan daginn en verklega
hinn helming dagsins. Þeim er skipt
í hópa eftir getustigi og fá kennslu í
ýmsu tengdu hestum,
eins og fóðrun og
hirðingu, að ógleymdri
reiðmennskunni.
Fyrir nemendur Hóla-
skóla eru þetta annasamir
en lærdómsríkir dagar,
þar sem mikið þarf að
skipuleggja, sýna, og
útskýra. Síðasti dagurinn
er oftast settur upp með
ratleik og smalabraut, þar
sem reynir á að nemendur
sýni hvað þeir hafa lært
undanfarna daga.
Á öðru ári er viðfangsefni BS-
nemendanna að kenna aðeins vanari
knöpum. Áhersla er lögð á hópkennslu,
þar sem 3-6 knapar eru inni á
reiðsvæðinu í einu. Koma nemendur
hestafræðibrautar FNV þá nokkrum
sinnum heim að Hólum til þess að
fá reiðkennslu hjá Hólanemunum.
Þeir vinna saman í 5-6 manna
hópum og þurfa að skipuleggja
nokkrar kennslustundir í sameiningu.
Viðfangsefnin eru helstu atriðin úr
þriðja stigi Knapamerkjanna sem er
einmitt viðfangsefni nemendanna úr
FNV á sama tíma.
Hver og einn reiðkennaranemanna
kennir hluta hverrar kennslustundar,
en mikilvægt er að reiðtíminn myndi
eina heild fyrir knapana. Til þess að svo
verði þarf kennarahópurinn að vinna
vel saman, skipuleggja í þaula og ekki
síst fylgjast vel hver með öðrum.
Á þriðja námsári er mest áhersla
lögð á einkakennslu og sýnikennslu.
Á haustönn æfa kennaraefnin sig í að
kenna samnemendum sínum flóknari
atriði í reiðmennsku en á vorönn fara
þeir í reiðhöllina á Sauðárkrók og taka
þar nemendur úr FNV í einkakennslu.
Hlín Mainka Jóhannesdóttir,
BS - reiðkennari og
verkefnastjóri Knapamerkja