Feykir - 10.01.2018, Qupperneq 2
Jæja, þá eru blessuð jólin og áramótin liðin og sem betur
fer þekki ég engan persónulega sem hefur hlotið
varnalegan andlegan skaða af öllu því sem þeim fylgir, þó
ég telji fullvíst að einhverjum hafi orðið meint af.
Þær eru margar hætturnar sem
fylgja hátíðum eins og jólum og
áramótum. Fyrst má auðvitað
telja hið margumtalaða neyslu-
brjálæði sem færist nú hratt í
aukana hjá landanum og óvíst er
hvar endar. Vonandi ekki með
sama hætti og fyrir tíu árum
síðan þegar við keyrðum á vegg
og flöttumst út eins og Tommi
kallinn gerir svo oft þegar hann
er að eltast við Jenna. Sem betur
fór vorum við fljót að rakna úr rotinu, rétt eins og Tommi,
við hristum okkur bara aðeins, sáum fyrir okkur eitthvað af
sólum og stjörnum og vorum svo til í kapphlaupið aftur.
Vísbendingar um að við séum að ná fullri færni aftur má
finna í ýmsu, þá ekki síst jólaversluninni.
Öllu gjafaflóðinu sem tilheyrir jólunum fylgja líka
margar hættur. Við þekkjum öll umræðuna um
gjafamismunun jólasveinanna sem færa börnunum
glaðning í skóinn og er ekki vafi á að hún hefur í för með sér
mikil og djúp vonbrigði hjá mörgum. Og ekki er nokkur
vafi á því að fjölmörg börn hafa fengið í hendurnar jólagjafir
sem þau fá að nota eftirlitslaust þótt þau hafi engan þroska
til þess.
Og víkjum þá að grafalvarlegu máli. Hvað skyldu margir
einstaklingar hafa hlotið varanlegt tjón af öllum jóla-
böllunum sem æsku landsins er boðið upp á. Þá er ég ekki
að tala um börnin sem verða hrædd við jólasveininn og
grenja sig í svefn fram undir Jónsmessu. Ég er heldur ekki
að tala um allt sælgætið sem þessir misgáfuðu synir Grýlu
hrúga í börnin. Nei, málið er mun alvarlegra en nokkrar
svefntruflanir og sætindi geta verið. Ég er að sjálfsögðu að
meina jólsöngvana sem flytja blessuðum börnunum svo
andfemínískan boðskap að það hlýtur að kallast skandall að
ekki skuli hafa verið brugðist við af fullum þunga fyrr.
Hvernig á nokkurt barn að geta sloppið óskaddað frá því að
heyra um mömmu stússast í eldhúsinu meðan pabbi getur
bara verið að snurfusa sig inni í svefnherbergi. Sem betur
fer kallar hann í Sigga og lætur hann leita að flibbahnappn-
um en ekki þær Sollu og Gunnu sem komnar eru í nýja skó
og bláan kjól.
Það er greinilegt að ég þarf að fara að skoða í sálarfylgsn-
in og kanna hvaða misfellur í persónuleika mínum jóla-
söngvar bernskunnar hafa orsakað.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
Hættur um hátíðar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Fáir bátar voru á sjó í síðustu viku. Á
Skagaströnd lönduðu sjö bátar tæpum 55
tonnum, tæplega 213 tonn bárust til hafnar á
Sauðárkróki með tveimur fleyjum og tveir
bátar lönduðu sex tonnum á Hofsósi. Heildar-
afli vikunnar á Norðurlandi vestra var 273.649
kíló. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 31. desember 2017 – 6. janúar 2018
Málmeyjan landaði 212 tonnum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 3.055
Álfur SH 414 Landbeitt lína 13.361
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 2.715
Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 18.470
Magnús HU 23 Landbeitt lína 9.859
Onni HU 36 Dragnót 4.442
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 2.946
Alls á Skagaströnd 54.848
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Þorskfiskinet 1.154
Málmey SK 1 Botnvarpa 211.562
Alls á Sauðárkróki 212.716
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 3.828
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 2.257
Alls á Hofsósi 6.085
90 ára saga Kvenfélagsins Heklu
Bókaútgáfa í Skagabyggð
Kvenfélagið Hekla í
Skagabyggð var stofnað 28.
ágúst 1927 af 14 konum yst í
gamla Vindhælishreppi. Það
hefur í 90 ár unnið að ýmsum
framfaramálum og lagt
mörgum góðum málum lið.
Félagið stóð m.a. fyrir
kaupum á vefstólum,
prjónavél og spunavél á fyrstu
árum félagsins. Þá stóðu
kvenfélagskonur fyrir merku
átaki í vegagerð á Skaga á 4.
áratug síðustu aldar og var
því átaki reistur minnisvarði
sem vígður var 2. júlí 1989.
Líkt og önnur kvenfélög
landsins voru helstu mál kven-
félagskvenna þá og eru enn, að
styðja við þá sem minna mega
sín, stuðla að ýmsum fram-
faramálum er snerta heimili og
íbúa svæðisins sem og fjöl-
breyttar fjáraflanir og sam-
komur. Má þar nefna réttar-
kaffisölu, basara, jólaböll og
jólahlaðborð.
Í ársbyrjun 2018 eru kven-
félagskonur tólf talsins. Félags-
fundir eru haldnir nokkrum
sinnum á ári. Starfsstöð
kvenfélagsins er í félagsheimilinu
Skagabúð. Helstu viðburðir í
starfsemi félagsins eru hátíðar-
Saga kvenfélagsins Heklu er skrifuð af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd og
kostar litlar 3.000 kr. AÐSEND MYND
> frh. af forsíðu
Framtíðarstaðsetning óljós
Sigurjón segir að Heilbrigðis-
eftirlitið hafi þrýst á úrbætur á sl.
árum og hafi Olís brugðist vel
við því, m.a. kynnt nokkrar
áætlanir um framtíðarstað-
setningu á nýrri stöð félagsins á
Sauðárkróki. „Þegar ljóst var að
bið yrði á að ný stöð yrði reist,
fór Heilbrigðiseftirlitið fram á að
núverandi starfsstöð félagsins
yrði bætt. Í framhaldinu kynnti
Olís úrbætur á stöðinni sem
Heilbrigðiseftirlitið samþykkti.
Umsókn Olís um endurbætur á
stöðinni var lögð fyrir bygginga-
nefnd Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar sem hafnaði erindinu á
fundi dags. 25. 10. 2016, á þeim
grundvelli að uppbygging stöðv-
arinnar samræmdist ekki skipu-
lagsáætlunum. Þess ber að geta
að nú í janúar 2018 er ekki enn
búið að samþykkja framtíðar-
staðsetningu bensínstöðvar Olís
á Sauðárkróki en umsókn liggur
fyrir hjá skipulags og byggingar-
nefnd um að stöð verði sett upp
við Ártorg,“ segir Sigurjón.
Á fundi Heilbrigðisnefndar
þann 20.12.2016 var eftirfarandi
samþykkt gerð: Í ljósi þess að
uppbygging bensínstöðvar Olís
við Aðalgötu 22 á Sauðárkróki
samræmist ekki skipulagsáætl-
unum sveitarfélagsins og að
núverandi mengunarvarnir eru
ekki í samræmi við reglugerð
35/1994 samþykkir nefndin að
rekstri bensínstöðvar Olís á
Sauðárkróki verði hætt eigi síðar
en 31. desember 2017.
Það liggur því fyrir í málinu
að Heilbrigðisnefndin hefur sýnt
mikinn sveigjanleika og gefið
rekstraraðila mjög rúman tíma
til þess að bregðast við til þess að
uppfylla gildandi reglur. /PF
kaffi á þjóðhátíðardaginn,
réttarkaffisala við Fossárrétt,
jólabasar, jólahlaðborð og jóla-
ball. Þá sjá félagskonur um ýmsa
veitingasölu, s.s. erfidrykkjur,
fundakaffi og matarveislur.
Á árinu 2017 var ákveðið að
gefa út sögu félagsins í tilefni 90
ára afmælis þess og kom sú bók
út fyrir jólin 2017. Bókin er
skrifuð af Lárusi Ægi Guð-
mundssyni á Skagaströnd.
Bókin kostar 3.000 kr. Hægt er
að nálgast bókina hjá eftirfar-
andi kvenfélagskonum:
Lindu Björk, lindabj@simnet.is sími 692
3929, Árnýju sími 452 2745 og
Dagnýju Rósu dagnyrosa76@gmail.com,
sími 848 2732.
/PF
2 02/2018