Feykir - 10.01.2018, Side 3
Kristján Bjarni Halldórsson gefur út rafbók
Besta nýársgjöfin til barna og unglinga
Út er komin rafbókin Óskar
og loftsteinninn eftir
Kristján Bjarna Halldórsson,
áfangastjóra FNV á
Sauðárkróki. Bókin, sem er
nýársgjöf til barna og
unglinga á Íslandi, fjallar
um Óskar, 15 ára strák, sem
býr í Fljótshlíðinni. Nótt
eina lendir loftsteinn á
húsinu hans og hefur Óskar
ákveðnar hugmyndir um
hvað hann vill gera við
loftsteininn sem er mjög
verðmætur. Áætlanir hans
komast í uppnám þegar
loftsteininum er stolið. Þá
hefst eltingarleikurinn sem
berst meðal annars upp á
Eyjafjallajökul.
Bókina má lesa sem rafbók en
einnig er hægt að hlusta á
hljóðbókina, frítt. Útgefandi
er Myrkur ehf. og er útgáfan
styrkt af Uppbyggingarsjóði
SSNV.
Kristján Bjarni Halldórsson
er fæddur árið 1966 á Ísafirði
en ólst upp á Hvolsvelli og
undir Eyjafjöllum. Hóf hann
kennslu í FNV árið 1993 og
starfar þar nú sem áfangastjóri.
Áhugamál eru golf, tónlist og
skrif. Sambýliskona Kristjáns
er Sigríður Svavarsdóttir.
Kristján segist hafa skrifað
bókina að mestu árið 2015 en
tæknivinnan við rafbók og
hljóðbók fór þó fram árið
2017 þegar hann fékk styrk til
þess frá Uppbyggingarsjóði
SSNV.
Aðspurður segist hann
ekki hafa gefið út eigið efni
áður fyrir utan eitt jólalag sem
var meðal þáttökulaga í jóla-
lagakeppni Rásar 2 árið 2016.
Þetta er rafbók og hljóðbók,
má búast við því að hún verði
prentuð á pappír einhvern
tímann?
„Hver veit? Það er þó ekki á
áætlun. Mig langar að skrifa
meira. Ég er þegar farinn að
velta næstu bók fyrir mér sem
er glæpasaga. Ég sé þó fyrir
mér að skrifa meira fyrir börn
og unglinga. Það er krefj-
andi og skemmtilegt,“ segir
Kristján Bjarni.
Bókina Óskar og loftsteinninn
er hægt að nálgast á vefslóðinni
http://oskarogloftsteinninn.is/
Kristján Bjarni. MYND AF FACEBOOK
Breytingar á Vatnsnes-
vegi fyrirhugaðar
Húnaþing vestra
Á fundi sveitarstjórnar
Húnaþings vestra 14.
desember sl. var samþykkt að
leita umsagna og kynna
skipulags-og matslýsingu fyrir
minni háttar breytingu á
aðalskipulagi Húnaþings
vestra vegna breyttrar legu
Vatnsnesvegar, nýs
brúarstæðis um Tjarnará og
ný efnistökusvæði.
Núverandi vegur er einbreiður
malarvegur sem er verulega
farinn að láta á sjá. Framkvæmdir
þær sem um ræðir fela í sér
breytta veglínu á um 700 metra
kafla við bæinn Tjörn á
Vatnsnesi og er vegafram-
kvæmdin 1,8 km í heildina, að
hluta til í sama vegstæði. Í
breytingunni felst einnig nýtt
brúarstæði yfir Tjarnará þar sem
tekin er af hættuleg beygja yfir
ána, ásamt nýjum efnistöku-
svæðum.
Í Skipulags- og matslýsingu
segir: „Umferð um Vatnsnesveg
hefur aukist verulega á síðustu
árum með auknum fjölda
ferðamanna sem fara um
Vatnsnesið til náttúruskoðunar
og útivistar. Ef horft er til
breytinga sl. 10 ára þá var árið
2007 árdagsumferð (ÁDU) um
Vatnsnesveg, á talningastöðinni
frá Hvammstanga og norður
Vatnsnesið, 1188 bílar á sólar-
hring og sumardagsumferð
(SDU) 1953 bílar. Árið 2016 var
umferðin komin í 1637 bíla á
sólarhring (ÁDU) og sumar-
dagsumferð (SDU) 2616 bílar.“
Er íbúum og hagsmunaað-
ilum gefinn kostur á að leggja
fram sjónarmið og ábendingar
við skipulags-og matslýsinguna.
Skal þeim skilað skriflega í
ráðhúsið, Hvammstangabraut 5,
530 Hvammstanga eða á net-
fangið skrifstofa@hunathing.is“
í síðasta lagi 25. janúar 2018. /FE
Reynt að útkljá ágreining
Sýslumörk á Skagaheiði
Sveitarfélögin þrjú sem land
eiga á Skagaheiði, Skaga-
byggð, Skagaströnd og
Skagafjörður, ætla nú að
freista þess að ná niðurstöðu
í áralangri deilu um
sýslumörk á heiðinni.
Í fundargerð byggðarráðs
Skagafjarðar frá 4. janúar sl.
segir að kynnt hafi verið að
Ólafur Björnsson hrl. muni
boða til sáttafundar í málinu
fyrir hönd Sveitarfélagsins
Skagafjarðar með fulltrúum
Sveitarfélagsins Skagastrandar
og Skagabyggðar.
Á stuttum kafla hafa
sýslumörkin á Skagaheiði ekki
verið á hreinu svo árum skiptir.
Vegna þess að hluti land-
svæðisins er þjóðlenda hafi
þurft að skrá og hnitsetja
mörkin fyrir nokkrum árum.
Það gekk ágreiningslaust að
mestu en Húnvetninga og
Skagfirðinga greinir þó á um
hvar skilgreina skuli mörkin á
um tveggja kílómetra kafla í
kringum Hraunvatn. Svæði
þetta tilheyrir sveitarfélögunum
þremur. /FE
Styrkir góð málefni
Lionsklúbbur Blönduóss
Lionsklúbbur Blönduóss
úthlutaði nýlega styrkjum úr
Styrktarsjóði Lionsklúbbsins
á Blönduósi. Öllu fé
styrktarsjóðsins er úthlutað
til samfélagsverkefna og
þeirra sem minna mega sín í
samfélaginu.
Sjóðurinn úthlutaði nú
250.000 kr. til Björgunarfélagsins
Blöndu, 250.000 kr. til Orgel-
sjóðs Blönduóskirkju og 70.000
kr. til Félagsþjónustu A-Hún.
„Björgunarfélagið er sífellt að
bæta sinn tækjakost til að geta
hjálpað fólki þegar í nauðir
rekur og orgelið bætir menn-
ingarlíf héraðsbúa, ekki síst
þegar við höfum jafn öflugan
orgelleikara og Eyþór Franzson
Wechner,“ segir Magnús Ólafs-
son á Facebooksíðu sinni í hug-
leiðingu um starf klúbbsins.
Á Þorláksmessu seldu klúbb-
meðlimir blóm í Kjörbúðinni
líkt og gert hefur verið undan-
farna áratugi og rann allur ágóði
þeirrar sölu, eða 187.000, til
Styrktarsjóðs Húnvetninga.
Einnig fóru félagar í klúbbnum
á Ellideildina í sjúkrahúsinu nú
fyrir jólin eins og undanfarin ár,
skreyttu þar og ræddu við fólkið
sem þar býr. /FE
02/2018 3
Prjónagjörningurinn
skemmtilegasta uppákoman
Edda Brynleifsdóttir býr
á Blönduósi þar sem hún
rekur verslunina Hitt og
þetta handverk og Vötnin
Angling service sem selur
margs konar handverk
og veiðivörur. Verslunin
tók til starfa á vordögum
þannig að það hefur
verið í nógu að snúast
síðasta árið hjá Eddu en
hún er líka formaður
Ferðamálafélags
Austur-Húnvetninga.
Edda svaraði nokkrum
spurningum sem Feykir
lagði fyrir hana varðandi
árið sem leið.
Hvað finnst þér eftir-
minnilegast af því sem gerðist á þínu svæði á
nýliðnu ári? Þar sem flest allt hefur snúist um
ferðamál hjá mér síðustu misseri fannst mér
gaman að sjá gamla bæinn á Blönduósi lifna
við í rólegheitum. Einnig hófst vinna við að
skipuleggja Norður-
strandarveg (Arctic Coast
Way) og svo verður spenn-
andi að fylgjast með kvik-
myndun á Náðarstund.
Hver var skemmtilegasta
uppákoman að þínu
mati? Prjónagjörningur-
inn sem haldinn var í
tengslum við Prjónagleði í
júní sl.
Hvernig voru jólin og
áramótin hjá þér? Góð
eins og alltaf.
Hvernig spáir þú nýju
ári? Það verður bara að
koma í ljós, vonast þó eftir
heitu og góðu veðri.
Eitthvað að lokum? Munum að njóta vel og
vandlega! /FE
Edda Brynleifsdóttir / Blönduósi
Litið um öxl
á nýju ári2017/18