Feykir - 10.01.2018, Síða 8
Snjómoksturstækin höfðu næg verkefni í nóvember. Hér er verið að hreinsa götuna
upp Kirkjuklaufina. MYND: PF
verið viðbúið að helstu stjörnur
KR-liðsins fengju að hvíla lúin
bein.
Lokatölur urðu 34-135 og
kvöddu því heimamenn Malt-
bikarinn en bikarmeistararnir
komust áfram.
Jón Brynjar og Snjólaug
skotíþróttafólk Markviss
Þegar keppni lauk í þeim
skotgreinum sem stundaðar
eru utanhúss, hafði Skotfélagið
Markviss átt níu keppendur
í hagla- og kúlugreinum á
keppnistímabilinu.
Stjórn Markviss tilnefndi
skotíþróttafólk úr sínum röð-
um til titilsins íþróttamaður
ársins innan USAH og voru að
venju valdir einstaklingar úr
bæði hagla- og kúlugreinum
og árangur keppenda hafður
til hliðsjónar við valið. Þau
Snjólaug M. Jónsdóttir og Jón
Brynjar Kristjánsson urðu fyrir
valinu að þessu sinni en árangur
þeirra beggja á árinu var frábær
að því er sagði í pistli frá stjórn
félagsins.
Nóvember
Þrír nýir þingmenn fyrir
Norðvesturkjördæmi
Óvæntar niðurstöður urðu í
alþingiskosningum sem fram
fóru 28. október og miklar
breytingar í þingmannaliði
Norðvesturkjördæmis. Þegar
lokatölur loks bárust, um
klukkan 10 morguninn eftir,
varð ljóst að tveir þingmenn
kjördæmisins höfðu dottið út af
þingi en þrjú ný andlit bæst við.
Niðurstaða í Norðvestur-
kjördæmi varð sú að Sjálfstæðis-
menn fengu 24,5% atkvæða og
tvo menn kjörna, Framsókn
18,4% og tvo menn, Vinstri
græn 17,8 og einn mann,
Miðflokkur 14,2% og tvo menn
kjörna þar sem jöfnunarsætið
varð þeirra, og loks Samfylking
með 9,7% atkvæða og einn
mann kjörinn.
Þau þrjú sem komu ný inn
á þing eru Bergþór Ólason
og Sigurður Páll Jónsson úr
Miðflokknum og Halla Signý
Kristjánsdóttir Framsóknar-
flokki. Komu þau í stað þeirra
Teits Bjarnar Einarssonar, Sjálf-
stæðisflokki, sem ekki náði
kjöri; Elsu Láru Arnardóttur,
Framsóknarflokki, sem gaf
ekki kost á sér og Evu Pandoru
Baldursdóttur, Pírata, sem ekki
náði kjöri. Ásmundur Einar
Daðason kom á ný inn í þing-
flokk Framsóknar eftir árs
fjarveru og tók sæti Gunnars
Braga Sveinssonar sem bauð
sig fram í öðru kjördæmi fyrir
Miðflokkinn.
Vann til tvennra
tónlistarverðlauna í Texas
Skagfirðingurinn Reynir Snær
Magnússon hlaut, ásamt félög-
um sínum í hljómsveit Rúnars
Eff, tvenn tónlistarverðlaun í
Texas en þeir félagar Reynis,
Valgarður Óli Ómarsson, Hall-
grímur Jónas Ómarsson og
Stefán Gunnarsson sem skipa
bandið ferðuðust um Tennesse
og Texas, þar sem þeir stoppuðu
í Nashville, Memphis, Austin,
Houston og Jefferson.
Tóku þeir félagar þátt í
Texas Sounds International
Country Music Awards, sem er
tónlistarhátíð með tónlistar-
fólki alls staðar að úr heiminum,
ásamt öðrum kántríhljóm-
sveitum frá 13 þjóðlöndum.
Hlutu Reynir Snær og félagar
tvenn verðlaun: söngvari ársins
og hljómsveit ársins.
Kór Íslands
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
stóð uppi sem sigurvegari í sjón-
varpsþættinum Kórar Íslands í
lokaþættinum sem sýndur var
á Stöð 2 um miðjan nóvember.
Kórinn sigraði í símakosningu
þar sem rúmlega 40 þúsund
atkvæði voru greidd og hlaut
hann fjórar milljónir króna í
sigurlaun.
Fjöldi fólks mætti í Félags-
heimilið á Blönduósi til að
fylgjast með þættinum þar
sem hann var sýndur og var
stemningin frábær. „Allt ætlaði
um koll að keyra þegar úrslitin
voru kunngerð,“ sagði á Húna.is.
Höskuldur Birkir Erlings-
son, formaður kórsins, var
himinlifandi þegar Feykir
ræddi við hann um þessa
frægðarför kórsins. Sagði hann
stemninguna hafa verið frábæra
eftir að úrslit höfðu verið kunn-
gjörð og gleðin mikil eftir mikla
vinnu og tíma.
Árangurinn þakkar hann
markvissum æfingum, jákvæðni
kórmanna og gleði. „Allir voru
tilbúnir til að taka þátt í þessu
með okkur og ekki var verra
að árangurinn var góður. Ekki
má gleyma þætti Skarphéðins
Einarssonar kórstjóra, hann
var vakinn og sofinn yfir þessu
verkefni og ég veit að hann lá oft
andvaka yfir því hvernig mætti
bæta hlutina,“ segir Höskuldur
og bætir við að þessir þættir á
Stöð 2 hafi vakið athygli á því
mikla kórstarfi sem er í landinu
og fagnar hann því.
Fyrsta alvöru hret vetrarins
Vetur konungur minnti
hressilega á sig eftir miðjan
nóvember með snjókomu og
tilheyrandi ófærð á vegum.
Var björgunarsveitin Húnar á
Hvammstanga m.a. kölluð út
til aðstoðar vegfarendum sem
lentu í erfiðleikum á Holta-
vörðuheiði.
Veðurstofa Íslands gerði,
þessa dagana, ráð fyrir því að
kalt yrði í veðri eitthvað áfram.
Að mati undirritaðs er enn kalt.
Desember
Flugfélagið Ernir flýgur á
Krókinn á ný
Þann 1. desember sl. lenti
flugvél flugfélagsins Ernis á
Sauðárkróki á ný eftir nokkurra
ára hlé á áætlunarflugi þangað.
Um tilraunaverkefni er að ræða í
sex mánuði og ræðst framhaldið
Ánægðir karlakórsmenn eftir að úrslit urðu ljós í Kórar íslands á Stöð2.
MYND: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
af eftirspurn flugfarþega. Fyrir-
tæki, félagasamtök og stofn-
anir á Norðurlandi vestra
hafa mörg hver tekið vel í að
styrkja verkefnið með kaupum
á miðum eða niðurgreiðslu til
félagsmanna sinna.
Farnar verða fjórar ferðir
í viku, á mánudögum, tvær
ferðir á þriðjudögum og á
föstudögum.
Höfðinglegur styrkur
Miðvikudaginn 6. desember sl.
komu Tannstaðabakkahjónin,
þau Ólöf Ólafsdóttir og Skúli
Einarsson, færandi hendi til
stjórnar Velferðarsjóðs Húna-
þings vestra og færðu sjóðnum
samtals kr. 370 þús. að gjöf.
Var þetta annars vegar
afrakstur sölu á bútasaums-
teppum sem Ólöf hafði saumað
og selt vítt og breitt frá miðju
sumri. Hins vegar var um að
ræða hluta aksturskostnaðar
sem Skúli hafði fengið endur-
greiddan frá Sjúkratrygging-
um Íslands vegna tíðra Reykj-
avíkurferða á haustdögum í
tengslum við geislameðferð.
Eignaðist barn í
Hverfisbrekkunni
Klukkan 6:54 þann 4. desember
sl. fá sjúkraflutningamenn
á Sauðárkróki boð um F1
útkall sem er fyrsti forgangur
í þeirra kerfi. Fæðing! Þeir
Yngvi Yngvason og Sigurbjörn
Björnsson eru mættir á
sjúkrabílnum stuttu síðar og
læknir svo í kjölfarið. Afráðið er
að fara upp á HSN á Sauðárkróki
í betra umhverfi þar sem
legvatnið var ekki farið og tekin
yrði ákvörðun þar hvort farið
yrði með sjúkrabíl eða flugvél á
fæðingadeildina. „Ekki vorum
við komnir langt þegar vatnið
fór og Sibbi kallar: „Það er
að koma!“ sem það og gerði í
Hverfisbrekkunni,“ segir Yngvi
aðspurður um atburðarásina
þennan viðburðaríka morgun.
Þarna hafði þeim Ólöfu
Ösp Sverrisdóttur og Snorra
Geir Snorrasyni fá Sauðárkróki
fæðst yndisleg dóttir. „Okkur
mæðgum heilsast vel. Daman er
vær og góð og braggast vel. Hún
á tvær eldri systur sem sjá ekki
sólina fyrir henni og dekra við
hana og eru duglegar að hjálpa
til,“ sagði Ólöf í viðtali í seinasta
Feyki ársins 2017.
Allir kátir með að áætlunarflug sé hafið á ný. Stefán Vagn Stefánsson, formaður
byggðaráðs; Hörður Guðmundsson, forstjóri Ernis; Sigríður Svavarsdóttir, forseti
sveitarstjórnar; Ásta B. Pálmadóttir, sveitarstjóri og Hjördís Þórhallsdóttir,
umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi. MYND: PF
Nýbakaðir foreldrar með börnin sín þrjú. Ólöf heldur á dömunni sem lá svo mikið á
að komast í heiminn, Snorri heldur á Emblu Nótt og á milli þeirra er elsta systirin í
hópnum, Emilía Rós. MYND: PF
8 02/2018