Feykir - 10.01.2018, Side 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
02
TBL
10. janúar 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Skólar fá styrki
Forritarar framtíðarinnar
Úthlutað hefur verið úr sjóðnum Forritarar framtíðar-
innar fyrir árið 2017 en tilgangur hans er að efla
tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhalds-
skólum landsins.
Alls bárust 32 umsóknir til sjóðsins fyrir þessa úthlutun
og voru Varmahlíðarskóli og Höfðaskóli meðal þeirra ellefu
skóla sem hlutu styrk að þessu sinni. Styrkirnir eru í formi
tölvubúnaðar og fjárstyrks til þjálfunar kennara til að búa
þá betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur. /FE
listamanna stigið á stokk og skapað afbragðs stemn-
ingu hjá tónleikagestum sem fylltu Bifröst þetta
skemmtilega föstudagskvöld. Meðfylgjandi myndir
tók Sigurbjörn Björnsson. /PF
Vinalegir tónleikar í lok árs
Græni salurinn
Þann 29. desember sl. var blásið í gamlar glæður
hjá Ægi Ásbjörns og félögum sem hafa staðið að
baki Lummudagstónleikunum VSOT í Bifröst á
Sauðárkróki. Eftir að það var ljóst að tónleikarnir
yrðu ekki haldnir sl. sumar var ákveðið að reyna aftur
áður en árið tæki enda og tókst það alveg
ljómandi vel.
Skipt var um nafn á tónleikunum svo nú var talað
um Græna salinn. Virtist það hafa misskilist eitthvað
fyrirfram þar sem einhverjir héldu að um litla
stofutónleika yrði að ræða í Græna salnum sem vinsæll
var á neðri hæðinni í Bifröst og þjónaði ballgestum í
áratugi.
Ekki var um stofutónleika að ræða þó upphafs-
atriðið hefði sómt sér vel á slíkum því þeir Arnar Freyr
Guðmundsson, ungur harmonikkuleikari, og Rögn-
valdur Valbergsson voru vopnaðir hljóðfærum á
sviðinu og slógu upphafstóna tónleikanna. Hvert
atriðið rak annað og þegar yfir lauk höfðu á þriðja tug
Hnjúkabyggð 33 I 540 Blönduósi I Sími 455 4700
Blönduósbær
w w w.blonduos. is
Annar íbúafundur um
verndarsvæði í byggð
- Gamli bærinn á Blönduósi
Gamli bæjarhlutinn á Blönduósi (innan ár) á sér langa sögu,
sem varðveitt er í gömlum húsakosti og heildstæðu svipmóti
byggðarinnar. Fæstir þéttbýlisstaðir á Íslandi geta státað af slíkum
bæjarkjarna og því er mikilvægt að varðveisla hans og uppbygging
takist vel til. Slíkt gæti falið í sér fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa á
Blönduósi og styrkt bæjarfélagið í heild sinni.
Árið 2015 tóku gildi sérstök lög um verndarsvæði í byggð, en
markmið laganna er að stuðla að verndun svæða sem talin eru hafa
menningarsögulegt gildi. Samkvæmt lögunum ber sveitarstjórnum
landsins að meta „hvort innan sveitarfélagsins sé byggð, sem hafi
slíkt gildi“ og hvort ástæða sé til að útbúa tillögu til ráðherra um
að hún verði gerð að verndarsvæði í byggð. Í samræmi við þetta fól
sveitarstjórn Blönduósbæjar TGJ - Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur
að taka saman tillögu og greinargerð til ráðherra um að gamli
bæjarkjarninn á Blönduósi verði gerður að verndarsvæði í byggð.
Miðvikudaginn 17. janúar kl. 17:00 er því boðað til almenns
íbúafundar í Félagsheimilinu á Blönduósi þar sem fulltrúar TGJ
munu kynna drög að tillögu um verndarsvæði og ræða málin
við íbúa og aðra hlutaðeigandi aðila. Allir sem áhuga hafa á
verkefninu eru hvattir til að mæta.
Skipulags, umhverfis- og umferðarnefnd
Blönduósbæjar og TGJ ehf.
Frændurnir Úlfar Haraldsson og Reynir Snær Magnússon ásamt
trommaranum Fúsa Ben.
Skottubandið hans Árna Gunnarssonar en tvær dætur hans, Áróra
og Helena Erla (lengst til vinstri) sungu með honum.
Andri Már Sigurðsson, söngvari Contalgen Funerals, var leynigestur
kvöldsins en hann gaf sér tíma til að mæta á sviðið þrátt fyrir að hafa
fyrr um daginn gengið í hjónaband með hinni mexikósku Lucíu Magali.
Kári Marísson stóð í framvarðarsveit Skólahljómsveitarinnar en þetta
var í fyrsta giggið hans sem tónlistarmaður.
Tríó Pilla Prakkó djöflaðist á Megasi en með honum voru þeir Fúsi
Ben, Guðni Friðriks og bræðurnir Arnar og Vignir Kjartanssynir.