Feykir - 17.01.2018, Qupperneq 1
03
TBL
17. janúar 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 8
Guðjón S. Brjánsson frá Sam-
fylkingu er Þingmaðurinn
Ekki stætt á öðru
en styðja ÍA
BLS.11
Listamaðurinn Helgi Þorgils
Friðjónsson tekinn tali
„Mér líður bara
vel alls staðar þar
sem ég er“
Elísabet Helgadóttir frá
Blönduósi svarar Rabbinu
Chicken á la king
og þýsk ostakaka
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Langþráðum áfanga var náð þegar körfuknattleikslið
Tindastóls lagði erkifjendur sína í KR í úrslitaleik Malt-
bikarsins í körfuboltisl. laugardag í Laugardalshöllinni. Liðið
var vel stutt af dyggum stuðningsmönnum sem fjölmenntu á
áhorfendabekkina og tóku þar með þátt í sigrinum.
Það hefur vakið athygli á landsvísu hve mikill stuðningur
er við körfuboltann á Sauðárkróki og hvernig allir í samfélaginu
áttu sinn þátt í glæstum sigrum liðsins í úrslitakeppninni. Ekki
nóg með að liðið fagnaði sigrinum með stuðningsfólki í
stúkunni heldur var heimkoman einnig tilkomumikil. Haldin
var móttaka í Síkinu, íþróttahúsinu á Sauðárkróki, liðsmönn-
um til heiðurs og mætti mikill fjöldi bæjarbúa til að taka þátt í
gleðinni. Margir lögðu leið sína í íþróttahúsið sem alla jafna
fara ekki á leiki, en fylgjast auðvitað með úr fjarlægð, og urðu
vitni að einhverju stórkostlegu.
Við á Feyki erum stolt af okkar framlagi í gegnum tíðina til
þessara mála og tileinkum blaðið þessum sigri að miklu leyti.
Áfram Tindastóll! > Sjá nánar á bls. 5 og 10 /PF
Maltbikarinn á Krókinn
Sigur samfélagsins í Laugardalshöllinni
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Dæmigerð mynd fyrir sigur heildarinnar þar sem allir taka þátt í gleðinni. MYND: HJALTI ÁRNA
Banni á bensínsölu frestað
Bjarni Har og afgreiðsla Olís á Sauðárkróki
Á fundi Heilbrigðisnefndar Norður-
lands vestra sem haldinn var í síðustu
viku var ákveðið að aflétta takmörk-
unum tímabundið á sölu eldsneytis á
núverandi sölustað Olís á Sauðárkróki
þegar fullljóst verður að aðstaða verði
endurbætt.
Að sögn Sigurjóns Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra HNV, frestast bann-
ið fram á vor og fellur úr gildi ef farið
verður í lagfæringar á núverandi stað.
Sagt var frá því í síðasta Feyki að
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
hefði um síðustu áramót afturkallað
leyfi Verslunar Haraldar Júlíussonar á
Sauðárkróki til að selja olíu eftir
tæplega 90 ára farsælt starf, fyrst sem
umboðsaðili BP og síðar Olíuverzlunar
Íslands, nú Olís. Á fundi HNV var m.a.
farið yfir málefni bensínstöðvarinnar
og ný gögn um uppbyggingu elds-
neytisafgreiðslu við Borgarflöt 31,
skoðuð. Getur nú Bjarni Har haldið
áfram eldsneytissölunni fram á vorið í
það minnsta. /PF
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is