Feykir - 17.01.2018, Blaðsíða 11
með þumlinum, u.þ.b. einn sm.
Bakið deigið í 10 til 12 mínútur.
Fylling:
1 kg óhrært skyr
200 g sykur
smá vanillusykur
3 egg
100 ml mjólk
1 tsk hýði af límónu
3 msk límónusafi
250 ml rjómi
30 g kartöflumjöl
Aðferð: Hitið ofninn í 160°.
Hrærið saman 100 g af sykrinum,
hveiti, vanillusykri og mjólk.
Aðskiljið eggjahvítur og eggja-
rauður. Hrærið eggjarauður, skyr,
límónuhýði og límónusafa út í
ásamt rjómanum. Þeytið eggja-
hvítur með smá salti, bætið
afganginum af sykrinum (100 g) og
kartöflumjöli út í. Hrærið varlega
út í skyrblönduna. Setjið skyr-
blönduna ofan á botninn og setjið
inn í ofn. Bakið í 50 mínútur og
slökkvið á ofninum. Opnið ofninn
aðeins og látið kökuna kólna alveg í
ofninum. Stráið smá flórsykri yfir
kökuna þegar hún er orðin köld.
Njótið.
Christine og Erlendur skora á
Freyju Ólafsdóttur að vera næsti
matgæðingur.
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS: Mál
Feykir spyr...
Ferðu á
þorrablót?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Kemst ekkert
þetta blót-seasonið.“
Árni Þór Þorbjörnsson
„Kannski!“
Halla Steinunn Tómasdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Allt mitt líf gengur út á að sigra. Ég tapa sjaldan. Ég tapa
eiginlega aldrei. – Donald Trump
Chicken á la king
og þýsk ostakaka
Christine Weinert og Erlendur Ingi Kolbeinsson búa á Blönduósi
ásamt tveimur börnum og kisunni sinni. Christine er sjúkraþjálfari
og starfar á Blönduósi og Skagaströnd en Erlendur er bílstjóri
hjá Vörumiðlun.
„Þar sem ég er frá Þýskalandi langar mig að senda inn
uppskriftir sem eru mjög algengar úti og þá sérstaklega ostakakan
sem er bökuð,“ segir Christine.
AÐALRÉTTUR 1
Chicken á la king
1 kjúklingur
pipar og salt
2 lárviðarlauf
200 g sveppir
1 paprika
4 msk smjör
2 msk hveiti
200 ml rjómi
paprikuduft
2 eggjarauður
1 lítill chillibelgur
3 msk sherry
Aðferð: Þvoið kjúklinginn og salt-
ið hann. Látið hann í pott með
vatni, pipar og lárviðarlaufum.
Sjóðið í u.þ.b. 45 mínútur.
Látið kjúklinginn kólna, plokk-
ið svo allt kjötið af og skerið í bita.
Geymið 300 ml af soðinu. Þvoið
sveppi og papriku og brytjið niður.
Setjið smjör í pott og steikið
grænmetið. Stráið smá hveiti yfir
grænmetið, hellið svo soðinu og
rjómanum yfir og hrærið vel.
Sjóðið í u.þ.b. sex mínútur og
kryddið með salti, pipar og
paprikudufti. Bætið kjúklinga-
kjötinu út í.
Takið smá sósu frá og setjið í
skál, hrærið svo eggjarauðum út í.
Setjið sósuna með eggjarauðunum
aftir í pottinn og hitið en látið ekki
sjóða. Þvoið chilli og brytjið niður
og bætið út í ásamt sherryinu.
EFTIRRÉTTUR
Þýsk ostakaka
150 g hveiti
1 tsk lyftiduft
60 g sykur
1 eggjarauða
2 msk mjólk
65 g smjör
Aðferð: Hitið ofninn í 170°. Útbúið
deigið og setjið í hringform. Ýtið
deiginu aðeins upp að hliðunum
Erlendur og Christine með börnin sín tvö.
MYND ÚR EINKASAFNI
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Christine og Erlendur á Blönduósi
„Nei. Ég held að ég hafi
bara aldrei gert það.
Enda lítið fyrir súran mat.“
Baldur Héðinsson
„Ekki búin að
ákveða það.“
Sigurrós Ingimarsdóttir
03/2018 11
Ótrúlegt, en kannski satt..
Tveir einstaklingar, óháð kyni, mega stofna til hjúskapar á Íslandi þegar
báðir hafa náð 18 ára aldri. Þekkt er að brúðhjón megi kyssast þegar
presturinn hefur gefið pörin saman en dregið hefur úr kossaflensinu
síðustu ár. Ótrúlegt, en kannski satt, þá voru pör talin formlega gift þegar
þau tóku af sér skóna og rétti hinu, hjá Inka indíánum í Perú til forna.
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Sótt og varið sitt á hvað.
Sumir drekka úr þessu.
Fáar skepnur skilja það.
Skrýtin væri á skessu.