Feykir - 24.01.2018, Blaðsíða 3
STARF FORSTÖÐUMANNS
Þekkingarsetrið á Blönduósi auglýsir eftir forstöðumanni
í 100% starf. Þekkingarsetrið er rannsókna- og fræðasetur
staðsett í Kvennaskólanum á Blönduósi.
Sérsvið setursins eru textíll og strandmenning.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Að veita Þekkingarsetrinu forstöðu og vinna
m.a. að samþættingu stofnana í Kvennaskólanum á Blönduósi
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi stofnunarinnar
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Vinna að verkefnaþróun og samstarfsverkefnum sem Þekkingarsetrið tekur þátt í
• Afla styrkja úr samkeppnissjóðum, innlendum og erlendum
• Mynda tengsl við innlenda og erlenda aðila á sérsviðum setursins
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Fagleg þekking og góð reynsla af stjórnun
• Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Sævarsson, formaður stjórnar
í síma 455 4700 eða í netfangi arnar@blonduos.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2018
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Þekkingarsetrið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Þekkingarsetur á Blönduósi Árbraut 31 540 Blönduós & 452 4030 tsb@tsb.is
N
ÝP
R
EN
T
eh
f
/
01
20
18
Við óskum
Tindastóli
til hamingju með bikarinn
Hnjúkabyggð 33 540 Blönduósi Sími 455 4700 www.blonduos.is
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7176 www.feykir.is
Borgarröst 8 550 Sauðárkróki Sími 453 5088
Eftirlæti ehf • Aðalgata 4 • sími 571-4070
www.facebook.com/eftirlaeti Aðalgötu 4 550 Sauðárkróki Sími 571 4070
CMYK%
Cyan = 100 / Magenta = 75 / Yellow = 2 / Black = 18
Cyan = 45 / Magenta = 14 / Yellow = 0 / Black = 0
GRÁSKALI
Black = 40%
Black = 100%
PANTONE
PANTONE 278 C
PANTONE 287 C
Logo / merki
BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT
ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND
T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E: 2b@internet.is
Bæjarskrifstofa Blönduósbæjar
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós
Sími: 455 4700
blonduos.is
Kindur sóttar á afrétt
Smalað í þorrabyrjun
Síðasta sunnudag voru farnir a.m.k. tveir
leiðangrar eftir kindum sem ekki skiluðu sér
heim úr afrétt sl. haust. Annars vegar var farið í
Staðarfjöllin í Skagafirði og hins vegar í
Vesturárdal í Miðfirði.
Þrír menn á sleðum renndu upp í Molduxaskarð-
ið og fram Rangalann og rákust á tíu kindur. Náðu
þeir að mynda slóð með sleðunum sem kindurnar
voru reknar eftir og niður Ganginn svokallaða, fyrir
ofan Staðarrétt, þar sem kerra beið þeirra og var
kindunum komið til síns heima. „Mig grunaði að
þær væru niðri á Ytri-Rangalanum enda ná þær beit
og rennandi vatni þar. Ekki voru þær þar svo við
héldum áfram til suðurs, skömmu seinna rákumst
við á þær og ákváðum að reyna að koma þeim til
austurs og niður Ganginn þar sem það væri styttra
en norður í Molduxaskarðið og mun betra færi fyrir
kindurnar,“ segir Ingólfur Jón Geirsson einn leið-
angursmanna. Hann segir ferðina hafa gengið
nokkuð vel enda hægt farið.
Bjarki Haraldsson á Hvammstanga tók þátt í
öðrum leiðangri sem gerður var út í Vesturárdal í
Miðfirði. Þangað var einnig farið á sleðum og jeppa
og voru fjórar kindur sem þar voru sóttar. Þær
Í Staðarfjöllum fundu þeir bræður Ingólfur Jón og Eyberg
Geirssynir, ásamt Helga Ingimarssyni, tíu kindur og komu
þeim til byggða. MYND: IJG
reyndust vera frá Uppsölum í Miðfirði. „Við
vorum ekki lengi að finna þær og koma þeim í
kerru. Og af því að við vorum þarna vorum við
beðnir um að ná í hrossin upp á Hálsana og
koma með þau niður líka,“ sagði Bjarki í samtali
við Feyki. /PF
Skagaströnd
Nýtt gistiheimili tekur til starfa
Nýtt gistiheimili, Salthús,
verður formlega opnað á
Skagaströnd á föstudaginn
kemur. Er það staðsett nyrst
í bænum, á Einbúastíg 3,
með útsýni yfir Húnaflóann
til suðurs og norðurs en í
austri er fjallasýn þar sem
Spákonukonufellið ber
hæst.
Hrafnanes ehf. er eigandi
hússins en Salthús gistiheimili
ehf. mun sjá um rekstur gisti-
heimilisins. Framkvæmda-
stjóri þess er Hrafnhildur
Sigurðardóttir. Salthús gisti-
heimili er á tveimur hæðum
og býður upp á fjórtán vel
útbúin herbergi með sturtu,
salerni og vaski. Þar er einnig
sameiginleg eldhúsaðstaða á
hvorri hæð. Nú þegar hafa
fyrstu gestirnir dvalið í húsinu,
bæði íslenskir og erlendir, en
formleg opnun verður föstu-
daginn 26. janúar klukkan
17-19 þegar eigandi hússins,
Hrafnanes ehf., mun afhenda
Salthúsi gistiheimili húsið
formlega til rekstrar. /FE
MYND: SALTHUS.IS
04/2018 3