Feykir - 24.01.2018, Blaðsíða 9
„NEI!“
Það mátti heyra eitt lítið dæs
á hinum endanum og svo
agnarlágt: „Ok, ekkert mál,
heyrumst“.
Ætla mætti að nú sé sögunni
lokið, en hver getur verið svo
kaldur að neita nokkrum um
smá hjálp og þá sérstaklega
þegar svona er komið fyrir
einhverjum, svo efnilegum og
björtum einstaklingi?
ALLT lífið er fram undan og er
ekki alltaf eitthvað hægt að
gera til að hjálpa? Ég held
að fullyrða megi að ALLIR
foreldrar vilja aldrei gefast
upp og ættu ekki að gera
það svo lengi sem barnið
dregur andann. Það skyldi
enginn þurfa að ganga eftir
kistu barns sín.
Og svo kom sólin upp og
ALLT virtist vera að ganga
upp og allir voru að rifna úr
stolti yfir því að endurheimta
þennan bjarta og fallega
dreng. Þess vegna varð það
svo sárt að upplifa FALLIÐ.
Það lét ekki mikið á sér bera
þetta litla hostel sem var
samastaður ungra manna
og kvenna sem áttu það
sameiginlegt að liggja hálf
rænulaus og illa á sig komin
eftir mislanga notkun hinna
ýmsu vímugjafa og sárt
svo sárt að enginn sem
áður hefur upplifað þá sjón
sem við blasti gerir sér í
hugarlund þá skelfingu sem
við blasti þennan annars
fallega dag seint þetta sumar
sem hafði annars einkennst
af FEGURÐ FÍKN OG AÐ
ENDINGU FALLI.
- - - - - - -
Þórarinn skorar á
systur sína, Völu Rós
Ingvarsdóttur, að koma
með pistil.
Hann var sannarlega
efnilegur, hvers manns
hugljúfi bjartur og fagur.
Stolt foreldra sinna og allra
er þeim tengdust. Að vaxa
úr grasi við sjálfsagðar
allsnægtir að okkar mati s.s.
þak yfir höfuðið, rúm til að
sofa í og já, auðvitað sæng
til að kúra okkur undir,
kalt vatn og líka heitt fyrir
sturtuna. ALLIR ættu að
eiga þess kost hvar sem er í
heiminum.
En aftur að drengnum sem
fékk í vöggugjöf allt það
sem til þarf og meira til að
mati margra. Árin liðu og
drengurinn stóð frammi fyrir
unglingsárunum.
ALLT lífið blasti við og
það var bara ekkert að
vanbúnaði að hefja eitt
enn tímabil lífsins sem eru
unglingsárin og það ætlaði
minn maður að gera í hópi
vina sinna í litla þorpinu
sínu, sem einkenndist af
nágrannakærleik samheldni
og FEGURÐ litla þorpsins
sem að margra mati var
fullkominn staður fyrir alla.
FÍKNIN birtist í óteljandi
myndum og við þekkjum
það ÖLL vel. Sumar eru
fínar, aðrar erfiðar og enn
aðrar skelfilegar en allar eiga
þær það sameiginlegt að við
viljum gera eitthvað í málinu
og vinna sigur á þeirri FÍKN
sem við berjumst við.
Það þyrmir yfir foreldri sem
áttar sig á að ekki er allt
með felldu hjá barninu sínu.
Hlutir sem teljast eðlilegir
verða á skammri stundu
MJÖG óeðlilegir, lygar,
þjófnaðir af heimilinu s.s.
úr, skartgripir, silfurmunir
frá ömmu, jafnvel fatnaður
hverfur og lengi, ALLT of
lengi, lokum við augunum og
trúum á að þetta líði hjá.
Ofboðslegt álag og
andvökunætur svo margar
að við munum ekki hvenær
við sofnuðum síðast
áhyggjulaus og eða sváfum
heila nótt. Þessi FÍKN sem
um ræðir, og sem ég geri að
umtalsefni mínu, er þekkt og
efnin mörg og þau geta SVO
auðveldlega krækt í okkur öll
að það er lyginni líkast.
„Halló!“ heyrist sagt í
símann … smá þögn …
„Sæll þetta er ég,“ heyrist
sagt lágum rómi svona eins
og viðkomandi vilji ekki, geti
ekki sagt orðin en verður:
„Ha, hvað segir þú?“ er
sagt. „Ég er á götunni, getur
þú hjálpað mér smá?“ Og
hugsanirnar fljúga, líkt og
maður heyrir fólk segja sem
er í lífsháska og lífið þýtur
áfram gegnum hugann, allar
lognu sögurnar allir þessir
hlutir sem búið er að selja,
allar andvökunæturnar,
allar hörmungarnar sem
fjölskyldan hefur mátt
þola, ALLT ÞETTA LJÓTASTA
SEM VIÐ GETUM HUGSAÐ
OKKUR.
ÁSKORENDAPENNINN
Þórarinn Br. Ingvarsson Skagaströnd
Fegurðin fíknin og fallið
UMSJÓN
palli@feykir.is
Kokkurinn á Borginni. MYND ÚR EINKASAFNI
Fyrirliði meistaraflokks
Tindastóls í körfubolta til
fjölda ára náði, eftir langa bið,
að landa stórum titli þegar
Tindastóll lagði KR í sögulegum
úrslitaleik Maltbikarsins
þann 13. janúar sl. Í
Laugardalshöllinni.
Helgi Rafn er sonur Rannveigar Lilju
Helgadóttur og Viggós Jónssonar, af
árgangi 1983 og fagnar því 35 ára
afmæli sínu á árinu. Helgi hefur alla
tíð búið á Sauðárkróki en sem gutti
fór hann í sveit á sumrin á Úlfsstaði í
Blönduhlíð. Helgi Rafn Viggósson er
íþróttagarpur Feykis þessa vikuna.
Íþróttafélag/félög: -Tindastóll.
Helstu íþróttaafrek: -Bikarmeistari
í körfubolta 2018.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Það sem auðvitað kemur fyrst
upp í hugann er þegar við komum
með Bikarinn heim í Síkið núna á
dögunum. Stuðningurinn sem við
Helgi Rafn Viggósson / körfubolti
Stefnir á Íslandsmeistaratitil
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is
Helgi Rafn (fyrir miðju) með bikarinn á lofti í Laugardalshöllinni á dögunum. MYND: HJALTI ÁRNA
fengum, gleðin og stemmningin er
eitthvað sem mun aldrei gleymast.
Ég er alltaf stoltur af því að vera
úr Skagafirði en þetta var alveg
einstakt!
Neyðarlegasta atvikið: -Man ekki
eftir neinu slíku, enda er best að
gleyma bara svoleiðis atvikum.
Einhver sérviska eða hjátrú? -Nei
ég er nú lítið að pæla í þannig
hlutum, reima bara á mig skóna og
spila.
Uppáhalds íþróttamaður? -Enginn
einn sem ég get nefnt. Ég fylgist
með mörgum íþróttum og ætli það
sé ekki einhver uppáhalds í þeim
öllum.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera
og í hvaða grein mynduð þið
spreyta ykkur? -Væri til í að
taka eitt heimsmeistaramót sem
línumaður með íslenska lands-
liðinu í handabolta, lenda þar á
móti Frökkum í hörku úrslitaleik
og sigurmarkið sem kæmi á loka
andrartökum leiksins væri skorað
af línunni.
Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar?
-Börnin mín.
Lífsmottó: -Njóta dagsins
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Spila körfubolta, njóta
samveru með fjölskyldunni, vinna
og spila körfubolta.
Hvað er framundan? -Stefnum á
Íslandsmeistaratitil í körfunni. Svo
mun ég eyða sumrinu í sólinni í
Drangey.
Verður
aðstoðarmaður
félags- og
jafnréttismála-
ráðherra
Arnar Þór Sævarsson
Ásmundur Einar Daðason,
félags- og jafnréttis-
málaráðherra, hefur ráðið
Arnar Þór Sævarsson,
sveitarstjóra á Blönduósi,
sem aðstoðarmann sinn í
velferðarráðuneytinu að því
er fram kemur í tilkynningu
frá ráðuneytinu.
Þar segir að Arnar Þór
muni sinna afmörkuðum
verkefnum fyrir ráðherra
samhliða störfum sveitar-
stjóra til vors en komi að
fullu til starfa í velferðar-
ráðuneytinu í vor. Arnar
Þór er annar tveggja að-
stoðarmanna Ásmundar en
hinn er Sóley Ragnarsdóttir.
Arnar Þór er fæddur árið
1971. Maki hans er Gerður
Beta Jóhannsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og deildar-
stjóri á Landspítala og eiga
þau þrjú börn. /FE
04/2018 9