Feykir - 07.02.2018, Síða 4
Saga skipulegs
hrossaræktarstarfs á
Íslandi er ótrúlega stutt.
Þannig var fyrsti
ráðunauturinn í búfjárrækt
sem hafði m.a. með
hrossaræktina að gera, ekki
ráðinn til Búnaðarfélags
Íslands fyrr en 1902. Hann
hét Guðjón Guðmundsson
og beitti sér fyrir stofnun
fyrsta hrossaræktar-
félagsins árið 1904 og
fyrstu hrossasýningunni á
vegum BÍ árið 1906. Hann
lést strax 1908.
Næsti ráðunautur sem sinnti
hrossaræktinni, Ingimundur
Guðmundsson, hóf störf 1910
en lést af slysförum 1912. Næsti
ráðunautur þar á eftir sem
hafði með hrossaræktina að
gera, var Sigurður Sigurðsson
en hann hafði einhvern lengsta
starfsaldur hinna eldri ráðu-
nauta og gekk iðulega undir
kenninafninu; Sigurður ráðu-
nautur. Theodór Arnbjörnsson
tók svo við sauðfjár- og
hrossaræktinni af honum árið
1920. Theodór sinnti svo
einvörðungu hrossaræktinni
frá 1927 og var fyrsti ráðu-
nauturinn sem hafði hrossa-
ræktina sem aðalstarf en hafði
þó að auki umsýslu með
fóðurbirgðafélögunum og var
féhirðir BÍ frá 1934. Theodór
lést 1939 á 51. aldursári.
Theodór markaði djúp spor
í hrossaræktinni með stefnu
sinni og starfi. Hann hóf færslu
ættbókar BÍ fyrir undaneldis-
hross árið 1923. Fyrst fyrir
stóðhesta og svo einnig fyrir
hryssur. Theódór var að auki
afar ritfær maður og eftir hann
liggja nokkrar bækur. Hestar
kom út hjá BÍ árið 1931 og
endurútgefin offsetprentuð
árið 1975. Járningar kom út hjá
sama útgefanda árið 1938 og
endurútgefin offsetprentuð
árið 1970. Einnig birtust
margar greinar eftir Theodór í
Búnaðarritinu, Búnaðarblaðinu
Frey og víðar. Hestar er afskap-
lega vandað rit, raunar eitt af
öndvegisritum þeim er um
hesta hefur verið skráð á Íslandi
og heldur enn gildi sínu, þótt
löngu sé tímabært að tekið yrði
saman nýtt rit í líkum anda. Að
Theodóri látnum kom svo út
bókin Sagnaþættir úr Húna-
þingi. Ísafoldarprentsmiðja í
Reykjavík gaf hana út árið
HESTAR OG MENN
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Theodórsstofa á Sögusetri íslenska hestsins
Theodór Arnbjörnsson. MYND FRÁ SÖGUSETRI ÍSLENSKA HESTSINS
1941, með formála Arnórs
Sigurjónssonar. Í þessu kveri,
sem er listilega skrifað, er
mikinn fróðleik að finna, m.a.
um Þingeyrafeðga: Ásgeir Ein-
arsson stórbónda og þingmann
og mikinn fylgismann Jóns
forseta og son hans, hesta-
manninnn mikla Jón Ásgeirs-
son, þar sem m.a. er greint frá
tilurð vísunnar kunnu eftir Jón;
Það er mas úr þér, vinur.
Þetta: „Léttir dettur“.
Aldrei rasar reiðskjótur
rétt á sprettinn settur.
Einnig er í kveri þessu að finna
frásöguþátt um Katadalsfólkið
en þaðan er Friðrik, „sá er drap
Natan Ketilsson“ eins og
Theodór kemst að orði. Um
atburði þá hefur mikið verið
ritað, t.d. frásöguþátturinn
Friðþæging eftir Tómas Guð-
mundsson skáld í bókinni
Horfin tíð frá 1967 úr ritröð
þeirra Tómasar og Sverris
Kristjánssonar sagnfræðings;
Íslenzkir örlagaþættir. Þess er
og skemmst að minnast að
réttarhöldin sjálf voru endur-
tekin nú sl. sumar og þá í anda
nútíma réttarfars og eftir
gildandi landslögum dagsins í
dag.
Sögusetur íslenska hestsins
fékk, fyrir nokkrum árum,
höfðinglega gjöf frá fóstur-
dóttur þeirra hjóna, Theodórs
og Ingibjargar Jakobsdóttur,
Kolfinnu Gerði Pálsdóttur sem
voru skrifstofuhúsgögn og
ýmislegir munir Theodórs. Í
því tilefni var efnt til málþings
þann 20. apríl 2007, sjá á vef
SÍH; sogusetur.is, undir stik-
unni Fræðsla. Þar er m.a. að
finna yfirlitserindi um ævi og
störf Theodórs sem undir-
ritaður tók saman og flutti á
málþinginu og er áhugasömum
lesendum bent á það um nánari
fróðleik. Mununum hefur svo
verið fundinn staður á neðri
hæð húsnæðis Sögusetursins
heima á Hólum og kallast sá
staður Theodórsstofa, jafn-
framt sem gefinn var út bækl-
ingur með sama nafni sem
liggur frami fyrir gesti setursins.
Bryndís Rut Haraldsdóttir,
leikmaður mfl. kvenna hjá
Tindastóli og fyrrverandi
markmaður U19 landsliðsins,
er gallharður stuðningsmaður
Liverpool. Hún er reyndar
gallhörð í hverju því sem hún
tekur sér fyrir hendur, meira að
segja að vera Seylhreppingur,
þó hann heyri nú sögunni til.
Hún er frá Brautarholti en
segist að sjálfsögðu búa á
Laugavegi 15 í póstnúmeri
560, þ.e. í Varmahlíð. Bryndís
sækir vinnu til Sauðárkróks og
starfar sem verkamaður hjá
þjónustumiðstöð Skagafjarðar.
Bryndís svarar hér spurningum
í Liðið mitt.
Hvert er uppáhalds liðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Liverpool er mitt lið, hef haldið
með þeim síðan ég man eftir
mér. Ætli það sé ekki uppeldinu
að þakka, ólst upp með tveimur
hörðum Liverpool aðdáendum og
þeir sannfærðu mig um að þetta
væri aðalliðið.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á
tímabilinu? -Ætla að segja að við
endum í 3. sæti.
Ertu sátt við stöðu liðsins í dag?
-Liðið er í þriðja sæti eins og er en
væri rosalega til í að sjá þá komast
í annað sætið, þar af leiðandi fyrir
ofan Manchester United.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? -Já lendi frekar
oft í því.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? -Gianluigi Buffon
markmaður Juventus er minn
maður. Hann er 39 ára, ennþá
spilandi og er í hópi þeirra bestu.
En svo var Steven Gerrard alltaf
flottastur hjá Liverpool.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? -Nei, því miður! Enda setti
ég mér það markmið fyrir árið
2018 að skella mér á leik. Það
er næstum til skammar að maður
hafi ekki skellt sér á leik.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? -Já, ætli ég eigi ekki þrjár
treyjur og einn gamlan trefil.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðn-
ingi við liðið? -Er mjög léleg í því,
það verður að viðurkennast.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? -Nei aldrei,
finnst það fáránlegt að breyta um
lið eftir velgengni liða á tímabilinu.
Uppáhalds málsháttur? -Batn-
andi manni er best að lifa.
Einhver góð saga úr boltanum?
-Jájájá! T.d. þegar við fórum á
Gothia cup 2011 í Svíþjóð þá
fengum við að taka þátt í risastóru
opnunaratriði. Biðin var löng en við
vorum rosalega vinsælar og fullt
af strákum sem vildu endilega fá
myndir af sér með okkur. Í einum
hópnum voru nokkrir strákar um
12 ára sem vildu að sjálfsögðu
fá myndir af sér með okkur og
ekkert mál, nema við sögðum við
eina að gefa einum koss á kinnina
því hann var svo mikil dúlla. Hún
stökk til og gaf honum koss en
viðbrögðin sem hún fékk voru
frekar slæm, hann fór að hágráta.
Drengurinn er líklegast skemmdur
í dag.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið
fyrir? -Alex, kærasti minn, er
reglulega að hrekkja mig. Hann
laug því að mér að hann Maggi
Hinriks væri með bótox í vörunum,
sem væri samt fita af rassinum
sett í varirnar, og að hann færi
einu sinni á ári til læknis til að gera
hann nú sætan… Ég trúði þessu
í nokkra daga og munaði litlu að
ég færi að spyrja Magga út í þetta.
Spurning frá Magga Hinriks:
-Heldur þú að þú eigir eftir að
upplifa það að sjá Liverpool lyfta
Englandsmeistaratitli? -Að sjálf-
sögðu!! Góðir hlutir gerast hægt,
sagði einhver snillingur við mig.
Hvern myndir þú vilja sjá
svara þessum spurningum?
-Væri gaman að sjá Baldur Inga
Haraldsson bróður minn, svara
þessum spurningum, hann er
mikill áhugamaður enska boltans.
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi? -Af hverju hætt-
irðu með Fantasy-baddan á
snappinu?
Bryndís Rut Haraldsdóttir / Liverpool FC
Góðir hlutir gerast hægt
( LIÐIÐ MITT ) palli@nyprent.is
Bryndís setti sér það markmið fyrir árið 2018 að skella sér
á leik með Liverpool. MYND ÚR EINKASAFNI
4 06/2018