Feykir - 07.02.2018, Síða 11
eggjamjólk áður en þetta er sett í
ofninn á 200°C í 10 mínútur.
Athugið að ofninn þarf að vera
orðinn heitur áður en sett er í hann.
Meðlæti:
Gott er að hafa kryddaðar,
ofnbakaðar sætkartöflur og steikt
rótargrænmeti með þessu og að
sjálfsögðu sósuna ásamt öðru vel
völdu meðlæti.
Freyja og Einar skora á Sigurveigu
Sigurðardóttur og Sigmar Guðna
Valberg sem næstu matgæðinga.
Verði ykkur að góðu!
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS: Gagn.
Feykir spyr...
Þér stendur til boða
að endurfæðast
sem fugl. Hvaða
fugl veldir þú og af
hverju?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ég held að ég hefði ekkert
val. Alheimsöflin mundu
sennilega breyta mér í
mörgæs, allavega eftir fyrstu
æfinguna með Molduxum. Og
svo er mörgæsin svo mikill
rómantíker, bíður eftir Röggu
sinni þegar hún fer og veiðir
í búið fyrir gamla og ungana
sína, (Ég vona þá að Ragga
velji mörgæs líka annars væri
það pínu vandró!)“
Árni Björn Björnsson
„Ég myndi velja haförn, stór
og tignarlegur og nokkuð
öruggur um að verða
ekki skotinn.“
Ingólfur Jón Geirsson
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Skynsemin er eins og svitasteinn – þeir sem mest þurfa á
henni að halda nota hana ekki.. – Höf. ókunnur
Gómsætar
innbakaðar
grísakótilettur
Freyja Ólafsdóttir og Einar Kolbeinsson eru matgæðingarnir
okkar að þessu sinni. Þau búa í Bólstaðarhlíð í Austur-
Húnavatnssýslu þar sem Einar er fæddur og uppalinn en Freyja
er Skagfirðingur. Freyja er matreiðslumeistari og kennari við
Húnavallaskóla en Einar er viðskiptafræðingur og ferðabóndi
ásamt fleiru.
„Hér á bæ snýst lífið að stórum hluta um margvíslegan
matartilbúning. Afurðir sauðkinda, hrossakjét og villibráð eru
þar næstum allsráðandi en tilbreyting jafnan fagnaðarefni. Svo er
því sannarlega farið með eftirfandi rétt,“ segja matgæðingarnir
Freyja og Einar.
RÉTTUR
Innbakaðar
grísakótilettusneiðar
fyrir fjóra
4 kótilettur
½ laukur
2 gulrætur
80 g sveppir
¼ rauð paprika
smjördeig
Sósan:
2 dl vatn
¼ rjómi
1 tsk blautur kjötkraftur eða
teningur
Þykkt með smjörbollu eða soðnum
sætum kartöflum. Hægt er að
krydda þetta til t.d. með chilli
krydduðu allioli ef þetta má vera
örlítið sterkt en mjúkt.
Aðferð: Notið grísakótilettur sem
eru með rifbeininu á. Rifbeinið haft
á en hreinsað vel og skafið af
beininu. Kótiletturnar er steiktar
beggja vegna. Smátt saxaður laukur,
gulrætur, sveppir og rauð paprika
gljáð á pönnu. Sósunni helt saman
við og brauðraspinu líka. Um það
bil ein ískúluskeið af fyllingunni
sett ofan á kótilettusneiðina og
þessu pakkað inn í deigið og beinið
látið standa út úr. Deigið gljáð með
Einar og Freyja.
MYND ÚR EINKASAFNI
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Einar og Freyja í Bólstaðarhlíð í A-Hún
„Mér finnst krummi svo
tignarlegur og skemmtilegur.
Væri alveg til í að fara í hans
stað í smá stund.“
Anna Björk Arnardóttir
„Var að skoða fuglavefinn og
ég væri heiðlóa því hún er
hraðskreið og félagslynd. Passar
vel við mig en ég er alltaf að
flýta mér og líður best í góðra
vina hópi.“
Elsa Lára Arnardóttir
06/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Tannlæknum eru óheimilar hvers konar auglýsingar um starfsemi
sína sem tannlæknar á Íslandi. Við opnun tannlæknastofu má
þó auglýsa það með látlausri auglýsingu í blöðum sem mest má
birta þrisvar sinnum. Tannlæknum og stéttarfélagi þeirra ber að
vinna gegn því að eftir þeim séu birt ummæli eða samtöl eða um
þá ritaðar greinar í blöð eða tímarit í auglýsingaskyni. Ótrúlegt, en
kannski satt, þá var rafmagnsstóllinn fundinn upp af tannlækni.
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Haft á öllum heimilum.
Heldur okkur fyrir var.
Flokkar fylla af heimildum.
Fullan undan rúmi bar.