Feykir - 14.02.2018, Blaðsíða 1
07
TBL
14. febrúar 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Bjarki Arnarson býr í Kína
„Væri alveg til í að
komast í saltað
hrossakjöt og
hákarl“
BLS. 4
Silla í Húnabúðinni tekin tali
„Ég hef aldrei
skilið að það sé
leiðinlegt að vera í
þjónustustarfi“
Ljóðasamkeppni
grunnskólanna í Kópavogi
Skagfirðingar í
fyrstu þremur
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Það er ómögulegt að ráða í það hvað
hefur farið í gegnum hugann hjá
smyrlinum sem horfði haukfránum
augum í myndavélarlinsuna hjá Róberti
Daníel Jónssyni á Blönduósi sl.
laugardag. Fuglinn sat á grein við
Vallarbrautina á Blönduósi og skimaði
líklega eftir smáfuglum í gogginn.
Róbert Daníel segist heppinn að hafa
náð svo góðri mynd af fuglinum þar
sem hann hafi ekkert verið að stilla sér
neitt sérstaklega upp. „Oftast hefur þú
þrjár sekúndur til að ná skotinu, þeir
eru oftast styggir. Ég sá hann bara uppi
í tré á horninu á Vallarbraut og
Húnabraut, var á bíl sem ég renndi eins
nálægt og hægt var og heppnin var með
mér. Ég náði skotinu á þeim 2-3
sekúndum sem ég fékk.“ Róbert segist
fara oft í svona bíltúra til að finna
ránfugla við Blönduós og er orðinn
Algengasti íslenski ránfuglinn spókaði sig á Blönduósi
Hefur þrjár sekúndur til að ná skotinu
Róberti Daníel Jónsson hafði heppnina með sér er hann myndaði smyril í ætisleit MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON
nokkuð fundvís á þá. Stundum kemur
líka fyrir að hann fái ábendingu um
fugla þó það sé sjaldnast þannig.
Á Fuglavefnum segir að smyrillinn
sé algengasti íslenski ránfuglinn, líkur
fálka en mun minni. Fuglar eru
aðalfæða smyrilsins, frá þúfutittlingum
og upp í dúfur, en þó aðallega smáfuglar,
bæði fullorðnir og ungar. Tekur einnig
hagamýs.
Smyrillinn er lipur og harðfylginn
veiðifugl sem flýgur hratt yfir móa og
grundir og þreytir oft bráð sína með því
að elta hana. Vængjatökin eru hröð og
flugið létt, hann svífur sjaldan og hnitar
lítið. Ýmist sjást fuglarnir stakir eða í
pörum.
Smyrill er að mestu farfugl. Meiri-
hluti stofnsins hefur vetursetu á Bret-
landseyjum og í Vestur-Evrópu, fáeinir
fuglar hafa vetursetu hér og sjást víða
um land, helst við þéttbýli. /PF
Fólki bjargað úr ófærðinni
Óveður á Norðurlandi
Í gærmorgun voru Björgunarsveitirnar Húnar og Blanda kallaðar út til að
aðstoða fólk er lenti í vandræðum milli Hvammstanga og Blönduóss en mikið
óveður geisaði er lægð fór yfir landið.
Húnar vilja minna á það að þegar tíðarfarið er ekki alveg upp á það besta ætti
fólk að skoða veðurspár og færð á vegum áður en haldið er í ferðalög. /PF