Feykir - 07.03.2018, Page 1
10
TBL
7. mars 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 4–5
BLS. 6
Berglind Þorsteinsdóttir á
Sauðárkróki grípur þéttings-
fast um áskorendapennann
Áhrif
samfélagsmiðla
BLS. 3
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir,
Varmhlíðingur í Bournemouth,
svarar Degi í lífi brottflutts
,,Ég er óttalegur
Breti í mér“
Kristinn Hugason, forstöðu-
maður Söguseturs íslenska
hestsins, skrifar um hesta
og menn
Á Þveráreyrum
1954
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Mikið ískrap safnaðist fyrir í fjörunni við Sauðárkrók um
helgina og vakti talsverða athygli bæjarbúa sem voru
duglegir við að mynda og birta á samfélagssíðum sínum
enda ekki algeng sjón.
Feykir falaðist eftir skýringum á þessu fyrirbæri hjá
Veðurstofunni og fékk þær skýringar hjá Njáli Fannari
Reynissyni, vatnamælingamanni, að líklegast væri að köld
NA-áttin hafi blásið krapa frá ósi Vestari-Héraðsvatna inn að
Sauðárkróki en töluvert af ís og krapa berst niður stóru árnar
þessa dagana. Njáll sagði að einnig gæti hluti skýringarinnar
verið sú að ferskvatnsfilman frá Héraðsvötnum, sem liggur á
sjónum, frjósi og verði að krapa.
Feykir forvitnaðist um sjávarhita hjá Verinu á Sauðár-
króki en þar er sjór notaður í eldisaðstöðu. Kári Heiðar
Árnason, stöðvarstjóri, segir sjávarhitann ekki óeðlilegan, um
4,8°C sem komi inn í stöðina, og telur hann líkt og Njáll að
krapinn komi úr Héraðsvötnum og hafi safnast saman í
norðanátt helgarinnar. Feykir kaupir þá skýringu fullu verði
án allra efasemda. /PF
Sjaldséð sjón við Sauðárkrók
Fjaran varð hvít af krapa
Framtíðaruppbygging við Þrístapa
Húnavatnshreppur
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
samþykkti á síðasta fundi sínum að
auglýsa eftir ráðgjafa eða ráðgjafa-
fyrirtæki til að starfa með sveitarfé-
laginu að framtíðaruppbyggingu á
Þrístöpum og gestastofu sem stað-
setja á í nágrenni við Þrístapa.
Þrístapar eru þrír samliggjandi
smáhólar sem eru hluti af Vatnsdals-
hólum. Gestastofan á að fá nafnið
Agnesarstofa eftir Agnesi Magnúsdótt-
ur en hún var hálshöggvin við Þrístapa
ásamt Friðriki Sigurðssyni þann 12.
janúar árið 1830 fyrir morðin á Natani
Ketilssyni og Pétri Jónssyni. Var það
síðasta aftakan á Íslandi. Höggstokk-
urinn og öxin sem notuð voru við
aftökuna eru varðveitt á Þjóðminjasafni
Íslands en á aftökustaðnum er áletraður
steinn til minningar um atburðinn.
Nú er í undirbúningi kvikmynd
sem gera á eftir sögu Hönnu Kent,
Náðarstund, en hún fjallar um Agnesi
og síðustu daga hennar. Feykir sagði
frá því fyrr í vetur að staðfest hefði
verið að stórleikkonan Jennifer
Lawrence muni fara með aðalhlut-
verkið í myndinni. /FE
Það var kuldalegt að horfa yfir fjöruborðið við Sauðárkrók um helgina en mikið ískrap hlóðst upp í norðanáttinni sem þá blés. MYND: PF
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta