Feykir


Feykir - 28.03.2018, Blaðsíða 4

Feykir - 28.03.2018, Blaðsíða 4
Ráðstefna fyrir frumkvöðla- konur samtíðar og framtíðar verður haldin í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki 18. apríl nk. en þar verður boðið upp á fyrirtækjakynningar, fyrirlestra og örvinnustofur fyrir frumkvöðlakonur. Árangur FREE Evrópuverk- efnisins verður kynntur og Sirrý Arnarsdóttir, fjölmiðla- kona gefur góð ráð til frumkvöðla til að koma sér og fyrirtækinu á framfæri. Ásdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Vinnu- málastofnun, hefur leitt verkefnið sem er samstarfs- verkefni sex aðila frá fimm löndum. Auk Vinnumála- stofnunar tekur Byggða- stofnun þátt ásamt aðilum frá Bretlandi, Búlgaríu, Króatíu og Litháen. Feykir sendi Ásdísi spurn- ingar og forvitnaðist um verkefnið. Hvað geturðu sagt mér um þessa ráðstefnu? Ráðstefnan er lokahnykkur Evrópuverkefnis sem heitir Free (Female Rural Enterprise Empowerment) en markmið þess er að styðja við bakið á frumkvöðlakonum á lands- byggðinni, og þá einkum og sér í lagi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austur- landi. Þessi svæði voru sér- staklega valin vegna neikvæðr- ar íbúaþróunar og þeirrar staðreyndar að konum hefur farið fækkandi á þessum svæðum. Við erum að vinna með fimm samstarfsaðilum frá fimm löndum en Byggða- stofnun er samstarfsaðili á Íslandi en auk þess eru aðilar frá Bretlandi, Litháen, Króatíu og Búlgaríu. Í stuttu máli má segja að verkefnið snúist um þrennt: Í fyrsta lagi að bjóða upp á fræðslu sem aðgengileg er á netinu, í námsþáttum er snúa að viðskiptatengdum þáttum. Í öðru lagi að bjóða upp á þátttöku í jafningjafræðslu í gegnum hæfnihringi svokall- aða, þar sem frumkvöðlakonur hittast á Skype, deila reynslu, Frá námskeiði tengslanetsleiðtoga í Sheffield. MYNDIR: ÁSDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Ásdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun, í viðtali Frumkvöðlakonur samtíðar hittast á Króknum setja sér markmið og vinna aðgerðaráætlun í tengslum við þessi markmið. Í þriðja lagi efling tengsla- neta á hverju svæði, en þrjú tengslanet voru mynduð á svæðunum sem stýrt var af sjálfboðaliðum, frumkvöðla- konum á svæðinu. Þetta hefur verið einstaklega skemmtilegt ferðalag með góðu fólki, en hingað koma einmitt sam- starfsaðilar frá hinum lönd- unum til að heimsækja fjörð- inn fagra og skoða sig um, og munu þeir einnig taka þátt í ráðstefnunni. Fyrir hverja er ráðstefnan? Hún er fyrir konur sem reka fyrirtæki eða hafa viðskipta- hugmynd en vita kannski ekki hvar á að byrja og vilja kynnast þessum vetvangi. Líka fyrir þær sem vilja læra eitthvað nýtt og efla tengslanetið. Þetta er eiginlega bara fyrir flestar ef ekki allar konur! Á ráðstefnunni verður verkefnið kynnt stuttlega en aðaláherslan er lögð á þátttöku í gegnum þrjár spennandi örvinnustofur í stefnumótun, markaðssetningu á netinu og hönnunarhugsun. Við fáum góða gesti til að stýra þessu, en það eru starfsmenn SSNV og Austurbrúar en við höfum unnið verkefnið í góðri sam- vinnu við þessi félög. Á ráðstefnunni munu þátt- takendur í verkefninu segja frá sinni reynslu í verkefninu, bæði íslenskir og erlendir. Merethe Rabölle mun segja frá sinni þátttöku í hæfnihring á netinu í vetur og svo kemur Jill Turner, tengslanetsleiðtogi frá Sheffield í Bretlandi og segir okkur frá sinni þátttöku en hún skipulagði tengslanet sem hefur hist á gönguferðum. Að lokum kemur fjöl- miðlakonan Sirrý og kennir okkur hvernig á að kynna sig af öryggi. Við fáum að æfa okkur í þessu en æfingin skapar víst meistarann, en svo er allavega sagt! Þess má geta að konum sem reka fyrirtæki er boðið að koma og kynna vöru sína og þjónustu á meðan á ráðstefnu stendur. Þetta geta verið fyrirtæki í þjónustu hvers- konar, framleiðslu, nýsköpun, hönnun og svo mætti lengi upp telja. Þetta er tilvalin lokaæfing fyrir atvinnulífs- sýninguna sem verður í vor! Þær sem hafa áhuga á þessu geta haft samband við Svein- björgu í netfangið sveinbjorg@ ssnv.is eða í síma 455-2510. Hverjar eru væntingar ykkar með árangur eða hverju ráð- stefnan muni skila til þátttak- enda? Það eru okkar vonir og væntingar að með ráðstefnu sem þessari getum við eflt frumkvöðlaandann hjá konum á svæðinu og hvatt konur áfram sem nú þegar reka fyrirtæki. Svo eru það hinar sem hafa kannski einhverja viðskiptahugmynd en vita ekki alveg hvar á að byrja. Því fleiri fyrirtæki því meiri fjölbreytni og betra samfélag þar sem allir fá að njóta sín. Við viljum líka kynna möguleikana á heimasíðunni okkar en hún verður virk eftir að verkefni lýkur og þar verður hægt að nálgast námsefnið. Svo er þetta tilvalinn vett- vangur til að læra eitthvað nýtt og spennandi, efla tengsla- netið, og svo verður gaman að sjá þá grósku sem til staðar er í þeim fyrirtækjum sem rekin eru af konum en þau eru fjölmörg þegar allt er talið saman. Svo er bara svo gaman þegar konur koma saman! Fer konum fjölgandi í stjórnum fyrirtækja eða sem eigendur? Samkvæmt könnun Hagstof- unnar voru konur 25,9% í stjórnum fyrirtækja árið 2016 og stóð í stað frá árinu áður. Einungis stjórnuðu sex konur 50 stærstu fyrirtækjum lands- ins þannig að hér má nú verulega bæta í. Nú er auðvitað búið að setja lög um kynjakvóta í fyrirtækjum og mun það væntanlega skila sér hægt og bítandi á næstu árum. Hvað varðar eigendur fyrir- tækja þá er hlutfallið svipað og í Evrópu, en þar er meðaltalið um 30%. Það er því alveg ljóst að hér eru tækifæri fyrir konur að stíga fram. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? Mig langar til að nota tæki- færið og hvetja konur til að mæta á ráðstefnuna, efla andann og tengjast. Það er nefnilega svo mikilvægt að virkja tengslanetið, því saman erum við sterkari en í sitthvoru lagi. Skráning á ráðstefnuna fer fram rafrænt og er þátttakendum að kostnaðarlausu https:// www.eventbrite.com/e/lokarastefna-free-efling- frumkvolakvenna-a-landsbygginni- tickets-42494518248 VIÐTAL Páll Friðriksson Hér má sjá tengslanetsleiðtoga frá fimm löndum. Röndóttir sokkar gætu orðið hluti af keppnisbúningum Molduxanna. MYND: PF Vormót Molduxa fer fram 12. maí Einstaklingar geta skráð sig á Molduxamótið Körfuboltafélagið Mold- uxar styrkir fræðslu- og forvarnarátak Krabbameins- félagsins vegna karla og krabbameins með þessum líka æðislegu sokkakaupum. Molduxarnir hvetja önnur félög og hópa að gera það sama. Á fésbókarsíðu ungmenna- félagsins Molduxa segir að hið árlega Molduxamót, í hinni fallegu íþrótt körfubolta, verði haldið laugardaginn 12. maí 2018 í íþróttahúsinu á Sauðár- króki (Síkinu). Mótið verður með sama sniði og á síðasta ári og verður boðið upp á þrjá keppnisflokka: Karlar 40+ ára Karlar 30+ ára Kvennaflokkur Einstaklingar geta líka skráð sig og verður þeim komið fyrir í liðum eða liði. Hægt er að fá nánari upp- lýsingar hjá Val Valssyni í síma 861 9802 eða í netfanginu: valurvalsson@gmail.com. /PF 4 13/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.