Feykir - 11.04.2018, Síða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Úrslitakeppni Dominos-deildarinnar í körfubolta
Staðan er 1–1
Einvígi ÍR og Tindastóls í
undanúrslitum Dominos-
deildarinnar fer vel af stað,
bæði lið unnið einn leik og
staðan í einvíginu því 1–1.
Stólarnir gerðu eins og ætl-
ast var til í fyrsta leiknum í
Seljaskóla og unnu heimamenn
sem voru án Ryan Taylor. Lið
Tindastóls náði snemma ágætu
forskoti og komust mest 18
stigum yfir í síðari hálfleik. Lið
ÍR barðist þó fram á síðustu
sekúndu en Stólarnir lönduðu
góðum sigri, 82-89.
Eftir þennan mikilvæga
sigur vonuðust stuðningsmenn
Tindastóls til þess að strákarnir
fylgdu honum eftir með því að
sigra í næsta leik í Síkinu og ná
2-0 forystu í einvíginu. Sú varð
ekki raunin því Breiðhyltingar
mættu baráttuglaðir og spiluðu
gríðarlega vel. Stólarnir reyndu
hvað þeir gátu til að jafna en ÍR-
ingar svöruðu alltaf að bragði.
Vörn Stólanna fann ekki takt-
inn í leiknum og skot gestanna
voru góð. ÍR vann því leikinn
97–106 og jafnaði einvígið.
Næsti leikur er í Seljaskóla í
kvöld. Áfram Tindastóll! /ÓAB
Skíðalandsmót Íslands
María Finnboga hreppti
tvenn gullverðlaun
Skíðakonan úr Tindastól,
María Finnbogadóttir, tók
þátt í skíðalandsmóti Íslands
sem fram fór í Bláfjöllum og
Skálafelli um helgina. Vel
gekk hjá Maríu sem krækti
í gullverðlaun í svigi og
Alpatvíkeppni.
María keppti í stórsvigi í
Skálafelli á föstudag og varð í
4. sæti í kvennaflokki og öðru
sæti í flokki 16-17 ára. Hún
keppti í svigi á laugardeginum
7. apríl og varð aftur í 4. sæti í
kvennaflokki sem færði henni
3. sætið í Alpatvíkeppni
kvenna.
Alpatvíkeppni er saman-
lagður árangur í svigi og
stórsvigi. Þetta færði henni
gullið í svigi í flokki 16-17 ára.
Hún hreppti einnig gullið í
flokki 16-17 ára í Alpatví-
keppninni.
„Það er auðvitað alltaf
gaman þegar vel gengur og
maður uppsker árangur erfiðis
síns og það á svo sannarlega
við um Maríu. Veturinn hefur
verið henni strembinn svo það
er kærkomið að njóta vel-
gengni á lokamótum vetrarins.
Hún keppti einnig á tveimur
FIS-mótum í svigi á Akureyri
3. apríl og varð í 2. og 3. sæti í
þeim mótum,“ sagði Anna J.
Guðmundsdóttir móðir Maríu
sem vildi koma þökkum á
framfæri til styrktaraðila
Maríu. /PF
Hákon Örn reyndist Stólunum erfiður á sunnudaginn. MYND: HJALTI ÁRNA
Aron Pétursson frá Víðidal
2 í Seyluhreppi í Skagafirði
er landbúnaðarverktaki og
sauðfjárbóndi og einlægur
aðdáandi Aston Villa. Liðið
leikur í næstefstu deildinni á
Englandi en Aron er bjartsýnn
og spáir því að það komist aftur
upp í efstu deild nú í ár.
-Uppáhaldsliðið mitt í enska
boltanum er Aston Villa. Það var
sennilega upp úr aldamótum sem
ég fór að halda með þeim. Það var
verið að reyna að fá mig til að halda
með ýmsum liðum en ég vildi ekki
vera eins og allir hinir og halda með
einhverju af stóru liðunum og varð
Aston Villa fyrir valinu. Mig minnir
að ég hafi eignast fótboltaspjald
með Paul Merson þar sem hann
var í Aston Villa búningi og þannig
hafi þetta allt saman byrjað.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á
tímabilinu? -Ég er bjartsýnn og
spái því að það komist aftur upp
í efstu deild nú í ár. Það er svo
gott sem búið að tryggja sér sæti í
umspili og hef ég fulla trú á því að
það komist í gegnum það.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í
dag? -Já og nei. Auðvitað hefði
ég viljað að þeir væru í fyrsta eða
öðru sæti í deildinni og gætu tryggt
sig beint upp í efstu deild en það
lítur ekki út fyrir að þeir nái tveimur
efstu sætunum svo að það verður
að gera sér umspilið að góðu.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? -Já já, það
kemur fyrir. Þegar illa gengur og
minnimáttarkenndin gerir vart við
sig hjá stuðningsmönnum stóru
liðanna, og þá sérstaklega Arsenal
og United þá er mjög vinsælt
að minna mig á það hvar Aston
Villa stendur í dag en ég tek það
ekkert nærri mér og minni þá
stundum Arsenalmenn á það hvort
liðið, Arsenal eða Villa hafi unnið
Meistaradeildina oftar.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? -Það mun vera Fran-
cesco Totti. Ég tók strax ástfóstri
við hann sem krakki og hefur hann
alla tíð síðan verið mitt uppáhald.
Hann er ástæðan fyrir því að ég
styð yfirleitt Ítalíu á stórmótum og
held mikið upp á Roma í ítalska
boltanum. Svo er ekki annað
hægt en að dást að tryggðinni og
virðingunni sem hann sýndi Roma
allan sinn feril.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? -Nei, skömm frá því að
segja. Ég mætti ekki einu sinni
þegar þeir kepptu á móti FH
hér heima á Íslandi. En þetta er
eitthvað sem er á dagskránni og
mun ég vonandi eiga möguleika
á að mæta á leik hjá þeim í efstu
deild á næstu leiktíð. Annars finnst
mér að við Baldur [Haraldsson frá
Brautarholti, innsk. blm.] yrðum að
skella okkur á Wembley ef Aston
Villa og Fulham mætast í úrslitaleik
í umspilinu um sæti í úrvalsdeild í
vor.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? -Það er nú ekki mikið. Þar
Aron Pétursson / Aston Villa
Francesco Totti
uppáhaldsleikmaðurinn
( LIÐIÐ MITT ) palli@nyprent.is
Stoltur Aston Villa stuðningsmaður. MYND ÚR EINKASAFNI
sem það er nú ekki hlaupið að því
að finna Aston Villa varning í búðum
hér á Íslandi, og ég afskaplega latur
við að panta mér eitthvað í gegnum
netið, er ekki mikið til af því hjá mér.
Ég á eina treyju sem ég fékk gefins
frá Baldri og svo eitt hálsmen,
annað er það nú ekki.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið? -Það er engin reynsla
komin á það ennþá, en það mun
eflaust ganga vel þegar að því
kemur, enda Aston Villa á hraðri
leið uppávið og verður meðal
stæstu liða Englands eftir nokkur ár.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? -Það var
alltaf verið að reyna að fá mig til
þess að halda með ýmsum liðum
þegar ég var yngri en eftir að ég
ákvað að halda með Aston Villa hef
ég ekki haft neina ástæðu til þess
að halda með öðru liði.
Uppáhalds málsháttur? -Allt er
vænt sem vel er grænt
Einhver góð saga úr boltanum?
-Það er nú erfitt að finna einhverja
sögu. Hinns vegar var það sem
einkenndi fótboltann hjá mér á yngri
árum að ég þurfti að nota gleraugu
og fengu þau oft að kenna á því í
fótboltanum. Oft urðu þau beygluð
og snúin og jafnvel brotnuðu. Ég
reyndi að prófa að spila án þeirra
en sjónin er ekki betri en svo að
ég gerði ekki alltaf greinarmun á
samherjum og andstæðingnum og
var það ekki vænlegt til árangurs.
En eftir að ég fór að notast við linsur
var þetta vandamál úr sögunni.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
-Eitt sinn sat ég að sumbli með
nokkrum félögum á bæ einum hér
í sveitinni. Þegar líða fór á nóttina
fór að sækja að mér svefn og fór
ég í eitt herbergið í húsinu og lagði
mig þar. Þegar ég vaknaði um
morguninn stóð veturgamall sauður
í einu horninu á herberginu. Höfðu
þá drengirnir brugðið á það ráð
að sækja sauðinn út í fjárhúsin og
koma honum fyrir inni í herbergi hjá
mér þegar ég var sofnaður og skildu
hann eftir þar.
Spurning frá Baldri Haralds:
Hverjir heldurðu að vinni Meist-
aradeild Evrópu? -Mér finnst
Barcelona vera mjög líklegir en ef
mínir menn í Roma ná að girða
sig í brók í seinni leiknum og sigra
Barcelona hef ég fulla trú á því að
þeir taki þetta.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum? -Þorstein
Frímann Guðmundsson, bróður
minn.
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi? -Hefur Liverpool
það sem þarf til þess að vinna
Meistarardeildina?
María Finnbogadóttir skíðakona. MYND ÚR EINKASAFNI
14/2018 5