Feykir - 11.04.2018, Blaðsíða 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS: Svið.
Feykir spyr...
Ertu eða hefur
þú einhvern
tímann verið á
framboðslista til
sveitarstjórnar?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ekki ennþá.“
Ólína Björk Hjartardóttir
„Nei, ég hef ekki verið
á framboðslista til
sveitastjórna.“
Kristín Hanna Ásbjörnsdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Megnið af volæði veraldarinnar stafar af skorti á
ímyndunarafli. – Þórbergur Þórðarson, Bréf til Láru
Grænmetis-
fiskréttur og
eplakaka
Matgæðingar Feykis þessa vikuna eru Árný Björk Brynjólfsdóttir
og Agnar Logi Eiríksson. Þau eru búsett á Blönduósi ásamt sonum
sínum tveim þar sem Árný starfar á leikskólanum Barnabæ og
Agnar er rafvirki hjá Tengli. Þau ætla að deila með lesendum
uppskrift að grænmetis-fiskrétti og ljúffengri eplaköku.
AÐALRÉTTUR
Grænmetis-fiskréttur
(fyrir 4-6)
1 blaðlaukur
1 rauð paprika
½ askja sveppir
½ poki gulrætur
250 g hrísgrjón (eða 2 pokar)
2-3 ýsuflök/þorskflök
rifinn ostur
1 grænmetiskraftur
aromat
Aðferð: Steikið grænmetið á
pönnu upp úr smá smjöri og
grænmetiskrafti. Sjóðið hrísgrjónin
og fiskinn.
Þegar hrísgrjónin eru tilbúin
eru þau sett í botninn á eldföstu
móti og grænmetinu hellt yfir.
Síðan er fiskurinn lagður yfir græn-
metið og að lokum er rifnum osti
dreift yfir. Stráið svolitlu aromati
yfir ostinn. Eldað í ofni á 180° eða
þangað til osturinn hefur bráðnað.
EFTIRRÉTTUR
Eplakaka
3-4 rauð epli
150 g sykur
150 g hveiti
150 g smjörlíki
kanill
Aðferð: Smyrjið form með olíu.
Eplin eru skorin í smáa bita og lögð
í eldfasta mótið. Kanil er síðan
dreift yfir eftir smekk. Sykri og
hveiti hrært saman, smjörlíki bætt
við og öllu hnoðað saman. Myljið
deigið yfir eplin og bakið við 180° í
20 mínútur eða þangað til kakan er
tilbúin. Borið fram með vanilluís
eða rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Arnrúnu Báru
Finnsdóttir og Kristján Blöndal.
Agnar Logi og Árný Björk. MYND ÚR EINKASAFNI
„Nei, það hef ég aldrei verið.“
Karel Sigurjónsson
„Nei, en minn tími
mun koma.“
Pétur Óli Þórólfsson
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Agnar Logi og Árný Björk á Blönduósi
Sudoku
14/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Kanada er ríkjasamband, þingbundið konungsríki og í sambandi
við Bretland, sem tíu fylki og þrjú sjálfstjórnarsvæði mynda. Það er
annað stærsta land í heimi og nær yfir nyrðri hluta Norður-Ameríku.
Aðeins Rússland er stærra. Ótrúlegt, en kannski satt, þá þekur
Kanada 6,67 prósent af flatarmáli jarðar.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Oddur gáði út á mig.
Af mér lýður fyllir sig.
Ýmsa fýsir í mitt ljós.
Umhverfi til lands og sjós.
FEYKIFÍN AFÞREYING