Feykir - 11.04.2018, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
11. apríl 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Áhersla lögð á barna-
og unglingastarf
Samstarfssamningur milli
UMSS og Svf. Skagafjarðar
Klara Helgadóttir, formaður Ungmennasambands
Skagafjarðar og Ásta B. Pálmadóttir sveitarstjóri Svf.
Skagafjarðar, undirrituðu sl. mánudag samstarfs-
samning sem ætlaður er að efla starf sambandsins og
aðildarfélaga þess með megin áherslu á barna- og
unglingastarf auk þess að stuðla að auknu samstarfi
UMSS og sveitarfélagsins á sviði íþrótta- og for-
varnamála.
Með samningnum skuldbindur sveitarfélagið sig
m.a. til að styrkja UMSS um ákveðna upphæð á ári
hverju sem ákveðin er í fjárhagsáætlun hvers árs og er
styrkurinn eingöngu ætlaður barna- og unglingastarfi
í sveitarfélaginu. Við úthlutun verður gætt jafnræðis
milli drengja og stúlkna en UMSS úthlutar styrknum
til aðildarfélaga eftir ákveðnum reglum.
Að sögn Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra var sam-
þykkt í byggðaráði að veita 800 þúsund krónur aukalega
til þess að fara í herferð og útbúa bækling sem afhentur
verður iðkendum og kynna rétt iðkenda gagnvart
mismunun, einelti og ofbeldi svo eitthvað sé nefnt.
„Ég vildi gjarna færa Arnrúnu Höllu Arnórsdóttur,
fráfarandi formanni UMSS, þakklæti fyrir hennar
miklu vinnu við þennan samning og annað,“ segir
Ásta. Hún telur samninginn góðan fyrir alla og stuðli
að markvissu starfi sambandsins enda vilji sveitar-
félagsins sterkur í þá átt að skapa sterka umgjörð um
íþróttastarf í héraði. /PF
Níu sinnum í einu af
þremur efstu sætunum
Varmahlíðarskóli í úrslit í Skólahreysti
Í síðustu viku kepptu skólar af Norðurlandi í
Skólahreysti í íþróttahöllinni á Akureyri. Keppt var í
tveimur riðlum; Akureyrarriðli og Norðurlandsriðli
en þar háðu tíu skólar keppni. Úrslit í riðlinum urðu
þau að Varmahlíðarskóli bar sigur úr býtum með
57,5 stig og í öðru sæti varð Grunnskólinn austan
Vatna með 47 stig. Húnavallaskóli lenti í sjötta sæti
með 32 stig. Árskóli og Blönduskóli voru ekki með
að þessu sinni.
Athygli vekur að þetta er í fjórða skipti sem
Varmahlíðarskóli vinnur í sínum riðli og kemst þar
með í úrslit þar sem tólf skólar af landinu keppa.
Skólinn hefur tekið þátt í keppninni ellefu sinnum og
verið í einu af þremur efstu sætunum síðustu níu ár.
Þjálfari liðsins, öll árin nema eitt, er Sigurlína
Einarsdóttir, íþróttakennari í Varmahlíðarskóla.
Sigurlína segir að boðið sé upp á Skólahreystival í
skólanum sem allir krakkar í 8.-10. bekk geti skráð sig
í og sé áhuginn meðal krakkanna mjög mikill. Áhersla
sé á að flétta saman gleði og erfiði, leikjum og
skemmtun í upphafi, svo taki við fjölbreyttar þrautir
og loks teygjur og slökunaræfingar í lokin. „Þau eru
yfirleitt mjög einbeitt og meðfærileg og gera allt sem ég
legg fyrir þau með bros á vör, með þessari samvinnu
verða allar æfingar skemmtilegar þó þær séu ansi oft
erfiðar,” segir Sigurlína.
„Nú tekur við að njóta þess og gleðjast yfir að vera
komin í úrslit í svona einn dag og halda svo áfram að
æfa fyrir lokakeppnina og setja sér ný markmið í
sameiningu.” /FE
Border Collie þjálfaðir
Fjárhundanámskeið á Blönduósi
Dagana 18. - 20 apríl nk. verður haldið fjárhunda-
námskeið á Blönduósi sem ætlað er sauðfjárbændum
og smölum með Border Collie hunda með það að
markmiði að hundarnir geti sótt og rekið sauðfé og
nýst almennt sem fjárhundar.
Leiðbeinandi verður Derek Scrimgeour frá
Norðvestur Englandi en hann hefur 30 ára reynslu á
þessu sviði og hefur komist 18 sinnum í enska
landsliðið með tíu mismunandi fjárhunda á 23ja ára
tímabili. /FE
HEIMILI NORÐURSINS
ATVINNULÍFSSÝNING DAGANA 5.–6. MAÍ 2018
Atvinnulífssýning og 20 ára afmæli
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Ákveðið hefur verið að halda atvinnulífssýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki dagana
5.–6. maí nk. Sýningin verður með sama sniði og fyrri sýningar en sú síðasta var haldin árið 2014.
Samhliða sýningunni verður haldið upp á 20 ára afmæli Sveitarfélagsins Skagafjarðar
en í ár eru 20 ár liðin síðan 11 sveitarfélög í Skagafirði sameinuðust í eitt.
Sýningin verður opin á laugardegi frá kl. 10–17 og sunnudegi frá kl. 10–16.
Aðgangur að sýningunni verður ókeypis.
Nánari upplýsingar og skráningarblöð má finna á www.skagafjordur.is/atvinnulifssyning.
TAKIÐ DAGANA FRÁ!
Sigursælt lið Varmahlíðarskóla. MYND AF HEIMASÍÐU VARMAHLÍÐARSKÓLA
Klara Helgadóttir og Ásta Pálmadóttir undirrita samstarfssamning á
milli UMSS og Svf. Skagafjarðar. MYND: PF