Feykir


Feykir - 18.04.2018, Blaðsíða 9

Feykir - 18.04.2018, Blaðsíða 9
Ég fór í mínar fyrstu göngur á Auðkúluheiði árið 1998, seinni göngur, sem farnar eru eftir réttir til að smala því fé sem eftir hefur orðið eftir fyrri göngur. Við fórum saman við pabbi heitinn en hann hafði ekki farið í mörg ár og langaði til að líta á heiðina aftur. Við vorum á fellunum sem kallað er fyrsta daginn í sól og góðu veðri, einhvern örlítinn feil gerðum við nú, fórum vestur í fjöll þegar Fellunum lauk í stað þess að halda stefnu í Hveravelli, en það kom nú ekkert að sök. Í Hveravelli er alltaf gaman að koma, Gunna á Kúlu var matráðskona og það klikkaði nú ekki viðurgjörningurinn hjá henni, svo var farið í laugina og tekið lagið og sopið af fleyg, og sungið meira þegar inn var komið, Jóhann í Holti var gangnaforingi og ég gleymi því aldrei hvað hann söng fallega millirödd við lagið Ég vitja þín æska. Daginn eftir var áfram haldið til leitar að fé, ég man nú ekki hvar við pabbi vorum á göngum þann daginn en gott var að koma í Áfanga í dagslok og fá heitt kakó hjá Gunnu og Döddu, en Dadda á Orrastöðum var til aðstoðar Gunnu þessar göngurnar, og svo veislumaturinn um kvöldið, grillaðir lambahryggir að hætti Gunnu. Þriðja og síðasta daginn hélt smölun áfram, ég man nú svo sem lítið hvernig hann gekk fyrir sig, hlýtur að hafa verið tíðindalítill, en út að heiðargirðingu komumst við og riðum svo niður í Hrafnabjörg og geymdum hestana þar til næsta dags. Ég hef farið í margar seinni göngur síðan og það grípur mann alltaf sérstök tilfinning strax og maður er aðeins kominn fram á heiðina, loftið er tærara og frelsið felst í víðáttunni, ekkert áreiti. Ég hef nú oftast verið síðasta dag gangna einhverstaðar nálægt Blöndugili, þar er dásamlegt að ríða meðfram og horfa á hrikalegt gilið og náttúrufegurðina sem allt umlykur, fara yfir Vallgilið og koma svo í Landsenda sem er út við girðingu niðri við gil, grasi gróinn og alveg sér á parti, það er eitthvað hrífandi við heiðina, einhver þrá til hennar sem aldrei dvín. Með vind í fangið, fé og strangar glímur fylgi rangri götu, þarna er á syngjum langar seinni gangna rímur svona þangað til að lokast brá. - - - - - - - Ég skora á Jón Gíslason á Stóra Búrfelli að koma með pistil. ÁSKORENDAPENNINN Ásmundur Óskar Einarsson Grænuhlíð Fyrstu göngurnar UMSJÓN palli@feykir.is Hvernig nemandi varstu? Ég vona að ég hafi verið ágætur nemandi, áhugasöm og dugleg varðandi efni sem ég hafði áhuga á þó að ýmislegt gæti hafa verið sett í skammtímaminnið. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Þar sem að ég er gríðarlegt afmælisbarn og fermdist á afmælisdaginn minn man ég mest eftir því hvað ég var ánægð með DVD spilara sem ég fékk í fermingargjöf því þar fékk ég ástæðu til þess að fara út á næstu videoleigu, leigja mér DVD mynd, segja kennitöluna mína og þannig fá aðra afmæliskveðju frá starfsmanninum. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði mér að verða rannsóknarlögreglumaður, arkitekt eða lýtalæknir og varð því augljóslega ferðamálafræðingur. Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Það voru dúkkulísur sem afi klippti út fyrir mig og ég litaði síðan. Ég á þær ennþá. Besti ilmurinn? Allt sem á ein- hvern máta má tengja við jólin. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Ég og besta vinkona mín vorum ákaflega duglegar við að tína saman bestu lög hvers tíma og lögðum hug okkar og hjarta í að búa til safn- diska sem var það eina sem hlustað var á í rauðgulu Nissan Micrunni sem var farartækið mitt á þeim tíma. Á diskunum mátti finna allt frá Snoop Dog til Karlakórsins Heimis – en hvert lag var sérvalið. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? I Will Survive með Gloriu Gaynor - fyrirgefið allir sem hafa eða munu heyra mig í kareókí. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Áramótaskaupinu. Besta bíómyndin? Cry Baby, vegna þess að ég á bara góðar minningar með mömmu tengdar þeim skiptum sem ég hef horft á hana. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta, í heild. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Keyri gokartbíla. Hvert er snilldarverkið þitt í ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Guðríður Hlín Helgudóttir en alltaf kölluð Gauja. ÁRGANGUR: 1987. FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Ólafi Tryggvasyni og eigum við saman Tryggva Gunnar (5 ára) og Helga Leó (4 ára) en svo á ég líka stjúpdótturina Júlíu Jöru. BÚSETA: Á besta stað á Hvammstanga. STARF/NÁM: Ferðaskrifstofustjóri Seal Travel, verkefnastjóri Selasetursins og nýkjörin formaður Ferðamálasamtaka Norðurlands Vestra. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er sjaldan lognmolla í kringum mig en í augnablikinu er ég að ljúka við gerð smáforrits (e. app) sem er leiðsögn og upplýsingaforrit fyrir ferðamenn, og aðra, um Húnaþing vestra, við erum einnig að ljúka við DMP vinnu fyrir Norðurland, undirbúa sumarið á Selasetrinu ásamt ýmsum öðrum skemmtilegum verkefnum með stjórn Ferðamálasamtakanna. Gauja Hlín eldhúsinu? Þar sem ég er með ofnæmispésa á heimilinu hef ég þurft að læra nýjar leiðir í mörgu en ætli það sé ekki döðlukakan mín. Hættulegasta helgarnammið? 50% afslátturinn í Hagkaup, hef án gríns keyrt 200 km fyrir hann. Hvernig er eggið best? Þar sem sonur minn er með mikið eggja- ofnæmi þá finnst mér eggið best sem lengst í burtu frá honum. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Get verið fullkomn- unarsinni hvað varðar sjálfa mig. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fordómar og ókurteisi. Uppáhalds málsháttur eða til- vitnun? Það gerist það sem á að gerast. Hver er elsta minningin sem þú átt? Einn leikskóladaginn minn grófum ég og vinur minn göng undir hliðið út af leikskólalóðinni og hlupum til fjölskylduvinar sem bjó nálægt. Komum stuttu seinna til baka með alla vasa fulla af Daim súkkulaði. Ég hef verið um 4 ára. Hvaða teiknimyndapersóna höfð- ar mest til þín? Dóra í Leitin af Nemo – Just keep swimming. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Ég myndi vilja vera Jeff Bezos [stofnanda Amazon-netverslunarinnar] og nýta alla frægðina hans og peninginn í það að gera heiminn betri fyrir alla. Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Dóttir Veðurguðsins er frábær bók til að lesa fyrir eða með börnunum sínum. Helga Sv. Helgadóttir er ekki bara snillingur þegar kemur að því að skrifa bækur sem höfða til allra heldur er hún líka uppáhalds mamman mín. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? „mmmbæ” skilst mér á þeim sem hafa talað við mig í síma. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Að mínu mati eru það amma mín og afi. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Færi til ársins 1950 og myndi hanga með ömmu og afa. Afi var stórskemmtilegur söngfugl frá Skagafirði svo að það var aldrei leiðinlegt í kringum þau tvö. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? „Ég sagði ykkur að þetta myndi reddast” Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... beint til Spánar með alla sem ég elska Ef þú ættir að dvelja alein á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Hníf, Sriracha sósu og bjór. Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Vera partur af uppbyggingu og vexti ferðaþjónustu á Norðurlandi, fá súkkulaði nefnt eftir mér og auðvitað þetta sígilda: að sjá börnin mín vaxa og dafna. Gauja Hlín. MYND ÚR EINKASAFNI Ásmundur með tvo til reiðar. MYND ÚR EINKASAFNI 15/2018 9 Ert þú búinn að kíkja til okkar? Feykir.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.