Feykir - 25.04.2018, Blaðsíða 9
AÐSENT : Frá meirihluta sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar
Sýndarveruleiki minnihluta sveitarstjórnar
Í ljósi umræðna og bókana
fulltrúa minnihlutans í
sveitarstjórn vill meirihluti
sveitarstjórnar leiðrétta þær
rangfærslur sem komið hafa
fram í málflutningi þeirra.
Mikilvægt er að rétt sé farið
með staðreyndir.
Hugmyndir um sýndarveru-
leikasýningu í Skagafirði komu
fyrst upp af hálfu forsvars-
manna hennar seinni hluta árs
2016 og var jákvætt tekið í að
skoða þessar hugmyndir um
að efla enn frekar ferða-
mennsku og aðdráttarafl
Skagafjarðar fyrir þann hóp og
aðra gesti sem heimsækja
héraðið, eins og önnur áform
sem lúta að fjölbreyttri
atvinnuuppbyggingu vítt og
breytt um héraðið.
Var óformlega rætt um
málið á fundum byggðarráðs í
kjölfarið og ákváðu aðalmenn
í byggðarráði Sveitarfélagsins
Skagafjarðar ásamt öðrum
sveitarstjórnarfulltrúum m.a.
að kynna sér um hvað sýndar-
veruleiki (Virtual Reality)
snerist í Háskólanum í Reykja-
vík í tengslum við fjármála-
ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga í lok september
það ár. Í þá heimsókn fóru allir
aðalmenn í byggðarráði utan
fulltrúa K-lista sem komst ekki
með en var meðvitaður um
heimsóknina og málið á þeim
tíma.
Síðan þetta gerðist hefur
oftsinnis verið rætt um málið í
byggðarráði, atvinnu-, menn-
ingar- og kynningarnefnd og í
sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, bæði óformlega
og formlega, með bókunum í
trúnaðarbók og einnig á seinni
stigum með opnum bókunum.
Þannig var formlega rætt um
málið og framkvæmdir því
tengdar á 6 fundum atvinnu-,
menningar- og kynningar-
nefndar og byggðarráðs á
árunum 2017-2018 og þær
fundargerðir staðfestar í
sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar mótatkvæðalaust
og með öllum greiddum
atkvæðum.
Var m.a. rætt um málið á
fundi byggðarráðs 21. desem-
ber 2017 þar sem undir þeim
dagskrárlið voru einnig við-
staddir allir aðrir aðalmenn í
sveitarstjórn utan eins fulltrúa
frá meirihluta, sem og allir
aðalmenn og áheyrnarfulltrúi
í atvinnu-, menningar- og
kynningarnefnd. Var þar
bókað: „Til fundarins kom
Ingvi Jökull Logason og kynnti
áform um atvinnuuppbyggingu
í húsnæði sveitarfélagins að
Aðalgötu 21. Byggðarráð
samþykkir að halda áfram
viðræðum við Ingva Jökul og
verja allt að 2,5 m.kr. af þeim
80 m.kr. sem tilgreindar eru í
fjárhagsáætlun vegna Aðalgötu
21 og 21a, til verkáætlunar
innanhúss.“ Var málið þannig
komið á það stig á þessum
tíma að tekin var ákvörðun
með samþykki allra flokka í
sveitarstjórn, fulltrúum þeirra
í byggðarráði og fulltrúum
þeirra í atvinnu-, menningar-
og kynningarnefnd um að
ráðast í verkáætlun innanhúss
í fyrrgreindum húsum með
sýndarveruleikasýningu í
huga. Engum duldist á þessum
tíma hvað til stóð.
Þann 20. febrúar sl. var
byggðarráð kallað saman til
óformlegs fundar til að fara
yfir fyrstu drög að samningi
við Sýndarveruleika ehf. Á
þann fund mættu allir
byggðarráðsfulltrúar.
Á byggðarráðsfundi þann 1.
mars sl. var rætt utan dagskrár
að boðað yrði til aukafundar í
byggðarráði daginn eftir þar
sem fulltrúar Sýndarveruleika
myndu koma til þess að ljúka
samningsgerðinni. Um það
voru allir byggðarráðsfulltrúar
sammála og var boðað til
fundar.
Á fundinum 2. mars sl.
voru lögð fram uppfærð drög
að samstarfssamningi milli
Sýndarveruleika ehf. og
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
um uppbyggingu sýndarveru-
leikasafns á Sauðárkróki.
Undir þessum dagskrárlið sat
fundinn ásamt öllum fulltrú-
um í byggðarráði, Ingvi Jökull
Logason fulltrúi Sýndarveru-
Húsin við Aðalgötu sem hýsa eiga Sýndarveruleikasýninguna. MYND: FE
leika ehf. Að loknum þeim
fundi þar sem farið var
vandlega yfir alla liði samn-
ingsins samþykkti byggðarráð
framlögð samningsdrög án
nokkurra athugasemda.
Það var ekki fyrr en á
byggðarráðsfundi þann 8.
mars sl. að Bjarni Jónsson
áheyrnarfulltrúi VG í byggðar-
ráði fór að bóka á annan máta
um málið. Það gerði hann
þrátt fyrir að fulltrúar minni-
hlutans í byggðarráði hafi
tekið fullan þátt með fulltrúum
meirihlutans í yfirferð og
mótun samstarfssamnings við
Sýndarveruleika ehf. vikurnar
á undan og samþykktu m.a.
aðeins viku fyrr samstarfs-
samninginn án nokkurra ath-
ugasemda, enda höfðu full-
trúar minnihlutans tekið
fullan og virkan þátt í gerð og
breytingum samnings-drag-
anna með fulltrúum meiri-
hlutans.
Það er því holur hljómur í
máli fulltrúa minnihlutans í
sveitarstjórn í þessu máli og
ekki laust við að kosninga-
skjálfta virðist farið að gæta
þar. Er sorglegt að slíkur
skjálfti beinist að áformum um
verulega fjárfestingu og at-
vinnuuppbyggingu á sviði
ferðaþjónustu í Skagafirði sem
mun hafa mikil og jákvæð
áhrif á aðra ferðaþjónustu og
stoðþjónustu hennar á svæð-
inu, enda oft verið rætt um að
það vanti aukið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn og aðra gesti á
svæðið.
Sveitarstjórnarfulltrúar
meirihluta Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks munu
áfram leita leiða til að efla og
styrkja samfélagið í Skagafirði
með ráðum og dáð. Fjölbreytt
atvinna er forsenda búsetu og
velferðar íbúanna og eykur um
leið margbreytileika í þjónustu
og afþreyingu sem styrkir
samkeppnishæfni Skagafjarðar
og mikilvægt er að efla. Sjaldan
eða aldrei hefur verið ráðist í
eins mörg uppbyggingarverk-
efni víða um hérað eins og á
þessu kjörtímabili, um leið og
gætt hefur verið ábyrgðar í
rekstri líkt og fjárhagsáætlanir
og rekstrarafkoma Sveitarfél-
agsins Skagafjarðar hefur
borið vitni um á kjörtíma-
bilinu.
Stefán Vagn Stefánsson,
Sigríður Svavarsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir,
Bjarki Tryggvason,
Gunnsteinn Björnsson,
Sigríður Magnúsdóttir
og Þórdís Friðbjörnsdóttir.
Lionsklúbbur Skagafjarðar afhenti, í
síðustu viku, sundlauginni í Varmahlíð
hjartastuðtæki sem ekki var til á staðnum.
Tækin hafa margsannað gildi sitt og því fannst
Lionsmönnum ótækt að ekki væri til tæki í
sundlauginni.
Sigurður Guðjónsson, formaður klúbbsins,
sagðist ánægður með að klúbburinn gæti hjálpað
til með þetta. Ekki var safnað sérstaklega fyrir
tækinu þar sem klúbburinn hefur tekjustofna
sem renna í svona málefni og byggist á
vinnuframlagi klúbbfélaga. Tækið kostar um 250
þúsund.
Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varma-
hlíðarskóla og yfirmaður íþróttamannvirkja,
segir gjöfina afar verðmæta að öllu leyti og er
þakklát Lionsmönnum. Hún vonaðist til þess að
ekki kæmi til að nota þyrfti tækið. Starfsmenn
sundlaugarinnar minntust þess ekki að slík atvik
hafi komið upp í sundlauginni að hnoða þyrfti
eða beita stuðtæki og er það vel.
En allur er varinn góður og enginn veit
hvenær slíkt ber að höndum.
Starfsfólk sundlaugarinnar fer á skyndi-
hjálparnámskeið á hverju ári og lærir m.a. á
hjartastuðtæki og er því ávallt viðbúið því að
neyðaratvik kunni að eiga sér stað.
Ekki er langt að minnast tveggja atvika þar
sem hjartastuðtæki komu að góðum notum.
Annars vegar fór fullorðinn maður í hjartastopp í
sundlauginni á Hofsósi og hins vegar kona í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Urðu rétt viðbrögð
starfsmanna íþróttamannvirkjanna sem og
staðsetning hjartastuðtækjanna til þess að bæði
lifa í dag. /PF
Sigurður Guðjónsson, formaður Lionsklúbbs Skagafjarðar, afhendir Hönnu Dóru Björnsdóttur, skólastjóra Varmahlíðarskóla og
yfirmanni íþróttamannvirkja, góða gjöf frá klúbbnum. Með á myndinni eru starfsmenn sundlaugarinnar, Friðrik Þór Jónsson, Monika
S. Borgarsdóttir og Hafsteinn Harðarson. MYND: PF
Góð gjöf frá Lionsklúbbi Skagafjarðar
Hjartastuðtæki í sundlaugina í Varmahlíð
16/2018 9