Feykir - 16.05.2018, Síða 2
Það er gömul saga og ný að stuttu fyrir hverjar kosningar
fara pennar á loft eða að tikka fer í lyklaborðum
frambjóðenda sem geysast fram á ritvöllinn til að segja
frá eigin ágæti eða hvað betur mætti fara hjá öðrum. Þetta
getur verið vandasamt og snúist upp í andhverfu sína ef
ekki er varlega farið. (Mér finnst persónulega að póli-
tíkusar mættu vera duglegri
að senda inn greinastúfa á
milli kosninga.)
Sá er hælir sjálfum sér of
mikið getur orðið kjánalegur
í augum lesenda og sá er
gagnrýnir of mikið getur
virkað leiðinlegur. Hvorugt er
gott fyrir viðkomandi pistla-
höfund. Mátuleg sjálfhælni er
prýðileg eða að minnsta kosti ef farið er fínt í hlutina. Má í
því sambandi rifja upp sögu um einn snilling, austan Vatna,
sem sagði að Hjálmar í Hólkoti væri sá alhraustasti maður
sem hann hafði nokkurn tímann kynnst: „Ég rétt hef´ann í
sjómann!“ sagði hann en auðvitað var falin smá sjálfhælni í
orðunum.
Vinur er sá er til vamms segir, hljómar kunnur málsháttur
og merkir að vinur sé sá sem leyfir sér að benda á það sem
betur má fara. Þetta getur komið mönnum til góðs, bæði
þeim sem gagnrýndur er málefnalega og hinum sem
gagnrýnir. Við þekkjum það hvað gagnrýni getur verið
einkar ómálefnaleg í kommentakerfum netmiðla og svo
aftur fagleg annars staðar t.d. hjá Agli Helga á RÚV í
sambandi við ýmsa listsköpun.
Stundum er gagnrýnt með ljótum orðum eða ósannindum,
í besta falli hálfsannleik. Það er ekki gott fyrir þann sem les
og tekur upp vitleysuna og fær um leið rangar upplýsingar.
Einu sinni heyrði ég einn ágætan segja að ef ætti að
gagnrýna einhvern svo mark væri á takandi væri gott ráð að
hæla honum fyrst og segja honum svo til syndanna. „Þú ert
magnaður á margan hátt en gerir þetta kolvitlaust“.
Veit ekki hvort Björgvin Halldórsson hafi verið meðvitaður
um þetta þegar hann sagði eitthvað á þessa leið: „Flottur
söngvari, en eitthvað svo glataður“.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Vinur er sá er til vamms segir
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
un er unnin í góðu samstarfi
milli SFR, St.Rv., fjármála- og
efnahagsráðuneytisins og VR.
Þær stofnanir sem hlutu
titilinn Stofnun ársins eru
Persónuvernd, Ríkisskattstjóri
og Framhaldsskólinn í Vest-
mannaeyjum en Fyrirmyndar-
stofnanir í flokki stærri stofn-
ana eru: Reykjalundur,
Vínbúðin ÁTVR, Fjölbrauta-
skóli Suðurnesja og Fjölbrauta-
skóli Norðurlands vestra.
/PF
Frá ahendingunni. Ingileif frá FNV er þriðja frá vinstri á myndinni. MYND: SFR.IS
FNV fékk viðurkenningu SFR
Hástökkvari ársins sem fyrirmyndarstofnun
Í aflatölum í síðasta tölublaði Feykis vant-
aði löndun á Skagaströnd upp á 419.833
kíló af togaranum Arnari HU og einnig var
röng aflatala hjá Óla á Stað sem veiddi
2.659 kíló. Því var heildaraflinn á Skaga-
strönd í vikunni 29. apríl – 5. maí 466.434
kiló.
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi
vestra var 273.176 kíló og skiptist þannig
milli veiðarfæra: Botnvarpa 197.028 kíló,
grásleppunet 40.524 kíló, handfæri 20.735
kíló, dragnót 13.015 kíló og lína 1.874 kíló. Á
Hofsósi var landað rúmum níu tonnum, 223
tonnum á Sauðárkróki, 27 tonnum á Skaga-
strönd og tæpum 14 tonnum á Hvamms-
tanga. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 6. – 12. maí 2018
40 tonn í grásleppunetin
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 9.858
Mars HU 41 Grásleppunet 925
Onni HU 36 Dragnót 2.860
Alls á Hvammstanga 13.643
HOFSÓS
Geisli SK 66 Handfæri 712
Skáley SK 32 Grásleppunet 3.056
Von SK 21 Grásleppunet 2.400
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 3.299
Alls á Hofsósi 9.467
SKAGASTRÖND
Arndís HU 42 Handfæri 864
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 785
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 2.298
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.304
Dagrún HU 121 Handfæri 2.492
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 1.717
Geiri HU 69 Handfæri 1.615
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.518
Hafdís HU 85 Grásleppunet 2.131
Jenný HU 40 Handfæri 916
Kambur HU 24 Grásleppunet 1.593
Loftur HU 717 Handfæri 1.254
Már HU 545 Grásleppunet 1.753
Onni HU 36 Dragnót 297
Óli á Stað GK 99 Lína 1.874
Svalur HU 124 Handfæri 789
Sæfari HU 212 Grásleppunet 1.662
Sæunn HU 30 Handfæri 786
Víðir EA 423 Handfæri 1.427
Alls á Skagaströnd 27.075
SAUÐÁRKRÓKUR
Dalborg EA 317 Handfæri 679
Drangey SK 2 Botnvarpa 197.028
Fannar SK 11 Grásleppunet 1.833
Fálki ÞH 35 Grásleppunet 2.704
Gammur II SK 120 Grásleppunet 1.833
Gjávík SK 20 Handfæri 1.409
Hafey SK 10 Grásleppunet 3.542
Kaldi SK 121 Grásleppunet 158
Kristín SK 77 Handfæri 957
Maró SK 33 Handfæri 890
Már SK 90 Grásleppunet 5.320
Steini G SK 14 Grásleppunet 1.659
Sæfari SK 100 Grásleppunet 2.641
Vinur SK 22 Handfæri 1.177
Ösp SK 135 Handfæri 1.161
Alls á Sauðárkróki 222.991
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra komst í hóp fimm
Fyrirmyndarstofnana árið
2018 í flokki stofnana með
50 starfsmenn eða fleiri.
Þá fékk hann sérstaka
viðurkenningu fyrir að vera
hástökkvari ársins í sínum
flokki. Viðurkenninguna
fær skólinn á grundvelli
árlegrar könnunar á vegum
SFR, sem er stéttarfélag í
almannaþjónustu.
Á heimasíðu SFR segir að
valið á Stofnun ársins hafi verið
kynnt við hátíðlega athöfn á
Hilton Nordica í liðinni viku en
titlana Stofnun ársins og Fyrir-
myndarstofnun hljóta þær
stofnanir sem þykja skara fram
úr að mati starfsmanna. Könn-
Umhverfismál
Hreinsunarátak á Hofsósi
Í tilkynningu um átakið
sagði að það rusl sem ekki yrði
fjarlægt af hálfu landeigenda
eða lóðarhafa yrði fjarlægt á
kostnað eigenda sinna. Dagana
á undan fór heilbrigðiseftirlitið
um þorpið og límdi áminn-
ingarmiða á númerslausar
bifreiðar þar sem veittur var
tveggja vikna frestur til að
bregðast við, að öðrum kosti
yrðu þær fjarlægðar á kostnað
eigenda sinna og komið fyrir á
geymslusvæði sveitarfélagsins
þar sem þær verði geymdar í
45 daga áður en þeim verði
fargað.
Að sögn Indriða Þórs
Einarssonar, sviðsstjóra veitu-
og framkvæmdasviðs hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði er
áætlað að gera samskonar átak
víðar í sveitarfélaginu í fram-
haldinu. /FE
Sveitarfélagið Skagafjörður og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands
vestra stóðu í sameiningu fyrir hreinsunarátaki á Hofsósi
dagana 10. – 14. maí. Var óskað eftir samvinnu við íbúa,
lóðareigendur og fyrirtæki og þeir beðnir að fjarlægja ónýta
og óþarfa hluti í því skyni að gera þorpið sem snyrtilegast.
2 19/2018