Feykir - 16.05.2018, Side 9
Þegar ég vaknaði í morgun
mundi ég eftir að ég hefði
lofað ritstjóra Feykis að
senda honum greinarkorn
og fór að velta fyrir mér um
hvað það ætti að vera? Mér
datt svo sem eitt og annað í
hug en ekkert eitt varð
ofan á. Fór ég síðan fljót-
lega upp í hesthús og eftir
venjuleg morgunverk tóku
útreiðar við.
Í einum túrnum mætti ég
stórkostlegum reiðmanni. Ég
ætla ekkert að verða nákvæmari
í frásögninni né persónulegri,
hvoru tveggja væri auðvelt en
óþarft að sinni. Því þegar ég
virti fyrir mér taumtökin, svip
mannsins og viðbrögð hestsins
kom eftirfarandi ljóðahending
upp í hugann:
„Og öll sú kynlega kynngi‘ í sæti,
er hvatti hrossin að stíga fæti
sem væru á fagnaðarför.“
Núlifandi maðurinn kemur
ekki meira við sögu en ég sný
mér að látnum. Hendingin er
úr ljóði eftir Sigurð frá Brún
(1898-1970) um Bjarna
Jóhannesson (1861-1941) sem
kunnari er undir kenninafninu;
Hesta-Bjarni og birtist það í 3.
ljóðaflokki bókarinnar Rætur
og mura sem kom út hjá Norðra
1955, yfirskrift flokksins var:
Lifendur og látnir. Heitir ljóðið
einfaldlega Hesta-Bjarni.
Báðir þessir menn; Hesta-
Bjarni og Sigurður frá Brún eru
stórmerkar persónur í sögu
hestamennsku og hrossaræktar
á Íslandi. Allvel menntaðir að
auki miðað við sinn samtíma.
Bjarni var Möðruvellingur og
stundaði barnakennslu á
vetrum. Sigurður Jónsson frá
Brún var gagnfræðingur frá
Akureyrarskóla 1915 en
skólinn var þá ekki kominn
með réttindi til að útskrifa
stúdenta. Hann var svo studdur
af ættmennum sínum til náms
við MR en dróst þar inn í deilur
og hætti námi en lauk svo
kennaraprófi 1919.
Hesta-Bjarni var besti og
líklega afkastamesti tamninga-
maður sinnar samtíðar hvað
fjölda taminna hrossa varðar,
að mati Ásgeirs Jónssonar frá
Gottorp, einn stórhestamað-
urinn til sem verður þó ekki
rætt meira um að þessu sinni.
Hesta-Bjarni var þó lengur að
HESTAR OG MENN
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Af Sigurði frá Brún og Hesta-Bjarna
temja en flestir aðrir; hann
vandaði svo til verksins en hann
var svo þrautseigur og lengi að:
Dag eftir dag, viku eftir viku,
mánuð eftir mánuð, ár eftir ár
og endalaust ný hross, árin urðu
að áratugum og þegar hann féll
í valinn áttræður var hann í enn
einum tamningatúrnum og
förinni heitið, svo sem löngum,
norður í Eyjafjörð en auðvitað
voru vinnubrögðin undir það
síðasta orðin káklkenndari en
þegar sól hans var í hádegisstað.
Aðferðir Hesta-Bjarna við
tamningar hafa staðist tímans
tönn og má enn mikið af þeim
læra.
Sigurður Jónsson frá Brún
reyndi fyrir sér í búskap, eins og
Bjarni gerði raunar líka en með
litlum árangri hjá báðum. Hann
kenndi nokkuð víða um land,
hann þótti ekki góður tamn-
ingamaður en fágætur ferða-
garpur og var leiðsögumaður
um landið og fylgdarmaður
náttúrufræðinga við rannsóknir
sínar. Sigurður frá Brún var að
auki öflugur hrossaræktar-
maður (sjá grein Óskars Bergs-
sonar Týndi risinn í Hesta-
blaðinu - Hestar og hestamenn,
jólablað 2012). Síðast en alls
ekki síst var Sigurður frá Brún
skáld hann sendi frá sér auk
Róta og muru sem þegar er
nefnd, ljóðabókina Sandfok
árið 1940. Kveðskapur hans er
það viðurkenndur að ljóð eftir
hann er að finna í Íslenzku
ljóðasafni sem út kom hjá AB í
ritstjórn Kristjáns Karlssonar.
Að auki komu út eftir Sigurð
bækurnar: Einn á ferð og oftast
ríðandi, hjá Norðra 1954 og
Stafnsættirnar, hjá Bókaforlagi
Odds Björns-sonar 1964. Í fyrri
bókinni fjallar Sigurður um sín
margháttuðu ferðalög og í
þeirri síðari um ræktunarstarf
sitt, einkum þó rætur þess.
Ýmislegt tengir þessa tvo
merkismenn saman, ekki síst
ljóðið sem vitnað var til hér
fyrr, þótt niðurlagið lýti annars
gott ljóð. Kennir þar því miður
eðlisgróinnar bölsýni Sigurðar,
því ýmislegt gott var þá við lýði,
þótt vissulega hafi ekki glæsi-
staða hestamennskunnar í dag
blasað við á dögum Sigurðar
Jónssonar frá Brún.
Kristinn Hugason
Hesta-Bjarni.
Hesta Bjarni
Illur fyrir eigin hatt
-en oft voru störf hans þokkuð –
Hesta–Bjarni sagði satt,
segði hann annars nokkuð.
Hann fór um héruð með fjölda hesta
og flutti löngum það allrabesta,
sem bærði þar hóf eða há,
í gömlum hnakki með gæruskinni,
með glaskorn falið í ermi sinni
og dreypti því ótæpt á.
En hann var gleyminn á hættur manna,
og haga fannst honum ljótt að banna,
Því hjá honum svengdust hross.
Þó vannst svo, um það er karlinn kvaddi,
að koman heimamenn lengi gladdi.
Og eftir í högum varð hross.
Fyrir kom, að hann fjandann nefndi
og flutti nafnið, svo af því kemdi
og fáfróðum folum brá.
Og heimili hans og hans og afa og ömmu
í andartakinu brennivínsrömmu
hann hrappaði hrossin á.
En stangarleikurinn – hægur hljóður –
hve hann var indæll og vær og góður.
Hann var eins og koss á vör.
Og öll sú kynlega kynngi‘ í sæti,
er hvatti hrossin að stíga fæti
sem væru á fagnaðarför.
Því námu folar hans hlýjan huga,
og hann gat fengið þá til að duga
þá best, þegar mest þurfti með.
En klækjum, refjum og vondum vana
þeim vann hann eilífan, harðan bana
og gerði úr hreinlegt geð.
Nú er hann hættur að hleypa klárum.
Því hittist varla á þessum árum
hið skriðgóða dunandi skeið.
Og stóra, hástíga, hraða töltið
er horfið með honum. Hvolpanöltið,
það lýtir nú flesta reið.
Undirritaður stóð fyrir
léttu klúðri í frétt um tón-
leika Óskars Péturssonar í
síðasta Feyki.
Í fréttinni var talað um
að Lovísa Einarsdóttir hefði
slegið í gegn með söng
sínum en í myndatexta var
stúlkan réttilega sögð heita
Lydía.
Er Lydía beðin afsökunar
á þessum mistökum. /ÓAB
Leiðrétting
Það var
Lydía sem
sló í gegn
Marín Lind Ágústsdóttir
og Örvar Freyr Harðarson
úr Tindastóli voru valinn
af þjálfurum U15 ára
körfuboltalandsliðanna
í lokahópa fyrir sumarið
2018.
Alls eru 18 leikmenn
valdir hjá stúlkum og
drengjum sem skipa tvö
níu manna landslið og taka
liðin þátt á Copenhagen-
Invitational mótinu í
Farum í Danmörku um
miðjan júní. /PF
U15 landslið í körfu
Tvö úr
Tindastól í
landsliðum
Sótt hefur verið um
byggingarleyfi til þess
að setja upp sjálfs-
afgreiðslustöð N1 fyrir
eldsneyti á plani á
lóð félagsheimilisins
Víðihlíðar í Húnaþingi.
Í því felst að setja upp;
tvöfaldan geymi (gám),
sambyggða olíu- og sand-
skilju, Ad-Blue geymi í
jörð, afgreiðsluplan og
afgreiðslutæki ásamt lögn-
um sem tilheyra fram-
kvæmdinni samkvæmt því
sem kemur í fundargerð
skipulags- og umhverfis-
ráðs Húnaþings vestra. /PF
Húnaþing vestra
Sjálfsaf-
greiðslustöð
í Víðihlíð
19/2018 9