Feykir - 16.05.2018, Blaðsíða 10
Fyrir fjórum árum voru
þau hjónin Guðrún Hildur
Rosenkjær og Ásmundur
Kristjánsson hjá Annríki
– þjóðbúningar og skart í
Hafnarfirði með kynningu á
íslenskum þjóðbúningum í
Húsi frítímans á Sauðárkróki.
Upp úr þeirri kynningu
spratt hópur sem síðan hefur
verið á námskeiðum í gerð
faldbúninga.
Félagsskapurinn Pilsaþytur
hefur aflað styrkja til að standa
straum af ferðakostnaði leið-
beinanda og húsaleigu vegna
námskeiðanna. Þessi hópur
hefur því getað setið við sama
borð og nemendur á höfuð-
borgarsvæðinu hvað kostnað
varðar. Og þær hafa setið við
sauma í rúmlega þrjú ár.
Föstudaginn 4. maí sl. var svo
komið að uppskeru þegar fjórar
konur útskrifuðust af þessari
námskeiðaröð í Hóladóm-
kirkju sem myndaði afskaplega
skemmtilega umgjörð um
þessa glæsilegu búninga. Það
var eins og að detta inn í söguna
þegar maður kom inn í
kirkjuna. Fjöldi manns var við-
staddur þessa athöfn og margir
gestir skörtuðu þjóðbúningum
af þessu tilefni.
Við athöfnina flutti Guðrún
Hildur erindi um Guðrúnu
Skúladóttur (1740-1816) sem
var dóttir Skúla fógeta og
uppalin í Skagafirði. Guðrún
þessi var annáluð hannyrða-
kona og var nefnd „blómstr-
anna móðir“. Síðan var nem-
endum afhent skírteini upp á
að þeir hefðu lokið námskeið-
um sínum. Í lokin var svo
sungið lag Atla Heimis
Sveinssonar við Íslenskuljóð
Þórarins Eldjárns og Þjóðbún-
ingaljóð Guðrúnar Sighvats-
dóttur en Guðrún samdi
þennan texta sérstaklega fyrir
þetta tilefni.
Eftir myndatökur í kirkj-
unni var síðan gengið til
Auðunarstofu þar sem félags-
skapurinn Pilsaþytur bauð upp
á kaffi og kleinur. Þar fór
Guðrún Hildur yfir þróun og
breytingar á íslenskum þjóð-
búningum í gegnum tíðina við
mikla ánægju viðstaddra. Guð-
rún Hildur er hafsjór af fróðleik
um íslenska búningasögu og
hefur stundað rannsóknir á
þeim í mörg ár. Veðurguðirnir
voru ekki sérlega skapgóðir
þennan dag og sendu okkur
m.a. dimmt él þegar farið var út
fyrir Auðunarstofu til mynda-
töku af hátíðarklæddum út-
skriftarhópi og gestum.
Ásta Ólöf Jónsdóttir skrifar
Pilsaþytur og prúðbúið fólk
Eins og að detta inn í söguna í Hóladómkirkju.
Útskriftarhópurinn: Sigríður Ingólfsdóttir, Rósa Róarsdóttir, Hulda Þórsdóttir og
Selma Hjörvarsdóttir.
Glæsilegir bakhlutar.
Útskriftahópur og prúðbúnir gestir.
Síðustu sporin saumuð.
Við kunnum þeim hjónum
Sólveigu Láru og Gylfa bestu
þakkir fyrir gestrisni þeirra og
afnotin af Hóladómkirkju og
Auðunarstofu. Þetta var afskap-
lega ánægjulegur dagur og
einstaklega gaman að geta
haldið þetta heima á Hólum
þar sem sagan er við hvert
fótmál. /ÁÓJ
10 19/2018