Feykir - 23.05.2018, Síða 2
Nú er kosningavor eins og flestum er væntanlega kunnugt
og ekki fer framhjá neinum sem les þetta blað. Reyndar
ætti okkur að vera orðið ljóst að orðið „vor“ er virkilega
afstætt og hef ég nú endanlega afskrifað það, þrátt fyrir að
hafa skotið því á frest í síðustu
tveimur pistlum mínum, að
skrifa um blessað vorið, það er
einfaldlega varla viðeigandi.
Hef ég því hugsað mér að láta
það bíða næsta vors.
En það á að kjósa um næstu
helgi hvað sem öllu vorveðri
líður. Efni þessa blaðs ber þess
merki og eru ófáar blaðsíður
þess helgaðar þessum kosningum þar sem frambjóðendur
kynna sínar áherslur. Allir vilja þeir að sjálfsögðu veg síns
sveitarfélags sem mestan og vinna að málefnum sem koma
íbúunum til góða og til framfara horfa þannig að í raun er
bara býsna mikill samhljómur með málflutningi listanna
sem bjóða fram.
Margir hugsa sjálfsagt sem svo að það sé algjör óþarfi að
vera að kjósa, það komi hvort eð er allir til með að gera sitt
besta og vinna af heilindum að framförum í sinni sveit.
Einhverjir örfáir hugsa trúlega sem svo að það skipti engu
máli hvað er kosið, þetta sé allt sama tóbakið, menn lofi öllu
fögru fyrir kosningar og svo sé aldrei staðið við neitt.
Undanfarin ár hefur áhugi fólks á því að nýta kosningarétt
sinn farið dvínandi, kannski vegna ofangreindra atriða,
kannski vegna þess að loforðalistinn er oft langur og þar af
leiðandi litlar líkur á að hægt verði að merkja við nema
lítinn hluta þeirra á tékklistanum að kjörtímabilinu liðnu.
Kannski er líka bara almennu áhugaleysi um að kenna,
áhugaleysi fyrir því hvernig samfélagi við viljum búa í.
Að mínu mati er rétturinn til þess að kjósa með mikilvægari
réttindum sem við höfum, réttur sem við megum ekki
vanvirða og er á engan hátt sjálfgefinn. Þess vegna mun ég
skunda á kjörstað á laugardaginn og setja X við eitthvert
hinna fjögurra mjög svo frambærilegu framboða sem ég er
svo heppin að geta valið á milli.
Fríða Eyjólfsdóttir,
blaðamaður
LEIÐARI
Kosningavor
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Vel var mætt á alla þrjá framboðsfundi
sem haldnir voru í Skagafirði í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninganna. Fimmtudaginn
17. maí var fyrsti fundurinn haldinn á
Sauðárkróki og hinir tveir sl. mánudag
á Hofsósi og Varmahlíð. Áskell Heiðar
Ásgeirsson stjórnaði fundunum af mikilli
röggsemi og var hann ánægður með
mætingu og málefnalega umræðu. Feykir
hafði samband við Heiðar og forvitnaðist
um fundina.
„Mér fannst þessir fundir ganga vel og
mætingin var stórfín, fundargestir duglegir að
spyrja og úr urðu mjög góðar umræður,“ segir
Ásgeir Heiðar en að hans mati var ekkert eitt sem
einkenndi fundina annað en það hversu vel var
mætt og mikið um fjölbreyttar og góðar umræður.
„Það voru svolítið mismunandi áhersluatriði
milli funda, eins og eðlilegt er a.m.k. upp að vissu
marki.“
Hann segir að á Sauðárkróki og á Hofsósi hafi
verið nokkuð rætt um íbúalýðræði, íbúafundi og
fleira í þeim dúr, auk þess sem nokkuð var spurt
um uppbygginguna í Aðalgötunni á Sauðár-
króki. „En það komu líka spurningar um stór mál
eins og útsvar, fasteignagjöld, þjónustu við
aldraða og húsnæðisstefnu svo eitthvað sé nefnt.
Mér fannst hinsvegar athyglisvert að enginn
spurði um skólamál á Króknum. Á Hofsósi og í
Varmahlíð voru það skólamál og þá sérstaklega
leikskólamál sem voru mest á dagskrá en
sorpmálin brenna líka nokkuð á fólki utan
Sauðárkróks. Þá voru íbúar á Hofsósi líka
forvitnir að vita hvað stendur til varðandi
íþróttahús þar og segja má að skipulagsmál hafi
mikið verið til umræðu í Varmahlíð og þá eink-
um skortur á deiliskipulagi þar.“
Heiðar segist hafa haft gaman af þessum
fundum og var ánægður að sjá kraftinn í fram-
bjóðendum og áhugann sem fólk sýndi þeim.
„Vonandi skilar það sér í góðri kjörsókn og öflugri
sveitarstjórn,“ segir hann að lokum. /PF
Frá framboðsfundi í Menningarhúsinu í Varmahlíð. Áskell Heiðar Ásgeirsson í pontu
en hann stjórnaði fundunum af röggsemi og festu. MYND: PF
Sveitarstjórnarkosningar
Vel mætt á framboðsfundi í Skagafirði
Í síðustu viku landaði 21 bátur á Skaga-
strönd og var samanlagður afli tæplega 50
tonn.
Á Sauðárkróki lönduðu 13 skip og bátar
rúmum 325 tonnum og á Hofsósi var
heildaraflinn rúm níu tonn af fjórum bátum.
Tveir bátar lönduðu á Hvammstanga og var
afli þeirra tæp þrjú tonn.
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi
vestra var 387.373 kíló. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 13. – 19. maí 2018
Drangey SK 2 með 157 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 1.786
Mars HU 41 Grásleppunet 1.175
Alls á Hvammstanga 2.961
HOFSÓS
Skáley SK 32 Grásleppunet 3.120
Skotta SK 138 Grásleppunet 720
Von SK 21 Grásleppunet 3.353
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 2.140
Alls á Hofsósi 9.333
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Lína 3.318
Arndís HU 42 Handfæri 994
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 783
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 839
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 802
Blíðfari HU 52 Handfæri 1 529
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.997
Dagrún HU 121 Grásleppunet 6.581
Geiri HU 69 Handfæri 1.452
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.526
Hafdís HU 85 Grásleppunet 1.904
Jenný HU 40 Handfæri 935
Kambur HU 24 Grásleppunet 6.024
Kópur HU 118 Handfæri 372
Loftur HU 717 Handfæri 1.758
Lukka EA 777 Handfæri 2.068
Már HU 545 Handfæri 1.208
Onni HU 36 Dragnót 12.850
Svalur HU 124 Handfæri 143
Sæunn HU 30 Handfæri 1.489
Víðir EA 423 Handfæri 1.339
Alls á Skagaströnd 43.985
SAUÐÁRKRÓKUR
Dalborg EA 317 Handfæri 538
Drangey SK 2 Botnvarpa 157.302
Fannar SK 11 Handfæri 1.715
Gammur II SK 120 Grásleppunet 1.603
Gjávík SK 20 Handfæri 1.366
Hafey SK 10 Grásleppunet 6.130
Kaldi SK 121 Grásleppunet 391
Maró SK 33 Handfæri 1.593
Málmey SK 1 Botnvarpa 143.564
Steini G SK 14 Grásleppunet 2.354
Sæfari SK 100 Grásleppunet 5.873
Vinur SK 22 Handfæri 1.306
Ösp SK 135 Handfæri 1.433
Alls á Sauðárkróki 325.168
2 20/2018