Feykir - 23.05.2018, Síða 8
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Magnús Magnússon sóknarprentur
N-listi Húnaþingi vestra
N listinn er framboðslisti fólks úr
Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu, Vinstri
hreyfingunni-grænu framboði, Miðflokki
auk óháðra og óflokksbundinna. N-listinn
hefur verið í meirihluta í Húnaþingi vestra
á líðandi kjörtímabili og staðið fyrir
allmiklum framkvæmdum vítt og breitt um
héraðið s.s. hitaveitu- og ljósleiðara-
lagningu auk viðbyggingar við íþróttahús á
Hvammstanga. Þrátt fyrir þessar
framkvæmdir hefur tekist að lækka
skuldahlutfallið allnokkuð og er það nú
komið niður í 53%, sem telst mjög gott í
öllu tilliti.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
a) Áframhaldandi ábyrg fjármálastjórn.
b) Öflugt atvinnulíf með áherslu á landbúnað.
c) Áframhaldandi lagning hitaveitu auk þess
að efla samgöngur og fjarskipti.
d) Viðbygging við Grunnskóla Húnaþings
vestra sem innifelur nýtt húsnæði
Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
e) Styðja við fjölbreytta menningu í héraði.
f) Gera Húnaþing vestra að Heilsueflandi
samfélagi.
g) Enn frekari efling sveitarfélagsins í
umhverfismálum.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
-Byggja við grunnskólann sem innihéldi nýtt
húsnæði fyrir tónlistarskólann ásamt ráðdeild í
rekstri og þannig halda skuldahlutfalli áfram
lágu.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-N listinn hefur á að skipa hæfileikaríku fólki
með fjölbreytta reynslu og menntun sem vill
leggja fram krafta sína og hæfileika til þess að
gera gott samfélag betra. Eining, uppbygging
og ábyrg stjórnmál hafa verið okkar aðall og
þannig viljum við starfa og standa að málum
áfram.
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Ólafur Bjarni Haraldsson sjómaður
L-listi Byggðalistans Sveitarfélaginu Skagafirði
Byggðalistinn er samsettur úr
fjölbreyttum hópi fólks, víðsvegar að
úr sveitarfélaginu. Þekking og reynsla
frambjóðenda er mjög víðtæk og
sem heild gerir það okkur mjög sterk.
Samvinna allra sem koma að
framboðinu er mikil, sem er ótrvírætt
einn af okkar helstu styrkleikum. Við
tileinkum okkur lausnamiðaðan
hugsunarhátt og kemur það til með
að hjálpa okkur við að mæta þeim
áskorunum sem til staðar eru og
munu koma upp næstkomandi
kjörtímabil. Eins leggjum við ríka
áherslu á að halda vel utan um þá
uppbyggingu sem hefur verið í gangi,
með það í huga að gera góða hluti
enn betri.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
-Grunnþjónustan er þar fremst í flokki.
Ég hef áður nefnt mikilvægi leik- og
grunnskólamála, við verðum að fjölga
leikskólaplássum og bæta aðstöðu til
íþróttaiðkunar svo eitthvað sé nefnt.
Þessi mál þarf að leysa og koma í
varanlegt horf sem allra fyrst. Við
viljum einnig styðja við bakið á nýjum
atvinnuskapandi verkefnum og auka
þannig fjölbreytni starfa í sveitarfé-
laginu. Þannig sköpum við ríkara
samfélag til framtíðar, hvort sem litið er
til fjárhags, mannauðs eða menningar.
Við leggjum einnig mikla áherslu á
aukið íbúalýðræði, þ.e. að íbúar hafi
meiri aðkomu að ákvarðanatöku sem
snertir þeirra daglega líf. Þar má nefna
reglulega íbúafundi og kynningar á
málefnum og framkvæmdum, aukið
aðgengi að fjárhagsupplýsingum sveit-
arfélagsins og aðra jafn sjálfsagða hluti.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
-Það þarf að breyta forgangsröðun
verkefna þannig að uppbygging
grunnstoða verði sett fremst með það
að leiðarljósi að íbúum geti fjölgað í
öllu sveitarfélaginu. Þar má nefna
fjölgun leikskólaplássa í tengslum við
aukið húsnæðispláss, uppbyggingu
íþróttahúss á Hofsósi og eins er það viss
áskorun að ná endum saman hvað
viðhald varðar á fasteignum sveitar-
félagsins. Ákveðin áskorun felst einnig í
því að opna stjórnsýsluna á þann veg að
íbúar sveitarfélagsins geti sótt sér
upplýsingar um starfsemi þess og
þannig aukið trúverðugleika sveitar-
stjórnarfulltrúa.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-Nú í nokkurn tíma hefur verið ákall
eftir nýjum valmöguleika fyrir íbúa
Skagafjarðar þegar kemur að sveitar-
stjórnarkosningum. Við svörum því
ákalli með kraftmiklum, metnaðar-
fullum og ferskum lista sem ekki er
bundinn gömlum stefnum og hug-
myndum. Stefnumál okkar eru skýr og
raunsæ. Við viljum að grunnþjónustan
sé í takt við þarfir íbúanna. Við viljum
koma í veg fyrir frekari skuldasöfnun
sveitarfélagsins á skynsamlegan máta
og auka aðgengi að fjárhagsupplýs-
ingum þess.
Við leggjum mikið upp úr heiðar-
leika og hreinskilni í okkar störfum, og
viljum þannig vinna með íbúum
sveitarfélagsins á komandi kjörtíma-
bili.
Útbjuggu túristatröppur
í sjúkrahúsbrekkuna
Ánægja með nemendur málmiðnadeildar
Í brekkunni austan sjúkrahússins á Sauðárkróki hefur verið
komið fyrir tröppum sem vakið hafa athygli þeirra er um hana
fara. Var þeim komið fyrir þar sem brattast er í tröðinni sem
myndast hefur og mikið notuð af gangandi fólki sem um
göngubrúna fara.
Það voru nemendur úr málmiðnadeild FNV sem hönnuðu
og smíðuðu tröppurnar. Björn Sighvatz, kennari, segir að þeir
hafi fengið hugmyndina þar sem erfitt sé að ganga stíginn þar
sem hann er brattastur, sérstaklega í vætu. Mældu nemendur
aðstæður á alla kanta og hönnuðu tröppurnar samkvæmt öllum
stöðlum og smíðuðu. Voru þær síðan sendar í húðun upp á
endingu að gera. Segir Björn svona smíði vera fyrirtaks túrista-
tröppur sem hægt væri að setja niður á ferðamannastöðum þar
sem göngustígar eru brattir og erfiðir.
Framtak nemenda og kennara þeirra þykir ansi gott en
sérstakt leyfi þurfti frá sveitarfélaginu til að setja tröppurnar
niður þar sem stígurinn er ekki á skipulagi en vonandi eiga
tröppurnar eftir að þjóna sínum tilgangi um ókomin ár. /PF
Þeir mega vera ánægðir með tröppurnar nemendur úr málmiðnadeild. MYND FNV
8 20/2018