Feykir - 23.05.2018, Qupperneq 11
www.skagafjordur.is
Auglýsing um skipan í kjördeildir
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við kosningar til sveitarstjórnar sem fram fara laugardaginn
26. maí nk. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps
– kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
kjörfundur hefst kl. 13:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund
liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á
kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er
sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig
síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki
til kl. 15:00 virka daga fram að kjördegi og kl. 16:00-18:00 á kjördag þ. 26. maí
2018. Opið verður til kl. 19:00 á sýsluskrifstofunni á Sauðárkróki fimmtudagana
17. og 24. maí
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn
Skagafjörður
Mannbjörg varð er trilla sökk
Betur fór en á horfðist sl.
laugardagskvöld er stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar barst
neyðarkall frá Farsæli SK
100, sem farið hafði á hliðina
á Skagafirði skammt undan
Reykjum á Reykjaströnd.
Tveir menn voru um borð í
bátnum og var þeim báðum
bjargað.
TF-GNÁ, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, var þegar í stað
kölluð út sem og björgunar-
sveitir. Farþegabáturinn Súlan
var einnig sendur á staðinn frá
Hofsósi ásamt björgunar-
sveitarmönnum. Þyrlan tók á
loft frá Reykjavíkurflugvelli
klukkan 21:09 en skömmu
áður bárust stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar upplýsingar
um að mennirnir væru komnir
í flotgalla. Þeim var svo bjargað
um borð í björgunarbát heilum
á húfi um þremur korterum
eftir að neyðarkallið barst og
var aðstoð þyrlunnar þá
afturkölluð, segir á lhg.is.
Svo vel vildi til að báturinn
hvarf ekki allur í hafið þar sem
stefnið flaut upp úr yfirborðinu
og náðu sjómennirnir tveir að
hanga utan á því þegar björg-
unarsveitarmenn komu að
þeim. Mikil mildi þykir að þeim
hafði tekist að koma sér í
björgunargalla og amaði því
ekkert að þeim þrátt fyrir að sjór
hafi gengið yfir þá. Í gær,
þriðjudag, var veður og sjólag
orðið með ágætum og var trillan
dregin til hafnar á Sauðárkróki
og hífð upp á bryggju. /PF
Unnið við að koma Farsæli á þurrt í gær. MYND: PF
20/2018 11
Geirlaugur Schram
húsasmíðameistari hafði
samband við Dreifarann og
var mikið niðri fyrir.
Geirlaugur hefur verið lengi
í byggingaiðnaðinum og þó
hann sé kominn á
sjötugsaldurinn gefur hann
ekki þumlung eftir, er
mættur fyrstur á morgnana.
„Fyrstur á staðinn á
morgnana og fyrstur heim,
segja strákarnir, þetta eru
ágætis grey en það þarf að
herða í þeim flestum þegar
þeir eru að byrja.“
Er eitthvað að gera Geir-
laugur? -Nei, það er ekki
nokkur andskoti að gera,
algjör helvítis ládeiða enda-
laust. Ég sé ekki hvernig ég á
að geta haldið þessari vitleysu
gangandi. Það er ekki á vetur
setjandi ef þetta heldur svona
áfram.
En hversvegna hringdir þú?
-Það er útaf þessari fáránlegu
auglýsingu þarna í Sjón-
horninu um daginn. Ég er nú
bara að íhuga að fara í mál út
af þessari vitleysu, þetta er
bara árás og það um hábjartan
djöfulsins dag.
Nú hvað er að? -Hvað er að!?
Það var þarna auglýst laus
íbúð. Ég sá strax að þetta var
hús sem ég byggði 1973,
orðið jú 40 ára gamalt en mér
fannst þetta sérkennilegt svo
ekki sé meira sagt. Þannig að
ég fór á staðinn og kíkti á
þetta og það var eins og ég
hélt, helvítis vitleysa auðvitað.
Nú? -Já, hún var ekkert laus
íbúðin, þarna var allt
niðurneglt og pikkfast, varla
hægt að opna glugga skal ég
segja þér. Af hverju er fólk að
auglýsa svona vitleysu, og
hvað er að fólki þarna á
Sjónhorninu að birta þetta
bara athugasemdalaust, ég
skil þetta ekki. Það er
hreinlega vegið að heiðri
manns sem húsasmíða-
meistara með svona... já bara
kjaftæði. Laus íbúð, alveg
fáheyrt!
En var ekki íbúðin til sölu
eða leigu? -Það veit ég and-
skotann ekkert um!!!
Var það eitthvað fleira sem
þú vildir koma á framfæri?
-Nei, ég er búinn að koma
þessu til skila held ég í bili
þannig að ég bið að heilsa
honum pabba þínum, já og
mömmu, vertu sæll.... heyrðu
heyrðu, jú það er eitt, þú
hérna áttar þig á að strákarnir
voru að grínast með þetta
-fyrstur á staðinn og fyrstur
heim-, ég er að sjálfsögðu
síðastur heim, læsi á eftir
mönnum og svona. Bara svo
það sé á hreinu vinur.
Blessaður.
( DREIFARI ) feykir@feykir.is
Auglýsing um lausa
íbúð fer í fínustu
taugar Geirlaugs
Dreifarar birtast óreglulega á Feykir.is og eru vanalega uppspuni og hugarleik-
fimi starfsmanna Feykis. Ef einhver kannast við persónur og leikendur í þessum
skáldskap þá er það einstök tilviljun og á alls ekki við rök að styðjast. Þá er
beðist velvirðingar á óhefluðum talsmáta smiðsins.