Feykir - 23.05.2018, Side 14
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA : Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn og sveitarstjórnarfulltrúi
B-listi Framsóknarflokks Sveitarfélaginu Skagafirði
Framsóknarflokkurinn er rótgróinn
flokkur með sterkar rætur í
skagfirsku samfélagi. Framsóknar-
flokkurinn er búinn að vera í
meirihluta í Sveitarfélaginu Skagafirði
frá árinu 2006 og hefur komið að
fjölmörgum framfaramálum
héraðsins. Mikil endurnýjun hefur
orðið á listanum fyrir þessar
kosningar og þrír af fjórum efstu eru
að koma nýir inn í sveitarstjórnarmál,
ungt fólk sem hefur víðtæka reynslu
og góðan bakgrunn til að takast á við
þau fjölmörgu verkefni sem bíða
nýrrar sveitarstjórnar.
Hvaða mál eru sett á oddinn
hjá þínu framboði?
-Framsóknarflokkurinn hefur beitt sér
í atvinnumálum fyrir héraðið á
undanförnum árum svo eftir hefur
verið tekið út fyrir sveitarfélagsmörk
Skagafjarðar. Atvinna er forsenda
velferðar og fyrir því munum við
berjast áfram. Við þurfum að sækja
fram fyrir héraðið og styðja við
fyrirtæki í firðinum svo þau geti eflst en
frekar sem og að skapa þannig umgjörð
að fyrirtæki sjái sé hag í því að setja
niður starfsemi sína hér. Við eru með
eina bestu skóla á landinu í Skagafirði
og þannig þarf það að vera áfram.
Gríðarlega metnaðarfullt starf er unnið
í grunnskólum héraðsins og hefur
Framsóknarflokkurinn staðið vörð um
grunnskólana okkar og mun gera
áfram. Uppbygging menningarhúss á
Sauðárkróki, leik- og grunnskóli ásamt
íþróttahúsi á Hofsósi, lagfæringar á
Árskóla, varanleg lausn fyrir leikskóla
í Varmahlíð ásamt áframhaldandi
framkvæmdum við Sundlaug Sauðár-
króks verða fyrirferðarmest í fram-
kvæmdaráætlunum sveitarfélagsins
næstu fjögur árin. Grunnurinn að
þessu öllu er ábyrg fjármálastjórn og
stöðugleiki í rekstri sveitarfélagsins.
Við höfum náð algerum viðsnúningi í
rekstri sveitarsjóðs og það kjörtímabil
sem senn er á enda verður best rekna
tímabil í 20 ára sögu sveitarfélagsins.
Langtímaskuldir eru að lækka sem og
skuldahlutfall og skuldaviðmið sveitar-
félagsins en það hefur aldrei verið
lægra. Við þurfum að halda áfram á
þeirri braut sem mörkuð hefur verið
undir forystu Framsóknarmanna í
sveitarfélaginu Skagafirði.
Hver er helsta áskorunin sem þitt
sveitarfélag stendur frammi fyrir?
-Við þurfum að leysa úr þeim
bráðavanda sem uppi er varðandi
vistunarúrræði fyrir ung börn í
Skagafirði. Hönnun á leikskóla á
Hofsósi er langt komin og ljóst að
byggja þarf við yngra stig leikskólans á
Sauðárkróki sem og að finna þarf
varanlega lausn á húsnæðisvanda
leikskólans í Varmahlíð. Vöntun á
leiguhúsnæði í Skagafirði er einnig
brýnt verkefni sem taka þarf föstum
tökum en Skagfirskar leiguíbúðir, félag
í eigu sveitarfélagsins, er nú að hefja
framkvæmdir við átta íbúðir sem munu
koma til móts við þennan vanda.
Leikskólagjöld eru of há á forgangs-
hópa og þau þarf að lækka þannig að
sveitarfélagið sé samkeppnishæft við
önnur sveitarfélög.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn flokk?
-Við höfum sýnt á undanförnum árum
að okkur er treystandi til að fara með
stjórn sveitarfélagsins. Á sama tíma og
við skilum frábærum rekstri erum við
að upplifa einhverjar mestu fram-
kvæmdir í sögu sveitarfélagsins. Íbúum
er að fjölga og samkvæmt nýrri könnun
fyrir samtök sveitarfélaga er ánægja
íbúa í Skagafirði með búsetuskilyrði sín
mest allra. Það hlýtur að segja að við
séum á réttri leið – leið sem við
Framsóknarmenn í Skagafirði höfum
markað og byggt undir síðustu ár. Við
þurfum að halda áfram á þeim vegi og
það gerum við með því að setja X við B
á kjördag.
X18 AUGLÝSING FRÁ L-LISTA Í SKAGAFIRÐI
Ragnheiður Halldórsdóttir skipar fjórða sæti ByggðaListans
H-eldri borgarar: Mikilvægi góðrar heimaþjónustu
Þjóðin er að eldast og hópur eldri
borgara fer sífellt stækkandi. Þó
hefur hjúkrunarrýmum og
þjónustuíbúðum fyrir aldraða ekki
fjölgað í takt við það síðustu ár.
Töluvert hátt hlutfall eldri borgara
er því tilneytt til að búa í eigin
húsnæði mun lengur en þeir hafa
getu til sökum aldurs eða
veikinda.
Það má segja að heimaþjónusta fyrir
eldri borgara sé nokkurs konar
mótsvar sveitarfélaganna við vöntun á
hjúkrunarrýmum og þjónustuíbúð-
um en markmið heimaþjónustu fyrir
eldri borgara í Sveitarfélaginu
Skagafirði ,,… er að efla fólk til
sjálfsbjargar og gera því kleift að búa
sem lengst í heimahúsi við sem
eðlilegastar aðstæður.” (Vefsíða
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, heima-
þjónusta)
Í þessu samhengi má einnig nefna
Dagdvöl aldraðra sem er í boði 5 daga
vikunnar frá kl. 8:45 - 15:30, þar sem
unnið er frábært starf en einungis 11
rými eru í boði sem deilast niður á í
kringum 20 einstaklinga hvert sinn.
Á meðan ekki er hægt að svara
eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum og
þjónustuíbúðum, er því afar mikilvægt
að efla alla þjónustu við eldri borgara
og auka þannig lífsgæði þeirra. Þarna
er heimaþjónusta sveitarfélagsins við
eldri borgara lykilatriði en til hennar
teljast heimilishjálp og heimsending
matar.
Heimilishjálp felur annars vegar í
sér aðstoð við heimilishald, t.a.m. þrif
og hins vegar félagslegan stuðning
(innlit/stutt viðvera). Þegar afi minn
var orðinn einstæðingur og þar að
auki háaldraður, fékk hann til sín
heimilishjálp sem hafði það hlutverk
að aðstoða hann við heimilishaldið og
veita félagslegan stuðning.
Eitt sinni kom ég til hans daginn
áður en von var á heimilishjálpinni, þá
var hann að hamast við að þrífa húsið,
þegar ég innti hann eftir því af hverju
hann leyfði konunni ekki bara að gera
þetta á morgun, var hann snöggur að
svara; ,,Af því að þá höfum við minni
tíma til að spjalla.” Fyrir honum var
félagslegi þáttur heimilishjálparinnar
því miklu mun mikilvægari og í
samtölum mínum við eldra fólk sem
þiggur heimilishjálp og aðstandendur
þeirra, er þetta svar gegnum gangandi.
Ég tel því afar mikilvægt að sveitar-
félagið efli félagslega heimaþjónustu
fyrir eldri borgara í formi heimsókna
og samverustunda og miði þannig að
því að auka andlega vellíðan og sporna
gegn félagslegri einangrun.
Hvað varðar heimsendingu matar
ættu allir eldri borgarar að hafa kost á
því að fá heimsendan mat, óháð því
hvar í sveitarfélaginu þeir eru búsettir.
Einnig er mikilvægt að það sé
hvetjandi fyrir eldra fólk að stunda
einhvers konar hreyfingu svo lengi
sem það hefur tök á, og því er það ekki
síður mikilvægt þar en hjá börnum og
unglingum, að í boði séu fjölbreyttar
íþróttaæfingar sniðnar að þörfum
hvers og eins. Að lokum væri það
vissulega óskastaða að fjölga hjúkr-
unarrýmum og/eða þjónustuíbúðum
fyrir aldraða í sveitarfélaginu á næsta
kjörtímabili og vonandi að sú ósk
verði að veruleika.
Ragnheiður Halldórsdóttir
Höfundur hefur starfað við
aðhlynningu á Dvalarheimili aldraðra
á Sauðárkróki síðustu átta ár og er
mikil áhugamanneskja um velferð eldri
borgara, hún skipar jafnframt 4. sæti
ByggðaListans fyrir komandi
Sveitarstjórnarkosningar.
XL
BYGGÐALISTINN
14 20/2018