Feykir - 23.05.2018, Síða 17
Þegar búið er að klippa tré og runna og hreinsa beð er komið að því að bera áburð á beðin. Blákorn hentar vel. Áburðurinn virkar
fyrr ef hann er rakaður saman við moldaryfirborðið. Ekki má gleyma að kantskera svo gras vaxi ekki inn í beðin og undir gangstétta.
MYND: STEINN KÁRASON
Í garðinum með Steini Kára
Vorverkin í garðinum
Annasamasti tíminn í
garðinum er að öllu jöfnu á
vorin. Trjá- og
runnaklippingar eru meðal
vorverkanna í garðinum og
hafa þeim verið gerð nokkur
skil í fyrri pistli. Að sjálfsögðu
eru garðar og gróður margs
konar og taka vorverkin því
mið af aðstæðum.
Hreinsun beða
Hreinsun beða hefst víðast hvar
í lok maí en fer þó eftir lands-
hlutum og tíðarfari. Hreinsa
þarf burt visnaðar plöntuleifar
þegar þornar um og áður en
gróður fer að vaxa að marki.
Það er m.a. gert til að skadda
ekki nýgræðinginn þegar trén-
aðar plöntuleyfar eru fjar-
lægðar.
Jarðgerð
Þar sem því verður við komið
er sjálfsagt að nýta til jarðgerð-
ar það sem til fellur í garðin-
um ásamt lífrænum úrgangi
frá heimilishaldi. Ávaxtahýði,
kaffikorgur og fleira hentar vel
til til safnhaugagerðar. Nauð-
synlegt er að blanda saman í
safnhaugnum grófefni t.d.
kurluðum greinum, grasi og
fleiru. Hefðbundinn safnkassi
hefur venjulega þrjú hólf þar
sem jarðgerðarefninu er um-
mokað milli hólfa árlega.
Þörungamjöl og eða vel staðinn
húsdýraáburður hentar vel sem
íblöndunarefni í safnhaug. Ef
ekki næst upp nægur hiti í
safnhauginn getur fræ ýmissa
tegunda, s.s. tómata, melóna,
papriku lifað verkunina af. Sé
svo getur fræið spírað og orðið
að illgresi ef ræktað er í
safnhaugamold undir gróður-
hlíf.
Einnig er hægt að verka
safnaugamold í hrúgu, haug
eða gryfju. Lífrænan úrgang er
líka hægt að grafa niður í
blóma- og eða trjábeð eða setja
sem undirlag í ca. 30 cm dýpt
við grænmetisrækt. Það er þó
talsverð fyrirhöfn.
Gróðursetning
Gróðursetning og umplöntun
er talin henta best að vori og
sumri. Hins vegar er ekkert því
til fyrirstöðu að gróðursetja að
hausti og reyndar allt árið ef
jörð er þíð og heppilegar
plöntur eru tiltækar. Undirbúa
þarf flutning á stórum trjám
tímanlega og eftir atvikum,
rótstinga ári áður en flutt er.
Við gróðursetningu er nauð-
synlegt er að grafa rúma holu,
setja skít í botninn, bera á
áburð, klippa eða skerða rætur
og greinar, styðja við tréð og
vökva.
Sláttur
Hve oft er slegið yfir sumarið
og sláttuhæð ræðst af aðstæð-
um en í heimagörðum má
búast við að slá þurfi á u.þ.b. tíu
daga fresti ef næring, birta og
aðrir ræktunarþættir eru
viðunandi. Mosi getur
verið til vandræða í
grasflötum og benda
má fróðleiksfúsum les-
anda á bókina Garð-
verkin hvað það varðar.
Áburðargjöf
Við upphaf ræktunar
að vori þarf að gefa grunn-
áburðargjöf sem er veganesti
gróðurs inn í sumarið. Mun
meiri áburður er gefinn við
upphaf ræktunar að vori en
eftir atvikum er fáeinum
kornum af áburði stráð yfir
einu sinni til tvisvar yfir
ræktunartímabilið. Aðal nær-
ingarefnin eru N P og K, en
bókstafirnir standa fyrir
köfnunarefni, fosfór og kalí.
Þessum aðalefnum getum við
líkt við kjöt og fisk hjá mann-
fólkinu. Auk þess þurfa plöntur
fjölda snefilefna s.s. bór, (rófur
sérstaklega) mangan og mol-
ybden, (blómkál). Líkja má
snefilefnaþörf plantna við
vítamínþörf manna. Ef ekki er
notaður húsdýraáburður, sem
er snefilefnaríkur er athugandi
að nota spouumix, sem er
snefilefnablanda.
Kantskurður
Snyrtilega skornir graskantar
stuðla að vinnuhagræðingu og
afmarka grasflötina. Graskant-
urinn styrkist og auðveldara er
að slá. Kantskurður kemur m.a.
í veg fyrir að grasrætur vaxi
innundir beð og hellulagnir og
að rætur trjáa og runna vaxi
grunnt undir grasfleti, hellu-
lagnir og plön.
/Stein Kárason garðyrkjufræðingur
Steinn Kárason,
skrifar um garðyrkju
og skógrækt. Eftir
hann hafa komið út
bækurnar
Trjáklippingar og
Garðverkin.
X18 SPURNINGAR TIL ODDVITA :
Jón Gíslason sveitarstjórnarmaður og bóndi
A-listi Framtíðar
Húnavatnshreppi
A Listi Framtíðar er framboð
sem er nú að bjóða fram
fjórða kjörtímabilið í röð og
hefur þá starfað í sveitastjórn
Húnavatnshrepps frá
stofnun hans í núverandi
mynd.
Hann saman stendur
nú sem endranær af
öflugu fólki sem hefur
það að hugsjón að búa
íbúum sem bestar
aðstæður til búsetu í
Húnavatnshreppi.
Hvaða mál eru sett á
oddinn hjá þínu
framboði?
-Þau málefni sem við
leggjum höfuðáherslu á
eru að nýta góða fjár-
hagsstöðu sveitarfélags-
ins til að veita íbúum
góða þjónustu á lágu
verði, halda áfram að
viðhalda eignum og
nýta þær enn frekar til
að afla tekna fyrir
sveitafélagið.
Skapa sem bestar aðstæður
fyrir börn í leik- og grunnskóla.
Stuðla að eflingu atvinnu-
mála og gera allt sem hægt er
til að styrkja þá atvinnu-
starfsemi sem fyrir hendi er,
sem í okkar tilfelli er hefð-
bundinn landbúnaður og
ferðaþjónusta.
Hafa umhverfismál í fyrir-
rúmi. Berjast fyrir bættum
samgöngum, þrífösum raf-
magns, ljúka lagningu ljós-
leiðara um allt sveitafélagið og
bæta þráðlaus fjarskipti.
Hver er helsta áskorunin sem
þitt sveitarfélag stendur
frammi fyrir?
-Það eru spennandi tímar
framundan ef vel er á spilum
haldið. Uppbygging á eignar-
landi Húnavatnshrepps á
Húnavallasvæðinu er möguleg
í framtíðinni, þar sem skipu-
lagðar hafa verið íbúðar- og
frístundarlóðir.
Einnig uppbygging á skipu-
lögðu iðnaðarsvæði með nýt-
ingu raforku frá Blöndu-
virkjun, heita vatninu á
Reykjum og nýjum ljósleið-
ara.
Það er áskorun fyrir íbúa
Húnavatnshrepps að taka
afstöðu með eða móti sam-
einingu sveitarfélaganna fjög-
urra í Austur – Húnavatns-
sýslu.
Barátta fyrir bættum sam-
göngum brennur einnig mjög
á íbúum Húnavatnshrepps.
Af hverju ætti fólk
að kjósa þinn lista?
-Þeir sem kjósa Lista Fram-
tíðar eru að velja öflugt fólk
sem er blandaður hópur af
fólki með mikla reynslu af
sveitarstjórnarmálum og dug-
miklu fólki sem hefur mikinn
metnað til að bæta og efla sitt
samfélag fyrir íbúana.
Listi Framtíðar hefur haft
með höndum forystu í
sveitarstjórn síðasta kjörtíma-
bil, og hefur á þeim tíma staðið
fyrir ýmsum framfaramálum á
vegum sveitarfélagsins, og
leitum við því eftir stuðningi
þínum kæri kjósandi í
Húnavatnshreppi, til að halda
því starfi áfram.
Tryggjum öfluga forystu
með því að setja X við A.
20/2018 17
Smellt'á okkur einum...
Feykir.is