Feykir - 23.05.2018, Síða 20
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
20
TBL
23. maí 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Fjölgun starfa
Fæðingarorlofssjóður á Hvammstanga
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttis-
málaráðherra, heimsótti í síðustu viku þjónustu-
skrifstofu Vinnumálastofnunar á Hvammstanga sem
annast umsýslu Fæðingarorlofssjóðs. Við það tæki-
færi undirrituðu hann og Gissur Pétursson forstjóri
stofnunarinnar samstarfsyfirlýsingu þar sem kemur
fram að tvö stöðugildi munu bætast við skrifstofuna
á staðnum.
Störfin eru tilkomin vegna verkefna sem sköpuðust
m.a. eftir að Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun
fóru að vinna að því að uppfæra rafræna umsýslu
Fæðingarorlofssjóðs og nýtti til þess fjármuni sem
fengust til verkefnisins frá sk. Landshlutanefnd
Norðurlands vestra árið 2016. Næsti áfangi í bættri
framkvæmd laganna um Fæðingar og foreldraorlof er
að uppfæra heimasíðu sjóðsins, gera umsóknarferli
rafrænt og auðvelda samskipti þjónustuþega og
stofnunarinnar. Þá hyggst ráðuneytið, í kjölfar fyrir-
hugaðrar hækkunar fæðingarorlofsgreiðslna og leng-
ingar orlofstíma, bæta við öðru stöðugildi til þess að
auka eftirlit með greiðslum Fæðingarorlofssjóðs og
styrkja starfsemina. /PF
Skemmtileg ferð til Danmerkur
Skólaferðalag 10. bekkjar Árskóla
Þann 14. maí fór 10. bekkur Árskóla í sitt árlega
skólaferðalag til Danmerkur. Við lögðum snemma
af stað og keyrðum suður til Keflavíkur og þaðan
beinustu leið til Danmerkur. Frá flugvellinum
keyrðum við í vinaskóla okkar, Højelse skole, og
hittum 8. bekk þar og var okkur skipt niður í
gistihópa því við gistum á heimilum þeirra.
Snemma næsta morgun var lagt af stað í skólann
þar sem vel var tekið á móti okkur, við vorum spurð
spurninga um Ísland og okkur sýndur skólinn. Síðan
var spilaður landsleikur í bandí. Ekki voru allir sam-
mála um hvernig leikurinn endaði, sumir sögðu að
hann hafi verið jafn 5–5 en aðrir vilja halda því fram
að hann hafi endað 5–4 fyrir Íslandi.
Fórum við svo í göngutúr í gegnum Åsenskóg og
enduðum í bænum Køge sem er vinabær Skagafjarðar.
Þar var labbað í gegnum bæinn og skoðað elsta torg í
Danmörku, farið í búðir og mannlífið tekið inn. Síðan
fóru gistihóparnir sinn í hverja áttina og gerðu eitt-
hvað skemmtilegt saman, til dæmis farið í keilu, skellt
sér á ströndina og stunduð bogfimi. Að kvöldi sama
dags var ball í skólanum og svo haldið heim.
Á miðvikudeginum var haldið til höfuðborgarinnar
og hún skoðuð í bak og fyrir og Litla hafmeyjan og
Amalíuborg stóðu sérstaklega upp úr. Síðan var farið
á Strikið og vappað þar um og verslað í nokkra tíma.
Eftir það forum við í Tívolí og var það mjög gaman
enda margt að gera.
Á fimmtudeginum kvöddum við Danverjana og
keyrðum svo aftur til Kaupmannahafnar og fórum í
dýragarðinn þar og sáum mörg falleg dýr og enn fleiri
skrýtin. Eftir það höfðum við fengið nóg af Danmörku
svo við keyrðum yfir til Svíþjóðar og stimpluðum
okkur inn á farfuglaheimili í Malmö. Var okkur sleppt
lausum í búðir þar í smá stund. Síðar um kvöldið
fórum við öll í lazer tag og prison escape, og eftir það
voru allir útkeyrðir eftir hasarinn svo haldið var heim.
Og síðast á föstudeginum var okkur aftur sleppt
lausum en nú í lengri tíma, var margt gert eins og til
dæmis fóru sumir á skriðdýrasafn eða hjólabáta en
samt fóru flestir bara að versla. Síðan var haldið heim
á leið og var flogið um 9 leytið og lent um 12. Sváfu
flestir á leiðinni heim enda þreyttir eftir langa en
skemmtilega ferð. Komum við aftur heim á Krókinn
um 6 leytið og voru allir orðnir vel syfjaðir.
/EYMUNDUR ÁS ÞÓRARINSSON
Höfundur var í starfskynningu hjá Feyki í dag og í gær
og fékk það hlutverk að skrifa ferðasöguna.
Flottur hópur skagfirskra ungmenna í Danaveldi.
MYND: YNGVI J. YNGVASON
Frá Yfirkjörstjórn í Sveitarfélaginu Skagafirði
Framboðslistar til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 26. maí 2018
B
Listi Framsóknarflokksins
1. Stefán Vagn Stefánsson
2. Ingibjörg Huld Þórðardóttir
3. Laufey Kristín Skúladóttir
4. Axel Kárason
5. Einar E. Einarsson
6. Sigríður Magnúsdóttir
7. Jóhannes H. Ríkharðsson
8. Atli Már Traustason
9. Eyrún Sævarsdóttir
10. Hólmfríður Sveinsdóttir
11. Björn Ingi Ólafsson
12. Sigurlína Erla Magnúsdóttir
13. Sigurður Bjarni Rafnsson
14. Guðrún Kristín Kristófersdóttir
15. Snorri Snorrason
16. Þórdís Friðbjörnsdóttir
17. Viggó Jónsson
18. Bjarki Tryggvason
D
Listi Sjálfstæðisflokksins
1. Gísli Sigurðsson
2. Sigríður Regína Valdimarsdóttir
3. Gunnsteinn Björnsson
4. Elín Árdís Björnsdóttir
5. Haraldur Þór Jóhannesson
6. Ari Jóhann Sigurðsson
7. Guðný Hólmfríður Axelsdóttir
8. Jóel Þór Árnason
9. Steinar Gunnarsson
10. Guðlaugur Skúlason
11. Snæbjört Pálsdóttir
12. Jón Grétar Guðmundsson
13. Steinunn Gunnsteinsdóttir
14. Herdís Fjeldsted Jakobsdóttir
15. Jón Daníel Jónsson
16. Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir
17. Bjarni Haraldsson
18. Sigríður Svavarsdóttir
V
Listi Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs og óháðra
1. Bjarni Jónsson
2. Álfhildur Leifsdóttir
3. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
4. Valdimar Óskar Sigmarsson
5. Auður Björk Birgisdóttir
6. Inga Katrín D. Magnúsdóttir
7. Úlfar Sveinsson
8. Hildur Þóra Magnúsdóttir
9. Ingvar Daði Jóhannsson
10. Helga Rós Indriðadóttir
11. Sigurjón Þórðarson
12. Jónas Þór Einarsson
13. Björg Baldursdóttir
14. Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
15. Ingibjörg H. Hafstað
16. Steinar Skarphéðinsson
17. Sigurlaug Kristín Konráðsdóttir
18. Heiðbjört Kristmundsdóttir
L
Listi Byggðalistans
1. Ólafur Bjarni Haraldsson
2. Jóhanna Ey Harðardóttir
3. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson
4. Ragnheiður Halldórsdóttir
5. Högni Elfar Gylfason
6. Anna Lilja Guðmundsdóttir
7. Svana Ósk Rúnarsdóttir
8. Sigurjón Viðar Leifsson
9. Þórunn Eyjólfsdóttir
10. María Einarsdóttir
11. Margrét Eva Ásgeirsdóttir
12. Jón Sigurjónsson
13. Jón Einar Kjartansson
14. Jónína Róbertsdóttir
15. Alex Már Sigurbjörnsson
16. Sigurður Helgi Sigurðsson
17. Guðmundur Björn Eyþórsson
18. Jón Eiríksson