Feykir


Feykir - 13.06.2018, Blaðsíða 10

Feykir - 13.06.2018, Blaðsíða 10
Undanfarin ár, allt frá árinu 2000, hefur Iðja - dagþjónusta staðið fyrir reiðþjálfun fatlaðrs fólks sem farið hefur fram í Reiðhöllinni á Sauðárkróki. Frá upphafi hefur Ingimar Pálsson lagt til hross til þjálfunarinnar og undanfarin ár hefur dóttir hans, Inga Dóra, einnig komið að þjálfuninni sem reiðkennari. Í vetur barst reið- þjálfuninni sannkallað þarfaþing í hendur þegar keypt var lyfta, til þess ætluð að hjálpa einstakl- ingum sem ekki hafa líkamlega færni til að komast hjálparlaust á bak. Lyftan, sem var tekin í notkun í byrjun febrúar, var keypt fyrir gjafafé frá Sambandi skagfirskra kvenna, Rebekkustúkunni Eir á Sauðárkróki og peninga- gjöf frá einstaklingum sem ekki vilja láta nafns sín getið. Er þetta að vonum mikil bragarbót sem léttir starfsfólki störfin, minnkar líkam- legt álag þar sem nú þarf ekki lengur að lyfta fólkinu á bak og einnig eykur lyftan öryggi þess til muna. Jónína Gunnarsdótt- ir, forstöðumaður Iðju, segir að reiðþjálfuninni sé skipt í tvo hópa og fari hvor þeirra á bak einu sinni í viku. Auk þess nýta nemendur frá grunnskólanum þjálfun- ina sem Iðjan heldur utan um en nemendum fylgir starfsfólk frá skól- anum. Jónína segir gildi þjálfunarinnar vera margþætt og aðferðin hafi verið notuð víða um heim með athyglisverð- um árangri. Þjálfunin gengur í stórum dráttum út á að nýta sér hreyf- ingar hestsins til að þjálfa upp vöðva og auka jafnvægi og samhæfingu líkamans, bæta líkams- vitund og stuðla að bættri sjálfsmynd og Ný lyfta tekin í notkun í Reiðhöllinni á Sauðárkróki Stórbætt aðstaða til reiðþjálfunar fatlaðs fólks Guðjón og Tinna Rut á baki. Oddný, Inga Dóra og Ingimar ganga með. auknu sjálfstrausti. Einnig hefur nálægð hests og manns mikið gildi og þykir íslenski hesturinn sérlega vel fallinn til reiðþjálfunar fatlaðs fólks og ræður þar bæði bygging hans og eðliseiginleikar. Það voru Viggó Jóns- son, stjórnarformaður Flugu, ásamt starfs- mönnum Vélaverkstæðis KS sem unnu að upp- setningu lyftunnar og kann Iðjan þeim bestu þakkir fyrir. /FE Sævar Örn Guðmundsson á baki. Guðjón Ólafur Einarsson. Hjalti Gunnlaugsson kominn á bak. Oddný Ragna, starfsmaður Iðju, og Inga Dóra reiðkennari nota lyftuna til að hjálpa Tinnu Rut Sigurbjörnsdóttur á bak. 10 23/2018 Rögnvaldur S. Valbergsson / orgelleikari Væri til í að gera aðra tilraun til að komast á tónleika með McCartney ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Það er Rögnvaldur S. Valbergsson organisti í Sauðárkrókskirkju sem svarar Tón-lystinni að þessu sinni. Röggi er fæddur 1956 og hefur víða komið við í tónlistinni í gegnum tíðina. Hann ólst upp í Fljótunum, sonur Valbergs Hannessonar kennara og skólastjóra og Áshildar M. Öfjörð. Um hvert hljóðfærið hans sé segir Röggi: „Það er nú það, ætli ég þykist ekki helst vera orgel- leikari, uppáhaldshljóðfæri er náttúrulega Hammond orgelið.“ Spurður um hver helstu afrek hans á tón- listarsviðinu séu segir hann af alþekktu lítillæti: „A, ja nú veit ég ekki, búinn að músisera víða og með mörgum. Kannski best að vera ekkert að gera upp á milli.“ Það kemur því í hlut umsjónarmanns Tón-lystarinnar að nefna að Rögnvaldur hefur í árafjölda kennt við Tónlistarskóla Skagafjarðar og verið organisti við Sauðárkrókskirkju frá því á síðustu öld. Þá hefur hann vitaskuld spilað með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar og fleiri hljómsveitum, stjórnað Karlakórnum Heimi yfir tvær vertíðir en Röggi hefur stjórnað nokkrum kórum í gegnum tíðina auk þess sem hann hefur komið að tónlistarflutningi hjá Leikfélagi Sauðárkróks og svona mætti lengi áfram telja. Hvaða lag varstu að hlusta á? Trúlega eitthvað sem ég er að vinna með, ekki viss, það er svo margt í gangi. Uppáhalds tónlistartímabil? Um 1960 og upp úr því. Þá komu Bítlarnir og allt hitt í kjölfarið. Upp úr 1970 er tímabilið þegar ég fer að hlusta á poppmúsík fyrir alvöru, en svo hlusta ég auðvitað á miklu fleira, t.d. barokk músík og klassík. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Ekkert sérstakt, hlusta nú ekki mikið á músík nema ég þurfi að vinna með eitthvað lag. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Allt mögulegt, helst það sem hljómaði á gömlu gufunni. Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/ niðurhalið sem þú keyptir þér? Ekki viss, kannski plata með Credeence Clearwater Revival. Hvaða græjur varstu þá með? Það hlýtur að hafa verið Garrard plötuspilari og Telefunken útvarps- tæki sem var til á heimilinu, eignaðist reyndar kasettutæki um fermingu og þá tók maður upp úr útvarpi o.fl. Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkomin með bílpróf? Mig minnir að það hafi bara verið útvarpstæki í bílnum á heimilinu svo það hefur bara verið Rás 1, ég eignaðist sjálfur bíl seint. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Ekki viss, ef mér leiðist eitthvað slekk ég bara á því. Reyni nú samt að vera frekar fordómalaus. Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Sennilega Molina með CCR. (Credeence) Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Bara Bítlana. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ætli ég myndi ekki taka konuna með mér og skella mér á Paul McCartney. Við vorum búin að kaupa miða á tónleika með honum í Danmörku árið 2011, en þeir voru slegnir af vegna tónleika annarsstaðar hjá honum, svo ekki varð af því þá. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Það er nú það, ég myndi alveg vilja hafa spilagetuna og færnina frá Rick Wakeman og Keith Emerson en ekki viss um að ég vildi vera þeir í raun, annar farinn yfir móðuna miklu og hinn orðinn ansi útlifaður að sjá. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég held ég treysti mér ekki til að svara þessu, kannski einhver Bítlaplatan eða Night At The Opera með Queen. Svo fnnst mér hljómsveitin Chicago alltaf afar góð. Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Er reyndar ekki með neitt svoleiðis, en ef svo væri þá myndi ég skoða, t.d. In My Life með Bítlunum, If You Leave Me Now með Chicago, Living Sin með Emerson Lake and Palmer, Grand Hotel með Procol Harum, Love Of My Life með Queen og kannski Too Old To Rock’n Roll með Jehtro Tull. Rögnvaldur í góðum fíling. MYND ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.