Feykir - 20.06.2018, Blaðsíða 1
24
TBL
20. júní 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 11
Björn Magnús og Eva María
eru matgæðingar vikunnar
Beikonvafðar
döðlur og
chilibollur
BLS. 8–9
Pálína Ósk verkefnastjóri
Landsmótsins í viðtali
Ýmsar nýstárlegar
greinar á
Landsmótinu
Litið við í Víðigerði
Gisting og góðar
veitingar við
þjóðveginn
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Guðný Hrund endurráðin
Sveitarstjóri Húnaþings vestra
Á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar í
Húnaþingi vestra, þann 14. júní
síðastliðin, var Guðný Hrund
endurráðin sem sveitarstjóri
Húnaþings vestra. Guðný Hrund hefur
verið sveitarstjóri frá árinu 2014.
Á dagskrá fundarins var m.a.
kosning oddvita og varaoddvita
ásamt kosningu í aðrar nefndir, ráð
og stjórnir. Þorleifur Karl Eggertsson
var kosinn oddviti sveitarfélagsins og
Ingveldur Ása Konráðsdóttir vara-
oddviti ásamt því að vera kosin
formaður byggðarráðs.
Oddviti lagði fram bókun vegna
ráðningu sveitarstjóra en í henni
kom fram að leitast væri við að miða
við laun sveitarstjóra í sveitarfélagi
með sambærilegan íbúafjölda og að
stuðst væri við skýrslu hag- og
upplýsingasviðs Sambands íslenskra
sveitarfélaga um kaup og kjör
framkvæmdastjóra sveitarfélaga á
árinu 2017. /LAM
Nú er sá tími að flest folöld eru
kominn í heiminn sem á annað borð
eiga eitthvert erindi þangað.
Hryssum er keyrt vítt og breytt um
landið og komið undir stóðhesta
sem eru misvinsælir eins og gengur
og gerist og gjaldið mishátt undir
þá.
Lægsta verðið á folatolli sem
undirritaður hefur séð er 50.000 krónur
og er þá oft um að ræða vel ættaða
ungfola sem annað hvort eru ósýndir
eða eru á fyrstu stigum á framabrautinni
og eiga framtíðina fyrir sér. Hæstu
tollar eru um 200 þúsund með skatti og
sónar og er þá um mjög góða og vinsæla
hesta að ræða. Svo er hægt að finna alls
kyns hesta á verðbilinu þar á milli sem
ræktendur telja að henti á móti sínum
merum, allt til að bæta stofninn.
Framundan er Landsmót hesta-
manna sem haldið verður í Víðidal í
Reykjavik dagana 1.-8. Júlí og þar
Tími folanna er kominn
Hæstu tollar um 200.000 kr.
Folaldið fær kaplamjólkina ómengaða frá móður sinni. MYND: PF
munu bestu kynbótahross landsins
verða sýnd sem og bestu knapar og
hestar landsins etja kappi í alls kyns
hestaíþróttagreinum. Um er að ræða
23. Landsmót hestamanna en það
fyrsta var haldið á Þingvöllum árið
1950. Stjórn LH hefur ákveðið að
Landsmót 2020 verði á Gaddstaða-
flötum við Hellu og Landsmótið 2022
verði á félagssvæði Spretts í Kópa-
vogi. /PF