Feykir - 27.06.2018, Page 1
25
TBL
27. júní 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 4
Feykir lítur við hjá ferðaþjón-
ustuaðilum á Geitafelli á
Vatnsnesi
Fiskréttir í
fögru umhverfi
BLS. 5
Listsköpun á Norðurlandi vestra
Listamiðstöðvar
vettvangur
háskólanáms
Biathlon kynnt á Sauðárkróki í
tengslum við Landsmótið
Öllum finnst þetta
rosa skemmtilegt
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Ráðherrafundur Fríverslunar-
samtaka Evrópu EFTA var haldinn á
Sauðárkróki á mánudaginn en áður
en sjálfur fundurinn hófst voru
undirritaðir annars vegar nýr
fríverslunarsamningur EFTA og
Ekvadors og hins vegar uppfærður
fríverslunarsamningur EFTA við
Tyrkland. Skrifað var undir
samningana á Hólum í Hjaltadal.
Fyrir umrædda fundi hittust þeir
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis-
ráðherra, og Nihat Zeybekci, efna-
hagsmálaráðherra Tyrklands á Hof-
stöðum í Skagafirði og ræddu ýmis
málefni, þar á meðal mál Hauks
Hilmarssonar sem talinn er hafa látist í
átökum í Afrin-héraði í Sýrlandi fyrr á
þessu ári. Guðlaugur Þór kom enn-
fremur á framfæri gagnrýni á hernað
Tyrkja í Norður-Sýrlandi.
Fundur EFTA-ráðherranna
Auk Guðlaugs sóttu ráðherrafundinn
ráðherrar frá hinum EFTA-ríkjunum:
Aurelia Frick, utanríkisráðherra
Liechtenstein, Torbjørn Røe Isaksen,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs
og Johann N. Schneider-Amman,
ráðherra efnahagsmála, menntunar og
rannsókna í sambandsstjórn Sviss.
Komu þeir saman til fundar í
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki. Á fundinum ítrekuðu
ráðherrarnir vilja sinn til að standa
vörð um frjáls milliríkjaviðskipti byggð
á gagnsæi og skýrum leikreglum. Um
leið létu þeir í ljós áhyggjur af aukinni
spennu og vaxandi tilhneigingu til
verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum. Þá
lögðu þeir áherslu á mikilvægi Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar (WTO) og að
Ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu EFTA á Sauðárkróki
Fríverslun rædd við tollabandalag
Suður-Afríkuríkja
deilur um milliríkjaviðskipti væru
leiddar til lykta á þeim vettvangi.
Ráðherrarnir ræddu jafnframt
fríverslunarmál og þá ekki síst stöðu
og horfur í yfirstandandi fríverslunar-
viðræðum. Lýstu þeir sérstakri ánægju
með upphaf viðræðna við tollabanda-
lag Suður-Afríkuríkja (SACU) um
uppfærslu gildandi fríverslunarsamn-
ings og létu í ljós von um að viðræður
við Chile um uppfærslu á núgildandi
samningi gætu hafist fljótlega á ný.
Útganga Breta úr ESB
Samskipti EFTA-ríkjanna við Evrópu-
sambandið voru jafnframt til umræðu,
sérstaklega í ljósi yfirvofandi útgöngu
Breta úr ESB. Ráðherrarnir lýstu yfir
vilja til að viðhalda nánu viðskipta-
sambandi EFTA-ríkjanna og Bretlands
og í því skyni væru þeir reiðubúnir til
að aðstoða við að koma á bráða-
birgðafyrirkomulagi á viðskiptum við
Breta uns þau mál hefðu verið til lykta
leidd til frambúðar. „Við áttum afar
góðar viðræður um Brexit enda eru öll
EFTA-ríkin á einu máli um hve
áríðandi það sé að vel takist til við
útgöngu Breta úr ESB. Þýðing þess
verður ekki ofmetin.“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór segir að fríversl-
unarsamningurinn sem gerður var við
Ekvador taki til allra sviða nútíma
fríverslunarsamnings og EFTA-ríkin
séu sammála um að með honum sé
grunnur lagður að auknum við-
skiptum og fjárfestingum. „Við erum
sannfærð um að þessi samningur
skapi viðskiptatækifæri fyrir fyrirtæki
bæði í Ekvador og EFTA-ríkjunum,“
segir Guðlaugur. Fríverslunarsamn-
ingur Tyrklands og EFTA gekk í gildi
vorið 1992. Hann tekur meðal annars
til vöru- og þjónustuviðskipta, upp-
runavottunar, verndar hugverkaréttar
og sjálfbærrar þróunar. /PF
Framkvæmdastjóri EFTA Kristinn F. Árnason ásamt Aurelia Frick, utanríkisráðherra Liechtenstein; Guðlaugi
Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra Íslands; Torbjørn Røe Isaksen, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs og
Johann N. Schneider-Amman, ráðherra efnahagsmála, menntunar og rannsókna í sambandsstjórn Sviss.
MYND: UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
FYRIR HEYSKAPINN
Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir heyvinnuvéla,
einnig slöngur og dekk með eða án felgu.
& 453 8888 NETFANG velaval@velaval.is