Feykir - 11.07.2018, Blaðsíða 4
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Tindastólsmenn tóku á móti Hugin,
laugardaginn 7. júlí, á Sauðárkróksvelli. Stefan
Antonio Lamanna skoraði fjögur mörk og
Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson skoraði eitt
mark.
Leikurinn byrjaði af krafti en eftir aðeins fjórar
mínútur voru heimamenn búnir að skora sitt
fyrsta mark, þegar Lamanna kom boltanum í
netið. Stuttu seinna, eða á 18. mínútu, skoraði
Lamanna sitt annað mark. Heimamenn urðu svo
fyrir því óláni að skora sjálfsmark og staðan því í
hálfleik 2-1. Þegar níu mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik skoraði Lamanna sitt þriðja mark.
Hann var greinilega á skotskónum og skoraði sitt
fjórða mark á 78. mínútu. Benjamín Jóhannes
bætti svo við fimmta marki heimamanna á 82.
mínútu. Staðan við leikslok 5-1. Með sigrinum
komust Stólarnir úr fallsæti í fyrsta sinn í sumar en
Víðir og Huginn eru fyrir neðan Tindastól í 2.
deildinni.
Næsti leikur Tindastólsmanna fer fram í dag,
miðvikudag, gegn Völsungi á Húsavíkurvelli. /LAM
2. deild karla: Tindastóll – Huginn 5-1
Lamanna með fjögur mörk í sigri
heimamanna
2. deild kvenna: Tindastóll – Grótta 3-2
Stólastelpur á toppinn
Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls kvenna
tylltu sér á topp 2. deildar Íslandsmótsins í
knattspyrnu með sigri á Gróttu á heimavelli sl.
sunnudag. Stólar lentu tvisvar undir en eftir
mikla eftirfylgni náðu okkar stelpur að jafna og
komast yfir og unnu verðskuldaðan sigur. Strax
á 11. mínútu kom markahrókurinn Taciana Da
Silva Souza gestunum yfir en Guðrún Jenný
Ágústsdóttir jafnaði jafnharðan skömmu síðar
eða á þeirri 14. Taciana endurtók leik sinn átta
mínútum síðar og kom Gróttu yfir á ný en það
sætti Murielle Tiernan sig ekki við og jafnaði
leikinn á ný og þannig var staðan í hálfleik, 2-2.
Rétt eftir að dómari leiksins, Árni Rúnar
Magnússon, hafði blásið til síðari hálfleiks gerði
Bryndís Rut Haraldsdóttir út um leikinn er hún
kom boltanum í netið. Þrátt fyrir ágætar sóknir á
báða bóga var ekki meira skorað og heimastúlkur
hirtu því öll stigin þrjú og komu sér á toppinn
með 15 stig, jafnmörg og Augnablik sem hefur
lakara markahlutfall 22:8 en Tindastóll 24:9 eftir
fimm sigra og tvö töp. Grótta vermir þriðja sætið
með 13 stig, Völsungur er með 12, Álftanes 11 og
Fjarðab/Höttur/Leiknir 10 en Einherji og Hvíti
riddarinn eru enn án stiga.
Næsti leikur Stóla fer fram í dag, miðvikudag,
gegn Hvíta riddaranum á Tungubakkavelli í
Mosfellsbæ og hefst klukkan 19:15. Allir sem tök
hafa á ættu að drífa sig á staðinn og hvetja þessar
mögnuðu stelpur til dáða./PF
Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls. MYND: PF
4. deild karla – D-riðill: Geisli A - Kormákur/Hvöt 1-2
Sigur hjá Kormáki/Hvöt
Kormákur/Hvöt sótti Geisla A
heim í Aðaldalinn í 6. umferð
á laugardaginn síðastliðinn.
Feykir hafði samband við
Guðbjart Sindra Vilhjálmsson,
liðstjóra, og lýsti hann gangi
leiksins á eftirfarandi hátt.
Í sumar og sól sótti
Kormákur/Hvöt Geisla A heim
á Geislavelli. Leikurinn fór
hratt af stað og sóttu gestirnir
hart að Geislamönnum frá
upphafi. Fyrsta mark leiksins
kom á 14. mínútu þegar Juan
Carlos Dominguez átti
sendingu úr vörn gestanna á
Daniel Garceran Moreno á
miðjunni sem lagði boltann
inn fyrir á Hilmar Þór Kárason
sem lagði boltann framhjá
markmanni Geisla. Staðan því
orðin 0-1 fyrir Kormáki/Hvöt.
Eftir markið hægðist aðeins
á sóknarleik gestanna og
komust Geislamenn inn í
leikinn í fyrsta sinn. Stuttu fyrir
hálfleik átti nákvæmlega sama
atburðarás sér stað og í marki
gestanna rétt áður, fyrir utan að
markvörður Geisla varði
meistaralega skot Hilmars
Þórs. Flautað var til hálfleiks og
hlupu leikmenn þá inn í klefa
þar sem byrjað var að rigna.
Staðan 0-1 fyrir Kormáki/Hvöt.
Í seinni hálfleik virtust
Geislamenn ætla taka við sér
en allt kom fyrir ekki og á 53.
mínútu fá gestirnir aukaspyrnu
á hættulegum stað fyrir miðju
marki. Að boltanum stígur
markaskorarinn Hilmar Þór
sem á skot að marki sem
markmaður Geisla nær ekki að
halda og fellur boltinn fyrir
Elvar Örn Birgisson sem leikur
létt með boltann og kemur
honum í netið. Ekki voru
Geislamenn þó lengi að svara
fyrir sig en þeir fengu
aukaspyrnu úti á hægri kanti á
55. mínútu. Boltanum var þá
fleygt inn á teiginn þar sem
Geislamenn lögðu hann
snyrtilega í markið.
Reyndust lokatölur 1-2 á
Geislavelli. Maður leiksins var
Hámundur Örn Helgason
vegna endalausrar baráttu inni
á vellinum, framúrskarandi
spilamennsku, einnig hélt hann
miðju vallarins á sínu valdi
allan leikinn og hirti alla
skallabolta sem boðið var upp
á.
Næsti leikur Kormáks/
Hvatar fer fram þann 20. júlí kl.
20:00 á Blönduósvelli. /LAM
Liðsmenn Kormáks/Hvatar í nýjum búningum. MYND: AÐDÁENDASÍÐA KORMÁKS
Lamanna í baráttu um boltann. MYND: ÓAB
Meistaramót GSS
Árný Lilja og Arnar Geir
klúbbmeistarar GSS
Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks í flokki
fullorðinna var haldið dagana 4.-7. júlí og var
keppt í nokkrum flokkum. Þátttaka var með
ágætum í flestum þeirra og veðrið ágætt
alla dagana þrátt fyrir misvísandi veðurspár.
Spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum í öllum
flokkum nema öldungaflokki kvenna þar sem
leiknar voru 54 holur.
Á FB-síðu Golfklúbbs Sauðárkróks kemur
fram að Hlíðarendavöllur sé í sínu besta standi
líkt og síðastliðið sumar og er fólk hvatt til þess að
skella sér á völlinn. Klúbbmeistarar GSS að þessu
sinni urðu þau Árný Lilja Árnadóttir og Arnar
Geir Hjartarson. /PF
Helstu úrslit og skor voru eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla:
1. sæti. Arnar Geir Hjartarson 317 högg.
2. sæti. Brynjar Örn Guðmundsson 322 högg.
3. sæti Jóhann Örn Bjarkason 328 högg.
Meistaraflokkur kvenna:
1. sæti. Árný Lilja Árnadóttir 331 högg.
2. sæti. Hildur Heba Einarsdóttir 366 högg.
3. sæti. Sigríður Elín Þórðardóttir 374 högg, en
hún varð í 3. sæti eftir umspil við Dagbjörtu Rós
Hermundardóttur.
1. flokkur karla:
1. sæti. Guðmundur Þór Árnason 353 högg.
2. sæti. Andri Þór Árnason 359 högg.
3. sæti. Friðjón Bjarnason 368 högg.
2. flokkur karla:
1. sæti. Þórhallur Rúnar Rúnarsson 448 högg.
2. sæti. Pétur Björnsson 588 högg.
Öldungaflokkur kvenna:
1. sæti. Ólöf Herborg Hartmannsdóttir 318 högg.
2. sæti. Hafdís Skarphéðinsdóttir 334 högg.
3. sæti. Kristrún Snjólfsdóttir 384 högg.
Dominos-deildin
Sigtryggur Arnar til liðs
við Grindavík
Samkomulag náðist á milli körfuknattleiksdeildar Tindastóls
og Grindavíkur sem heimilaði félagaskipti Sigtryggs Arnars
Björnssonar. Í fréttatilkynningu frá stjórn Tindastóls var Sigtryggur
Arnar sagður einn af mikilvægari leikmönnum Tindastóls á síðasta
tímabili og mikil eftirsjá væri að leikmanninum.
Stjórn Tindastóls þakkaði Sigtryggi Arnari fyrir frábært tímabil en
harmaði jafnframt þá ákvörðun leikmannsins að klára ekki samning
sinn við liðið. Að lokum kom stjórn Tindastóls á framfæri þökkum til
Grindavíkur fyrir að koma heiðarlega fram til að ná sáttum um
félagaskipti leikmannsins og óskaði Grindavík góðs gengis á komandi
tímabili. /LAM
4 27/2018