Feykir - 11.07.2018, Qupperneq 9
Í Lónkoti í Sléttuhlíð, miðja
vegu milli Sauðárkróks og
Siglufjarðar, hefur um margra
ára skeið verið rekin þjónusta
við ferðamenn. Blaðamaður
leit við í Lónkoti og hitti þar
fyrir hjónin Júlíu Þórunni
Jónsdóttur og Þorgils Heiðar
Pálsson sem reka staðinn.
Starfsemina í Lónkoti
má rekja allt aftur til ársins
1990 þegar foreldrar Júlíu,
Jón Torfi Snæbjörnsson og
Ólöf Ólafsdóttir, opnuðu
ferðaþjónustu í gömlu
fjárhúsunum á bænum sem
þau höfðu breytt í gistiheimili.
Þau létu ekki þar við sitja
og fimm árum síðar bættist
svo veitingastaðurinn við
þar sem áður var fjós og
haughús. Samhliða var vígður
minnisvarði um listamanninn
Sölva Helgason sem fæddur var
á Fjalli í Sléttuhlíð en myndir
eftir hann prýða veggi staðarins
og eru þær sannkölluð listaverk.
Nú hafa Jón og Ólöf dregið sig
út úr rekstrinum og er hann nú
í höndum Júlíu og Þorgils.
Nýta allt sem
veiðist og vex
Allir réttir á matseðlinum
í Lónkoti eru matreiddir
úr hráefni úr héraði og er
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
Þegar ekið er um Sléttuhlíðina, í utanverðum Skagafirði að
austan, hlýtur margan ferðamanninn að fýsa að staldra við
enda er útsýnið þar út til fjarðarins einstaklega fallegt,
Málmeyjan rétt undan landi, Þórðarhöfðinn innan seilingar
og í bakgrunninum standa Drangey og Kerlingin sinn vörð.
Litið við hjá ferðaþjónustuaðilum:
Lónkot
Á slóðum Sölva
Helgasonar í Sléttuhlíð
staðurinn aðili að Matarkistu
Skagafjarðar og einnig að
Slow Food. Júlía segir það
alla tíð hafa verið haft að
leiðarljósi í matseldinni að
nýta allt sem veiðist og vex í
nærumhverfinu. Sem dæmi
um mat sem er á boðstólum
má nefna ferskan þorsk úr
firðinum, lunda, á þeim tíma
sem hann er veiddur, silung
og fjallalamb, afurðir úr
rabarbara, bláber og grænmeti
úr eigin garði. Einnig nýta þau
margs kyns blóm og jurtir
sem vaxa villt í náttúrunni
sem krydd og meðlæti, svo
sem fíflablöð og hundasúrur,
blóðbergið sem vex villt út
um allt og er bæði fallegt og
bragðgott og ekki má gleyma
túnsúrukrapís og fjóluís sem
framleiddur er á staðnum.
Í Lónkoti er lögð áhersla
á að baka og elda allan mat
frá grunni og eru réttirnir á
matseðlinum að nokkru leyti
mismunandi eftir tímabilum,
allt eftir því hvaða hráefni
standa til boða hverju sinni.
Hægt er að taka á móti
16 manns í gistingu í
Lónkoti, í fjórum tveggja
manna herbergjum, einu
þriggja til fjögurra manna
og svo er þar fimm manna
fjölskyldusvíta. Einnig stendur
til boða að tjalda og fá þeir
tjaldgestir sem kaupa sér
mat á veitingastaðnum frítt á
tjaldstæðinu.
Í Lónkoti hefur alla tíð
verið rekin menningartengd
ferðaþjónusta og lögð mikil
rækt við að tengja hana við
sögu svæðisins. Eins og
áður var nefnt hefur Sölva
Helgasyni alltaf verið gert þar
hátt undir höfði en einnig er
á staðnum minnisvarði um
landnámsmanninn Höfða-
Þórð sem nam land á svæðinu.
Eins er þar minnismerki
um hina fjölkunnugu Ólöfu
í Lónkoti sem gerði sér til
gamans að glettast við hinn
göldrótta nágranna sinn,
Hálfdán prest í Felli, sem
tjaldhringurinn á túninu í
Lónkoti, Hálfdánarhringur,
dregur nafn sitt af.
Af nógu er að taka vilji
fólk njóta náttúrunnar á
svæðinu. Bærinn stendur
nánast í fjöruborðinu og
eru góðar gönguleiðir
meðfram ströndinni og þá
er Þórðarhöfðinn stutt frá
vilji fólk leggja upp í lengri
gönguferðir.
Opið er í Lónkoti frá því í byrjun maí
og til loka septembermánaðar.
Júlía og Þorgils bera fram girnilega rétti úr skagfirsku hráefni. MYND: FE
Fjóluís, heimatilbúinn úr fjólum sem vaxa villtar í náttúrunni við Lónkot.
MYND: AÐSEND
Lónkot í Sléttuhlíð. Málmey í bakgrunni. MYND: FE
Landsmótið hefst á Sauðárkróki
Landsmótið er fjögurra daga íþróttaveisla á Sauðárkróki
dagana 12. - 15. júlí 2018. Íþróttir og hreyfing verða í
aðalhlutverki á daginn. Á kvöldin verður skemmtun og
samvera í góðum félagsskap allsráðandi.
Allir 18 ára og eldri geta skráð sig, hvort sem þeir eru í
íþrótta- og ungmennafélagi eða ekki. Að sjálfsögðu verður
margt í boði fyrir mótsgesti yngri en 18 ára. Landsmótið er
því frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Landsmótið
er tilvalinn vettvangur fyrir vinahópa, starfsmannahópa,
stórfjölskylduna eða endurfundi af ýmsu tagi. Á Landsmótinu
er tilvalið að styrkja tengslin við vini og vandamenn í góðum
félagsskap, hreyfa sig, njóta samverunnar og gleðjast saman.
Þátttakendur mótsins geta keppt í eða prófað fjölda
íþróttgreina í bland við götu- og tónlistarveislu. Saman munu
gestir Landsmótsins skapa töfrandi minningar. Það verður
rífandi fjör og gleði alla daga mótsins.
Þeir sem skrá sig til leiks búa til sína eigin dagskrá.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið á sama stað og á sama
tíma. Mótið verður með svipuðu fyrirkomulagi og undanfarin
ár. Helstu keppnisgreinar verða á sínum stað og verða
margfalt fleiri keppnisgreinar, viðburðir og önnur afþreying í
boði en verið hefur áður.
Á föstudagskvöldið verður götupartí og tónlistarveisla í
Aðalgötunni kl. 19:00 – 23:00. Auddi og Steindi, hljómsveitin
Albatross og Sverrir Bergmann ásamt gestum sjá um frábæra
skemmtun. Aðgangur er ókeypis.
Á laugardagskvöldið verður mikil skemmtanaveisla.
Kl. 19:30-23:00 verður matarveisla, skemmtun og
dans í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Boðið verður upp á
veisluhlaðborð úr Matarkistu Skagafjarðar. Veislustjórar verða
Gunnar Sandholt og María Björk Ingvadóttir. Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Miðaverð 5.900 kr.
eða 4.900 kr. fyrir landsmóts þátttakendur.
Seinna á laugardagskvöldinu verður svo ball ársins, en Páll
Óskar kemur í íþróttahúsið og sér um fjörið. Húsið opnar á
miðnætti og aldurstakmarkið er 18 ár. Miðaverð er 3.900 kr.
eða 3.000 kr. fyrir þátttakendur á landsmótinu.
Hægt er að skrá sig á landsmót og kaupa aðgang að
öllum viðburðum landsmótsins á
https://www.landsmot.is
www.landsmotid.is
Landsmótið
ÍÞRÓTTAVEISLA FYRIR ALLA
SAUÐÁRKRÓKUR 12. - 15. JÚLÍ 2018
27/2018 9