Feykir


Feykir - 11.07.2018, Side 11

Feykir - 11.07.2018, Side 11
5-pipar, gróft sjávarsalt kartöflur, sætar og gullauga eða rauðar eftir smekk rófur, laukar, hvítir/rauðir, gulrætur íslenskt blómkál og spergilkál þegar það er í boði, annars uppáhalds- grænmeti hvers og eins olívuolía, malaður 5-pipar, gróft sjávarsalt, timian. Aðferð: Framparturinn snyrtur og kryddaður, gott að setja nokkrar smjörklípur yfir til að fá smá skorpu og mýkja hann. Settur í pottofninn (þennan gamla, góða svarta) og sett í ofninn, án loks, við 220°C í svona 10 mínútur til að fá skorpuna. Hitinn lækkaður í 180°C eða lægra ef vill, mörgum finnst betra að hægelda lambakjötið, og lokið sett yfir. Grænmetið skorið í bita, stærð eftir smekk, öllu blandað í stóra skál, olífuolíu hellt yfir, kryddi bætt við og hrært vel saman. Þessu hellt í pottinn eftir ½-1 tíma og steikt áfram. Steikartími fer síðan eftir stærð bitanna, ½-1 tími, allt miðað við þyngd kjötsins og heildarsteikartími miðast við það. Kjötið tekið úr ofninum og látið „ryðja sig“ í u.þ.b. 10 mínútur en grænmetið áfram í ofninum. Það þarf að vera vel heitt þegar það er borið á borð svo það kólni ekki of hratt. Með þessu þarf ekki aðra sósu en soðið sem myndast í pottinum sem er bæði hollasta og bragðbesta sósa sem um getur! EFTIRRÉTTUR Rabarbarabaka 400 g rabarbari ½ dl hveiti 2 egg 2½ dl sykur 1¾ dl hveiti eða haframjöl 1½ dl púðursykur 50 g smjör Aðferð: Rabarbarinn skolaður og skorinn í litla bita. Hveiti, sykur og egg hrært saman og hellt yfir rabarbarann. Sett í smurt eldfast mót. Hér finnst mér gott að bæta við að vild súkkulaði, rifnu marsipani, bönunum, eplum, döðlum eða öðrum uppáhalds sæt- indum. Þá er upplagt að minnka sykurmagnið hér og eins púðursyk- urinn sem er dreift yfir á eftir. Mylja saman hveiti/haframjöli, púðursykri og smjöri, dreifa yfir rabarbarann og baka í u.þ.b. 45 mín. Gott að bera fram með bökunni ís, rjóma eða gríska jógúrt/sýrðan rjóma. Ásdís og Árni skora á Binný og Ómar að taka við „en Binní er einn mesti matgæðingur sem ég þekki,“ segir Ásdís. SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS::Grútur. Feykir spyr... Ætlar þú að taka þátt í Landsmótinu? Ef já, í hvaða keppnisgreinum? Spurt á Facebook UMSJÓN Lee Ann „Ég hafði hugsað mér að taka þátt í 65 km götuhjólreiðum, helst alla dagana. Þá finnst mér líklegt að ég láti sjá mig á púttvellinum". Björn Ingi Óskarsson „Já, ég ætla að taka þátt í stígvélakasti og svo brennibolta með stórglæsilegu kvennaliði okkar Sauðkrækinga, Drottningum. Endilega komið og hvetjið okkur!". Sólveig B. Fjólmundsdóttir „Já, í golfi 50+ og 18+ og auðvitað laugardagsgleðinni með Geirmundi". Kristján Bjarni Halldórsson „Já, ég ætla alla vega að keppa í Metabolic. Það fer svo eftir því hvort ég verði laus við gifsið hvort ég taki þátt í fleiri greinum. Það er svo margt í boði". Þórunn Katrín Björgvinsdóttir KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Okkur vantar ekki einn leiðtoga heldur þúsund, ekki eina hugmynd heldur margar. Og svo nennu til að koma þeim í verk. – Páll Baldvin Baldvinsson. Matgæðingar vikunnar eru þau Ásdís S. Hermannsdóttir og Árni Ragnarsson á Sauðárkróki. Ásdís er kennari á eftirlaunum síðustu tvö árin en hefur unnið í afleysingum við kennslu og í gamla lækna- ritarastarfinu sínu eftir það og er alltaf mjög glöð þegar „kallið kemur“ að hitta gamalt samstarfsfólk og rifja upp gamla takta. Annars er uppáhaldsiðjan að vera amma og njóta barnabarnanna. Árni er arkitekt og sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar. Eldamennskan er mest á hennar könnu en „Árni minn hefur sérhæft sig í nokkrum uppskriftum,“ segir Ásdís, „sem ekki komast á blað núna en af þeim gerir hann bestu „omelettu“ í heimi og hún klikkar aldrei. Svo er hann besti uppvaskari sem hugsast getur – og enginn kann að raða í uppþvottavélina nema hann!“ -Ásdís kemur aldrei nálægt frágangi í eldhúsinu og finnst þetta góð verkaskipting. For- og aðalréttur eru uppskriftir sem Ásdís hefur þróað gegnum tíðina. Sérstaklega er aðalrétturinn í uppáhaldi hjá öllum, þægileg elda- mennska fyrir huggulegt laugardagskvöld, með eða án gesta! Grunn- uppskriftin að rabarbarabökunni er úr gömlu, góðu uppskriftabókinni Matarlyst frá Mjólkurdagsnefnd en Ásdís hefur breytt og bætt. Mjög vinsæll eftirréttur og ekki kallað annað en ömmurabarbaradesert á heimilinu. FORRÉTTUR Lárperu-rækju réttur avokadó rækjur sýrður rjómi eða grísk jógúrt lime og krydd eitthvað grænt og gott Aðferð: Byrjið á að rífa niður eitthvað gott grænmeti í litlar skálar. Yfir það fer avokadó (vel þroskað), skorið niður í hæfilega stóra bita, lime kreist yfir og stráð yfir grófu sjávarsalti. Rækjur þar ofan á, einnig kreista lime yfir þær og síðast toppað með sýrðum rjóma eða grískri jógúrt. Skreytt með dillkvistum eða þurrkuðu dilli. Með þessu má bera fram snittubrauð eða ristað brauð ef vill. AÐALRÉTTUR Lambaframpartur með grænmeti í pottofni Mér finnst betra að nota frampart heldur en læri þar sem hann er fitusprengdari og safameiri. lambaframpartur smjör krydd frá Pottagöldrum; Lamb Islandia/Herbes de Provence/ Eftirlæti hafmeyjunnar, malaður Su do ku Lárperuforréttur, lambasteik og ömmurabarbaradesert ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Ásdís og Árni matreiða Árni við endann og Ásdís t.h. ásamt hluta stórfjölskyldunnar. MYND ÚR EINKASAFNI 27/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Hinn 71 árs gamli Stephen Edwin King er einhver þekktasti hryllings rithöfundur heims í gegnum tíðina. Bækur hans hafa verið þýddar á mörg tungumál og gerðar hafa verið frægar kvikmyndir eftir sögum hans eins og Carrie, Cujo, It og The Shining. Ótrúlegt, en kannski satt, þá sefur King alltaf með ljósin kveikt af ótta við myrkrið. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Lampi minn hékk lágt á krók. Lýti var á helgri bók. Alþingi mér illa tók. Alræmdur sem nískublók. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.