Feykir


Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 9

Feykir - 25.07.2018, Blaðsíða 9
Einn af þeim bæjum sem ekið er framhjá á þeirri leið er Stóra- Ásgeirsá þar sem Magnús UMFJÖLLUN Fríða Eyjólfsdóttir Sjálfsagt eru þeir margir Íslendingarnir sem aldrei hafa gefið sér tíma til að staldra við í Húnaþingi, heldur gefa í og bruna eftir hinum tiltölulega beinu og breiðu vegum sýslunnar. Það er þó full ástæða til að gefa sér örlítið tóm og bregða út af vananum því svæðið býður upp á fjölmörg falleg náttúrufyrirbrigði og víða er hægt að leggja lykkju á leið sína án þess að það þurfi að taka svo afskaplega mikið af hinum dýrmæta tíma sem margir eru alltaf í kapphlaupi við. Einn af þeim möguleikum sem eru fyrir hendi er að aka til tilbreytingar veg nr. 715 um Víðidalinn að austan og virða dalinn fyrir sér frá annarri hlið en venjan er og jafnvel að skreppa fram í hin stórfenglegu Kolugljúfur sé ekki verið að flýta sér of mikið. Litið við hjá ferðaþjónustuaðilum: Stóra-Ásgeirsá Mjólkurhús í nýju hlutverki herbergjum sem allt í allt rúma níu manns í gistingu. Rétt utan við útidyrnar er heitur pottur á bakka lítillar ár, Ásgeirsár, þar sem hún rennur hjá í fallegum fossum sem nefnast Ásgeirsárfossar. Einnig er á bænum lítill húsdýragarður þar sem að sjálfsögðu er hægt að fá að sjá hesta en einnig endur, hænur, heimaalninga, hunda og ketti og jafnvel kettlinga. Ekki má svo gleyma geitunum og kiðlingunum sem eru sérlega vinalegar og gaman að fá að klappa. Bar í fjósinu Nýjasta viðbótin í ferðaþjón- ustunni á Stóru-Ásgeirsá er svo bar en hann hefur Magnús sett upp í fjósinu sem ekki er notað sem slíkt lengur, nánar tiltekið í gamla mjólkurhúsinu. Barinn dregur vitanlega nafn þar af og nefnist Mjólkurhúsið. Salurinn tekur 24 manns í sæti og þar er framreiddur morgunverður fyrir næturgesti. Á barnum eru náttúrulega ýmsir drykkir í boði og einnig býður Magnús upp á að hægt sé að panta þar kvöldverð, grillað lambakjöt eða kjötsúpu frá bænum. Svo er aldrei að vita nema húsbóndinn taki lagið en hann er liðtækur tónlistarmaður og hefur gefið út disk með lögum sínum og nefnist hann Legg af stað. Mjólkurhúsið er opið öll kvöld vikunnar, bæði fyrir næturgesti og einnig geta heimamenn og aðrir þeir sem leið eiga um rennt við og kíkt á barinn. Bóndinn á barnum. MYNDIR: FE Ásgeir Elíasson býr með hross og sauðfé ásamt fleiri dýrum. Þar hefur um nokkurra ára skeið verið rekin hestaleiga og einnig heimagisting í fjórum björtum og vistlegum Geitur og kiðlingar í húsdýragarðinum. Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki Sími 455 7176 KAUPFÉLAG VESTUR HÚNVETNINGA Strandgötu 1 Hvammstanga Sími 455 2300 Við óskum íbúum í Húnaþingi vestra til hamingju með Eld í Húnaþingi Túnbraut 1-3 Skagaströnd Sími 455 2700 www.skagastrond.is Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4700 www.blonduos.is Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkróki Sími 455 6000 BLÖNDUÓSBÆR Höfðabraut 6 Hvammstanga Sími 455 2500 www.hagsaeld.is Glerárgötu 34 Akureyri www.stefna.is www.skolabudir.is Aðalgötu 21 550 Sauðárkrókur Sími 453 5050 Sauðárkróki Blönduósi Hvammstanga Sími 455 9200 www.landsbankinn.is Garðavegi 29 530 Hvammstanga Sími 451 2440 VERKFRÆÐISTOFA Efstubraut 2 Blönduósi Sími 452 7100 Höfðabraut 6 Hvammstanga Sími 455 2510 H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgarflöt 1 Sauðárkróki Potturinn við Ásgeirsárfossa. MYND AF BOOKING.COM Salurinn í Mjólkurhúsinu.Eitt af fjórum herbergjum sem leigð eru út. 29/2018 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.