Feykir - 15.08.2018, Page 1
30
TBL
15. ágúst 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
er alltaf með eitthvað á
prjónunum
Er ekki mikið fyrir
að prjóna á nr. 2,5
BLS. 9
Katharina Schneider í
opnuviðtali
Ævintýraþráin
leiddi hana til
Íslands
Álfhildur Leifsdóttir svarar
Rabb-a-babbi
Flinkari með
ryksuguna en
borvélina
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
FYRIR HEYSKAPINN
Eigum til tinda og hnífa í flestar gerðir heyvinnuvéla,
einnig slöngur og dekk með eða án felgu.
& 453 8888 NETFANG velaval@velaval.is
Á fundi byggðarráðs Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar í gærmorgun
var samþykkt samhljóða að ráða
Sigfús Inga Sigfússon í starf
sveitarstjóra Sveitarfélagsins
Skagafjarðar.
Sigfús Ingi er 42 ára gamall og hefur
undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri
í atvinnu-, menningar- og kynningar-
málum hjá sveitarfélaginu. Hann hefur
viðamikla reynslu úr störfum í opinberri
stjórnsýslu hjá bæði ríki og sveitarfélagi
og hefur einnig starfað hjá fyrirtækjum
á einkamarkaði. Sigfús lauk BA-prófi í
sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2001
og MBA-gráðu frá University of Stirling
í Skotlandi árið 2002, auk þess hefur
hann stundað nám í opinberri
stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Sigfús Ingi er kvæntur Laufeyju
Leifsdóttur, ritstjóra hjá Forlaginu, og
eiga þau þrjú börn.
Alls sóttu 17 einstaklingar um starfið
en fjórir drógu umsókn sína til baka.
Ráðningarferlið var í höndum ráðninga-
og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs og að
teknu tilliti til faglegs mats og umsagnar
Hagvangs var ákveðið að ráða Sigfús
Inga í starfið. Áætlað er að Sigfús taki til
starfa 22. ágúst næstkomandi.
„Ég er spenntur fyrir starfinu og
hlakka mjög til að vinna með öllu því
góða fólki sem starfar hjá sveitarfélaginu.
Ég veit að ég tek við góðu búi en auðvitað
eru áskoranirnar margar eins og gengur
og gerist og vafalítið verður í mörg horn
að líta. Enda er sveitarfélagið víðfeðmt
og hefur á að skipa nokkrum þéttbýlis-
kjörnum og öflugu dreifbýli og er
metnaðarmál okkar að kappkosta að
veita íbúum héraðsins sem besta
þjónustu,“ segir Sigfús Ingi, nýráðinn
sveitarstjóri. /LAM
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sigfús Ingi ráðinn nýr sveitarstjóri
Það var fallegt um að litast á Sauðárkróki í gær þegar þessi mynd var tekin, logn og rjómablíða þó þokan hefði tyllt sér á Þórðarhöfðann og eyjarnar. Það skyggði
þó á ánægju margra að sjá að tveir dragnótabátar höfðu gert sig heimakomna rétt upp við landsteinana og má sjá annan þeirra, Hafborgu EA 152 sem er tæplega
300 brúttótonna skip, á myndinni þar sem hún er að veiðum á slóðum sem vinsælar eru hjá sjóstangaveiðmönnum. Bann við dragnótaveiðum á Skagafirði var
afnumið þann 1. nóvember sl. og að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar, formanns byggðarráðs Skagafjarðar, hefur sveitarstjórn engin svör fengið frá ráðamönnum
við mótmælum þeim sem sem hún sendi frá sér þá. „Þetta er bara ekki gott og við munum ítreka mótmæli okkar á næstu dögum ef ekki verður hlustað á sjónarmið
okkar,“ sagði Stefán Vagn í samtali við Feyki. MYND & TEXTI: FE
Skagafjörður
Dragnótabátar að veiðum
uppi við land
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Sigfús Ingi Sigfússon. MYND: FEYKIR