Feykir


Feykir - 22.08.2018, Blaðsíða 11

Feykir - 22.08.2018, Blaðsíða 11
mjög góður og hollur matur! RÉTTUR 2 Russischer Zupfkuchen Seinni uppskriftin er af köku sem kallast „Russischer Zupfkuchen“ eða rússnesk „klípu“kaka en hún kemur samt ekki frá Rússlandi, það hljómaði bara svo vel þegar þessi uppskrift kom fram í kökusamkeppni. Eins og með fyrri uppskriftina er hún upprunalega með kvark en ég nota bara skyr í staðinn. Deig: 1 egg 150 g sykur 250 g smjörlíki 400 g hveiti 15 g lyftiduft 50 g kakóduft Fylling: 3 egg 200 g sykur vanillusykur/vanilludropar 250 g smjör ½ poki vanillubúðingsduft (eins og fyrir 500 ml mjólk) 500 g skyr Aðferð: Deigið er hrært saman, fyrst egg og sykur, svo er smjörlíki bætt við og loks þurrefnum. Helmingur er settur í botn og upp með hliðinni á stóru, kringlóttu kökuformi, hinn helmingurinn er geymdur til að setja ofan á. Fyllingin er einnig hrærð saman, egg og sykur fyrst, svo er hinu bætt við. Þessu er svo hellt ofan á botninn og loks er hinn helmingurinn af deiginu settur ofan á. Það er gert með því að taka klípu og klípu af deigi og setja á fyllinguna. Það heitir „Zupfen“ á þýsku og þaðan kemur nafnið á kökunni. Kakan er svo bökuð við 200°C í 50 mínútur, passið samt að hún verði ekki of dökk. Hún þarf að vera orðin köld þegar hún er borðuð. Verði ykkur að góðu! Ég ætla að skora á Oliviu Weaving á Hlaðhamri að koma með uppskriftir næst. SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS::Fall. Feykir spyr... Hvað finnst þér það besta við haustið? Spurt á Facebook UMSJÓN Lee Ann „Veðrið, því það er svo rólegt og ekki of kalt. “ Guðbjörg Pálína Sigurðardóttir „Það besta við haustið eru réttarböllin.“ Guðmundur Steinar Aron Kristínarson „Mér finnst myrkrið og stjörnurnar það besta við haustið. “ Svava Björk Vilhjálmsdóttir „Göngur og réttir. “ Valgeir Ívar Hannesson Tilvitnun vikunnar „Visku má öðlast með þjáningu. Gegnum missi og mistök lærist okkur hvað raunverulega skiptir máli í lífinu.“ – Pam Brown Það er þýski Miðfirðingurinn Henrike Wappler sem gefur okkur uppskriftir að þessu sinni. Henrike, sem er frá Bautzen í Saxlandi sem tilheyrir hinu gamla Austur-Þýskalandi, kom til Íslands árið 1999 og er hér enn. Hún er félagsráðgjafi að mennt og starfar sem slíkur hjá fjölskyldusviði Húnaþings vestra og einnig Skagafjarðar. Henrike er gift Friðrik Jóhannssyni, bónda á Brekkulæk í Miðfirði, þar sem þau búa með börnum sínum þremur. „Ég er stödd í Bautzen, í sumarfríi hjá fjölskyldunni minni, og ætla því að koma með tvær uppskriftir héðan frá Þýskalandi,“ segir Henrike. RÉTTUR 1 Pellkartoffeln mit Kräuterquark (skrældar kartöflur með kryddkvark) Fyrst er það uppskrift að hádegismat sem var fyrr á tímum borðaður nokkrum sinnum í viku og er í uppáhaldi hjá mér. Það er „Pellkartoffeln mit Kräuterquark“ sem eru skrældar kartöflur með kryddkvark. Þar sem kvark fæst ekki á Íslandi nota ég skyr og gengur það vel. kartöflur – eins margar og þarf skyr – t.d. 250 g mjólk til að hræra í skyrið salt, pipar, paprika ferskar kryddjurtir eins og steinselja, graslaukur og dill saxaður laukur hörfræolía smjör Aðferð: Kartöflur eru soðnar með hýði, sem er ekki algeng í Þýskalandi, og ef það eru nýjar kartöflur má svo gjarnan borða þær með hýðinu. Mjólkin er svo hrærð út í skyrið eins og gert er fyrir sætt skyr. Svo er það kryddað með salti, pipar, papriku og ferskum kryddjurtum sem til eru hverju sinni. Einnig er söxuðum lauk bætt við. Hörfræolía fæst núna í góðum matvörubúðum eins og KVH (á Hvammstanga) en fyrstu árin mín á Íslandi kom ég með hana frá Þýskalandi. Það eru ekki allir hrifnir af hörfræoliu (Friðrik mínum finnst hún líklega jafn slæm og mér lýsi), en ég lauma gjarnan einni matskeið í skyrið, það tekur enginn eftir því. Og meira þarf ekki að gera! Við borðum kartöflurnar heitar, tökum hýðið af eða ekki, stráum salti yfir og höfum (kalda) skyrblöndu með. Ég set slatta af hörfræolíu yfir kartöflurnar en þau sem vilja það ekki nota bara smjörklípu. Þetta er Su do ku Kartöflur með kryddskyri og rússnesk klípukaka ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Henrike Wappler matreiðir Henrike Wappler ásamt fjölskyldu. Mynd úr einkasafni 31/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Los Angeles er borg í Suður- Kaliforníu í Bandaríkjunum og búa þar um 3.847.400 manns en á öllu LA svæðinu yfir 18 milljónir. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er upprunalegt heiti borgarinnar El Pueblo de Nuestra Señora la Reina de los Ángeles del Río Porciúncula. Algengt er að skammstafa nafn borgarinnar í LA og næst þá að stytta það um 96,37%. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ath. Í síðasta blaði var lausnarorðið ekki rétt. Rétt lausn er: Fjöður. Komin er að mér konan mörg. Kunn við mér er engin björg. Fjárbónda ég fell í skaut. Fótakefli á lærdómsbraut. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.