Feykir - 29.08.2018, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
32
TBL
29. ágúst 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Elsti afkomandinn afhjúpaði verkið
Reynistaðarbræðrum reistur minnisvarði
Láttu sjá þig á Króknum
Flæðagerði
M
óa
ve
gu
r
Gönguskarðsá
Háeyri
Sauðárkrókur
Velkomin til Sauðárkróks, stærsta þéttbýlisstaðarins í
Skagafirði með um það bil 2.600 íbúa.
Árið 1871 er talið upphafsár byggðar á Króknum eins og
hann er kallaður í daglegu tali. Helsta einkenni Króksins eru
Nafir, brekkurnar ofan við byggðina sem í raun eru gamlir
sjávarkambar sem talið er að myndast hafi af framburði
Gönguskarðsárinnar sem rennur norðan við bæinn.
Sauðárkrókur er einn öflugasti byggðakjarni lands-
byggðarinnar þar sem saman fer öflug útgerð, úrvinnsla
afurða af stóru landbúnaðarsvæði og þjónusta sem jafnast
á við það besta sem býðst á landsbyggðinni. Þar nægir að
nefna verslun, sjúkrahús, fjölbrautaskóla og fjölbreytta
afþreyingarmöguleika.
Mikill metnaður er lagður í leik- og grunnskólaþjónustu
auk annarrar þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur. Á
Króknum er nú rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.
Sauðárkrókur is one of Iceland’s most vigorous towns outside the
capital city area, joining shipping and fishing, the processing of
farm products from a wide expanse, and services equalling the best
anywhere away from the capital itself.
Suffice is to mention the fine offering of stores, a hospital,
comprehensive secondary school, and varied recreational
opportunities. All efforts are expended to guarantee quality
preschool and compulsory school activities, in addition to other
services for individuals and families.
UPPLÝSINGAR :: INFO
Sauðárkrókur
ÞJÓNUSTUKORT :: SERICE MAP
Neyðarþjónusta
Emergency Service
Notstanddiest
Matsölustaðir / Krár / Kaffihús
Restaurants / Pubs / Café
Restaurants / Kneipen / Café
Verslanir
Shops
Geshafte
Bílaþjónusta / Bílaleiga / Flutningar
Car Service / Rentals / Transport
Autodienst / Vermietungen / Transport
Hótel / Gistihús
Hotels / Guesthouses
Hotels / Gasthauser
Ýmis þjónusta
Various Services
Versehiedene Dienst
Bankar / Sparisjóðir
Banks and Savings banks
Banken und Sparkassen
Söfn / Afþreying / Upplýsingar
Museums / Leisure / Information
Museeum / Freizeit / Information
Bæjar- og ríkisstofnanir
State and Municipality
Öffentliche Amter
Þú ert hér!
You are here!
Sie sind hier!
Umsjón með söfnun þjónustulína: Nýprent ehf.
Uppsetning og hönnun: Nýprent ehf. * júlí 2014
Velkomin / Welcome / Willkommen
& 453 5537
& 585 6000
Gil 7 km.
& 581 3300
Reykir 12 km
& 895 4475
Skíðasvæði 12 km.
MYND/ ÓAB
1 Brunavarnir Skagafjarðar District Fire Brigade Feurwehr
Slökkvistöð v/ Sæmundargötu & 453 5425 Útkallssími & 453 5550
2 Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Hospital Krankenhaus
Sæmundarhlíð & 455 4000 www.hskrokur.is
3 Lyfja Pharmacy Apoteke
Hólavegi 16 & 455 5700 www.lyfja.is
4 Lögreglan Police Polizei
Suðurgötu 1 & 455 3366 Neyðarlínan & 112
5 Tannlæknastofa Páls og Ingimundar Dentist Zahnarzt
Sæmundargötu 3a & 453 5800 / 453 5252
6 Áki eðalbílar sf. – bifreiðaþjónusta Car repairs Garage
Borgarteigi 5 & 571 5455
7 Bílaleiga Akureyrar útibú Car Rental Autovermietung
Sæmundargata 5b & 461 6000 / 840 6079 www.holdur.is
8 Bílaverkstæði KS Car repairs Garage
Kjarnanum við Hesteyri & 455 4500 www.ks.is
9 Bláfell – bensínstöð og veitingar Gas Station / Shop Tankstelle / Restaurant
Skagfirðingabraut 29 & 453 6666
10 Flytjandi / Eimskip Freight Transport Transport
Eyrarvegi 21 & 455 6600 www.eimskip.is
11 Frumherji hf. – bifreiðaskoðun Automotive Inspection Automobil-Inspektion
Borgartúni 8 & 570 9000 www.frumherji.is
12 Íslenskt eldsneyti – repjuolía Rapeseed Oil Tank Bio diesel
v/ Borgarteig & 821 6660
13 Hjólbarðaþjónusta Óskars Tire Service Reifen-Service
Borgartúni 6b & 453 6474
14 Hópferðabílar Skagafjarðar Bus Service Bus-Service
& 453 5537
15 Landflutningar / Samskip Freight Transport Transport
Eyrarvegi 21 & 455 6600 www.landflutningar.is
16 N1 Ábær – bensín og veitingar Gas Station / Shop Tankstelle / Restaurant
Ártorgi 4 & 455 7070 www.n1.is
17 Olís / Verslun Haraldar Júlíussonar – bensín og verslun Gas Station / Shop Tankstelle / Geschäft
Aðalgötu 22 & 453 5124 / 515 1000 www.olis.is
18 Orkan – bensín og veitingar Gas Station / Shop Tankstelle / Restaurant
Skagfirðingabraut 29 & 453 6666 www.orkan.is
19 Vörumiðlun – flutningaþjónusta Freight Transport Spedition
Eyrarvegi 21 & 455 6600 www.vorumidlun.is
20 Arion banki – hraðbanki einnig í Skagfirðingabúð Bank / ATM Geldautomat
v/ Faxatorg & 444 7000 www.arionbanki.is
21 Landsbankinn Bank / ATM Bank / Geldautomat
Suðurgötu 1 & 410 4000 www.landsbankinn.is
22 Sparisjóðurinn Skagafirði Bank Sparkasse
Ártorgi 1 & 455 5555 www.spar.is
23 Hard Wok Café Restaurant and Pizzeria Restaurant und Pizzeria
Aðalgötu 8 & 453 5355
24 Kaffi Krókur Cafe / Bistro Cafe / Bistro
Aðalgötu 16 & 453 6299 www.kaffikrokur.is
25 Microbar and Bed Pub Bar
Aðalgötu 19 & 467 3133 Facebook > Microbar And Bed
26 Ólafshús - Restaurant Restaurant Restaurant
Aðalgötu 15 & 453 6454 www.olafshus.is
27 Sauðárkróksbakarí Bakery and Cafe Bäckerei und Cafe
Aðalgötu 5 & 455 5000 www.saudarkroksbakari.net
28 Veitingahúsið Drangey / Grettistak Restaurant – Open in summer Restaurant – Im Sommer geöffnet
v/ Sæmundarhlíð & 455 8060
29 Gistiheimilið Mikligarður Guesthouse Pension
Kirkjutorg 3 & 453 6880 www.arctichotels.is
30 Hótel Mikligarður – sumaropnun Hotel – Open in summer Hotel – Im Sommer geöffnet
v/ Sæmundarhlíð & 453 6330 www.arctichotels.is
31 Hótel Tindastóll Hotel Hotel
Lindargötu 3 & 453 5002 www.arctichotels.is
32 Tjaldsvæðið á Sauðárkróki Camping Ground Campingplatz
v/ Skagfirðingabraut & 899 3231
33 Drangeyjarferðir - Grettislaug – siglingar, gisting, kaffihús Drangey Tours / Grettislaug Ausflügsboot nach Drangey
Reykjum á Reykjaströnd & 821 0090 / 821 0091 www.drangeyjarferdir.is
34 Félagsheimilið Bifröst Community Center Versammlugshaus
v/ Skagfirðingabraut & 453 5126 www.skagafjordur.is
35 Gestastofa sútarans - verslun og skoðunarferðir The Tannery Visitor Centre Die Gerberei-Besucherzentrum
Borgarmýri 5 & 512 8025 www.sutarinn.is
36 Héraðsbókasafn Skagfirðinga District Library Bibliothek
Safnahúsinu v/ Faxatorg & 453 5424 heradsbokasafn.skagafjordur.is
37 Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Archives / Gallery Archiv / Museeum
Safnahúsinu v/ Faxatorg & 453 6640 heradsskjalasafn.skagafjordur.is
38 Hús frítímans – frístundasvið Svf. Skagafjarðar House of Leisure Freizeitzentrum
Sæmundargötu 7b & 455 6109 www.husfritimans.is
39 Íþróttahúsið á Sauðárkróki Sports Center Sportzentrum
Skagfirðingabraut 22 & 453 5098 www.skagafjordur.is
40 Krókaleiðir – snjósleðaferðir Snowmobiles for rent Snowmobiles zu vermieten
v/ Heiði & 895 4475 / 453 5065
41 Króksbíó – kvikmyndahús Cinema Kino
v/ Skagfirðingabraut & 453 5126 www.facebook.com/kroksbio
42 Maddömukot – sýningar og verslun Gallery / Shop Gallery / Geschäft
v/Aðalgötu www.facebook.com/Maddomukot
43 Minjahúsið / Byggðasafn Skagfirðinga Museum / Information Museeum / Information
v/ Aðalgötu & 453 6870 www.glaumbaer.is
44 Reiðhöllin Svaðastaðir / Fluga Riding Hall Equestrian Centre
Flæðagerði 2 & 453 6440 www.svadastadir.is
45 Skíðasvæðið í Tindastóli Skiing Skifahren
& 899 9073 / 453 6080 www.tindastoll.is/skidi
46 Sundlaug Sauðárkróks Swimming Pool / Hot Tubs Schwimmbad / Whirlpool
v/Skagfirðingabraut & 453 5226 www.skagafjordur.is
47 Topphestar – hestaferðir og hestaleiga Horse Rental and Riding Tours Touren und austritte
v/ Reiðhöllina Svaðastaði & 868 1776
48 Ungmennafélagið Tindastóll Tindastoll Sportsclub Tindastoll Sportverein
Víðigrund 5 & 453 6080 www.tindastoll.is
49 Ungmennasamband Skagafjarðar Sport Youth Association Sport Jugendverband
Víðigrund 5 & 453 5460 www.umss.is
50 Upplýsingamiðstöð ferðamála Information Center Information Center
Minjahúsinu v/ Aðalgötu & 453 6870 www.visitskagafjordur.is
51 Þreksport – líkamsræktarstöð Fitness Center Fitnesscenter
Aðalgötu 22b & 453 6363 www.threksport.is
52 Eftirlæti ehf. – snyrtistofa og gjafavöruverlsun m/ ísl. handverk Salon and Giftshop Salon und Geschenkeladen
Aðalgötu 4 & 571 4070 www.eftirlaeti.com
53 Hlíðarkaup Supermarket Einkaufszentrum
v/ Sæmundarhlíð & 453 6166
54 Síminn – þjónustustöð Phone Service / TV Telefon-Service / TV
Skagfirðingabúð & 550 6000 Þjónusturver & 800 7000 www.siminn.is
55 Skagfirðingabúð Supermarket Einkaufszentrum
Ártorgi 1 & 455 4500 www.ks.is
56 Táin Strata Salon / Podiatrist Salon / Pedicure
Skagfirðingabraut 6 & 453 5969
57 Verslunin Eyri – byggingavöruverslun o.fl. Hardware Store Baumarkt
Eyrarvegi 21 & 455 4500 www.ks.is
58 Vínbúðin Sauðárkróki Liquor Store Getränkemarkt
Smáragrund 2 & 453 5990 www.vinbudin.is
Nr.
Meira í leiðinni
Drangey
HARD CAFEWok
LOGO FYRIR KRÓKSBÍÓ / 15. apríl 2005>> Hinir sömu sf.
TOPPHESTAR
Hestavöruverslun
www.topphestar.is
Ártorgi 4, s:453-5130
3 2
3 2 1
S T R A T A
TÁIN &
3 2 1
S T R A T A
Nudd &
Sími 453 5969
Sími 453 5969
Nú stendur til að endurnýja þjónustuskiltin við innkomurnar til Sauðárkróks
enda stendur mikið til í bænum næstu mánuðina.
Núverandi skilti eru við Strandveginn neðan við hús Vegagerðarinnar og syðst við Skagfirðinga-
braut. Áætlað er að setja nú upp nýtt skilti við Eyrarveg nyrst í bænum. Þeir sem vilja halda sinni
þjónustulínu áfram eða vilja bæta sínu fyrirtæki við á skiltin eru beðnir um að hafa samband við
Nýprent í síma 455 7171 eða með pósti á nyprent@nyprent.is
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Í þjónustulínunni kemur fram
nafn fyrirtækis eða stofnunar,
heimilisfang, sími og netsíða.
Verum vel merkt –
sjáumst á Króknum!
Kortið er
á leið í prent
Allra síðustu forvöð
að skrá sig!
Hafið samband
fyrir mánaðamót!
20 ár frá
sameiningu
Afmælisfagnaður Húnaþings vestra
Á þessu ári eru 20 ár liðin frá sameiningu hreppa í
Vestur Húnavatnssýslu í það sveitarfélag sem í dag ber
nafnið Húnaþing vestra. Af því tilefni var efnt til
afmælisveislu þann 24. til 26. ágúst sl. Það var
Menningarfélag Húnaþings vestra sem átti veg og vanda
að afmælisdagskránni.
Íbúum sveitarfélagsins og gestum þeirra var boðið upp á
ýmsa sögu- og menningartengda viðburði með áherslu á
góðar samverustundir, víðsvegar um sveitarfélagið.
Dagskráin var einkar fjölbreytt en hún hófst á
ljósmyndasýningu með verkum Kollu Gr á Gauksmýri.
Hver atburðurinn rak svo annan allt fram á sunnudags-
kvöld er myndin Bændur og býli í V-Hún, sem tekin var
upp á árunum 1953-1964, var sýnd í Selasetri Íslands á
Hvammstanga. /PF
Selasetur Íslands á Hvammstanga.
MYND: ÓAB
Það var vel mætt á Reynistað er minnisvarði um
Reynistaðarbræður var vígður sl. sunnudag. Eins og
margir kannast við segir sagan að þeir bræður Bjarni
19 ára og Einar 11 ára, auk þriggja annarra, hafi orðið
úti á Kili snemma vetrar 1780 eftir fjárkaupaferð á
Suðurland.
Lík leiðangursmanna fundust löngu síðar og málaferli
urðu í kjölfar þess að talið var að lík einhverra leiðangurs-
manna hefðu verið rænd. Eins og Sigríður Sigurðardóttir,
fv. safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, kom inn á í erindi
sínu við athöfnina á Reynistað urðu þau málaferli engum til
góðs.
Beinahóll er lágur hóll á Kili þar sem leiðangurs-
mennirnir urðu úti með fjölda fjár og hesta sem þeir
höfðu keypt fyrir sunnan vegna fjárskipta. Hóllinn dregur
nafn sitt af miklum fjölda kinda- og hrossabeina sem
liggja þar enn. Þar var reistur minnisvarði árið 1971 og
hann afhjúpaði afkomandi Halldórs Bjarnasonar og
Ragnheiðar Einarsdóttur, ábúenda á Reynistað og foreldra
Reynistaðarbræðra, Bjarni Halldórsson frá Uppsölum.
Sonur Bjarna og elsti afkomandi þeirra Reynistaðahjóna,
Árni Bjarnason á Uppsölum afhjúpaði svo minnisvarðann
á Reynistað sl. sunnudag og þótti vel við hæfi. Fram kom í
máli Jóns Sigurðssonar að þeir bræður sem kenna sig við
Reynistað nú væru alls óskyldir þeim er lentu í þeim
hrakningum sem minnst hefur verið en saga þeirra hefur
alla tíð fylgt staðnum og ábúendum og mun svo verða um
ókomin ár.
Jón kom inn á það að bygging minnisvarðans væri
tileinkuð 100 ára ártíð foreldra núverandi Reynistaðar-
bræðra, þeirra Guðrúnar Steinsdóttur og Sigurðar
Jónssonar. /PF
Afskipti veiði-
eftirlitsmanns af
gæsaveiðimönnum
Gæsaveiði í Húnaþings vestra
Sl. föstudagskvöld þurfti veiðieftirlitsmaður Húna-
þings vestra að hafa afskipti af veiðimönnum sem voru
við gæsaveiðar í löndum sveitarfélagsins á Víðidals-
tunguheiði án leyfis. Veiðimennirnir, sem voru tveir,
báru fyrir sig að þeir hefðu talið sig í almenningi og
formaður SKOTVÍS hefði tjáð þeim að svo væri.
Á vef Húnaþings vestra segir að það hafi komið
veiðimönnunum á óvart að búið væri að úrskurða um þetta
svæði en þar er klárlega staðfest að umrædd lönd séu í
fullkominni einkaeign sveitarfélagsins.
Mönnunum var gert að yfirgefa svæðið en sleppt við
kæru með þeim orðum að ekki væri hægt að bera fyrir sig
þekkingarskort að nýju. Húnaþing vestra gefur út tak-
markaðan fjölda leyfa til skotveiða í umrædd lönd gegn
sanngjarnri þóknun og heldur jafnframt úti virku eftirliti
með svæðinu svo koma megi í veg fyrir óleyfilegar veiðar.
Reglur um gæsaveiðar 2018 í eignarlöndum Húnaþings
vestra er hægt að nálgast á hunathing.is /PF
Jón Sigurðsson hafði orð fyrir þeim Reynistaðarbræðrum. MYNDIR: PF